Síða 1 af 1

Kosningakönnun DV 2013

Sent: Þri 09. Apr 2013 22:22
af GuðjónR
Ég tók þessa könnun að ganni, fannst spes útkoman sem ég fékk.
http://www.dv.is/kosningar2013/prof/
Það væri fróðlegt að sjá fleiri útkomur.

Re: Kosningakönnun DV 2013

Sent: Þri 09. Apr 2013 22:48
af urban
Píratar voru með 81% hjá mér
næstu flokkar voru með 72 - 77% (man ekki hvaða flokkar það voru eða í hvaða röð)

Re: Kosningakönnun DV 2013

Sent: Þri 09. Apr 2013 22:53
af appel
Hjá mér:

Untitled-1.png
Untitled-1.png (66.53 KiB) Skoðað 574 sinnum



Ekki mjög nákvæmt, því ég hata Sjálfstæðisflokkinn. Auk þess skil ég ekki afhverju það stendur "Píratar" fyrir neðan þennan herramann í Hægri Grænum.

Annars fannst mér of mikið af spurningum leiðandi og buðu bara upp á ákveðna valmöguleika þegar ég hafði aðrar hugmyndir.

Re: Kosningakönnun DV 2013

Sent: Þri 09. Apr 2013 22:57
af Klemmi
Ákvað eftir að ég svaraði spurningunni „Stundum er nauðsynlegt fyrir foreldra að flengja börnin sín“ að ég myndi ekki taka mark á þessari könnun.

Re: Kosningakönnun DV 2013

Sent: Þri 09. Apr 2013 23:13
af GuðjónR
Klemmi skrifaði:Ákvað eftir að ég svaraði spurningunni „Stundum er nauðsynlegt fyrir foreldra að flengja börnin sín“ að ég myndi ekki taka mark á þessari könnun.


Spurningin var svona; " Hversu sammála eða ósammála ertu eftirfarandi fullyrðingu: Góðir foreldrar þurfa stundum að flengja börnin sín."

Þetta var spurning númer 63/66 þú hefðir alveg mátt klára ;)

Re: Kosningakönnun DV 2013

Sent: Þri 09. Apr 2013 23:13
af FuriousJoe
XL 73% en ég tek ekkert mark á þessu.

Re: Kosningakönnun DV 2013

Sent: Þri 09. Apr 2013 23:18
af urban
appel skrifaði:Hjá mér:

Untitled-1.png



Ekki mjög nákvæmt, því ég hata Sjálfstæðisflokkinn. Auk þess skil ég ekki afhverju það stendur "Píratar" fyrir neðan þennan herramann í Hægri Grænum.

Annars fannst mér of mikið af spurningum leiðandi og buðu bara upp á ákveðna valmöguleika þegar ég hafði aðrar hugmyndir.


Jón Þór er í pírötum.
Flokkurinn sem að var næstur þér í svörum voru hægri grænir.
Jón þór hefur verið með líkust svör og þú

semsagt annars vegar gefinn upp flokkurinn sem að er líkastur þér.
hins vegar gefinn upp frambjóðandinn sem að er líkastur þér.