Síða 1 af 1
Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 16:23
af hakkarin
Vill spyrja að því að ég vill fá það staðfest að þetta sé rétt þar sem að þetta er jú síða sem að heitir
http://forrettindafeminismi.comSamkvæmt þeim vill Norðrræna ráðherranefndin gera gagnrýni á femínista ólöglega og að ríkið á að loka eða banna aðgang að vefsvæðum sem að eru "andfemínisk".
http://forrettindafeminismi.com/2013/04 ... feminisma/Er þetta í alvörunni rétt???
Hef ekki kynnt mér hver þessi norðrræna ráðherranefnd er þannig að ég veit ekki mikið um það hvernig hún starfar.
EDIT: Þetta er ekki 1 apríl gabb
ég fann erlenda vefsíðu vitna í þetta hér:
http://www.the-spearhead.com/2013/03/29 ... countries/Ekki fyrsti apríl þarna.
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 16:35
af biturk
1 apríl
sent úr s2
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 16:48
af hakkarin
biturk skrifaði:1 apríl
sent úr s2
Sorry, en ég fann erlenda vefsíðu vitna í þetta hér:
http://www.the-spearhead.com/2013/03/29 ... countries/Ekki fyrsti apríl þarna.
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 19:56
af s.annar
Ég er síðuritari og þetta er rétt. Ég skil þó vel að fólk skuli eiga erfitt með að trúa þessu. Ég bendi vantrúuðum á fréttina á vef Norrænu Ráðherranefndarinnar. Sjá:
http://www.norden.org/is/a-doefinni/fre ... fga-oeflumÞað ber þó að hafa í huga að ráðherranefndin sem slík hefur ekkert boðvald yfir aðildarríkjum nefndarinnar. Álit hennar eru bara ráðgefandi. Það breytir því þó ekki að það er mjög alvarlegt að hér skuli vera settar fram tillögur um að hefta og fylgjast með fólki sem er ósammála femínistum. Nú er búið að koma þessu inn á markaðstorg hugmyndanna í gegnum ráðherranefndina en það undirbýr jarðaveginn fyrir að aðildarríki, þ.á.m. Ísland innleiði þessar tillögur nefndarinnar.
S. Annar
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 19:59
af gissur1
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 20:04
af worghal
bara því miður en að banna síður og annað sem gagnrýnir feminisma gengur þvert gegn almennu málfrelsi.
gerir þetta þá ekki löggjöfina kol-ólöglega?
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 20:07
af rapport
Ég er femínisti og mér finnst það rangt að banna gagnrýni á femínisma. Það væri líka algjörlega á skjön við hugmyndafræðina sem viðheldur sér með sjálfsgagnrýni.
En að banna síður sem birta myndir af Hildi Lillendahl með glóðurauga og textanum "konur eru eins og gras, það þarf að slá þær af og til"...
Það er alveg vafamál enda ólöglegt að hvetja til ofbeldis, ekki nema tiltekið væri að um grín væri að ræða...
lol - p.s. þessi síða um forrétindafemínisma er grín, er það ekki?
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 20:28
af fallen
Ef þetta er ekki 1. apríl... þááááá:
Sýnir bara hversu mikið hreðjatak (pun intended) feminisminn hefur á öllu í dag. Getur látið þig dreyma um að mótmæla þessu skoðanabanni og málfrelsisnauðgun með algerri lágmarkslógík ánþess að vera tekinn af lífi fyrir að vera kvennahatari. Ég gæti komið með eitthvað langt MRA/jafnréttis inspired rant um þetta, en það myndi ekki skipta neinu máli. Rökhugsun og sönnunargögn hafa aldrei virkað neitt svaka vel á móti fólki sem peddlar svona feminisma.
En, hey ho, niður með feðraveldið og áfram konur. Og niður með karlinn. Og áfram konur. /feminísktjafnrétti
Btw, lagði fólk ekki lífið að veði ef það gagnrýndi kirkjuna hér á öldum áður? Líst þessu fólki svona vel á það fyrirkomulag? Idonteven.
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 20:40
af worghal
rapport skrifaði:Ég er femínisti og mér finnst það rangt að banna gagnrýni á femínisma. Það væri líka algjörlega á skjön við hugmyndafræðina sem viðheldur sér með sjálfsgagnrýni.
En að banna síður sem birta myndir af Hildi Lillendahl með glóðurauga og textanum "konur eru eins og gras, það þarf að slá þær af og til"...
Það er alveg vafamál enda ólöglegt að hvetja til ofbeldis, ekki nema tiltekið væri að um grín væri að ræða...
lol - p.s. þessi síða um forrétindafemínisma er grín, er það ekki?
ég get nú aldrei kallað mig feminista. frekar titla ég mig jafnréttissinna eða humanista. allir eru jafnir.
ég fíla svartann húmor en þetta með mynd af hildi með glóðurauga er bara persónuárás.
feminista brandari er frekar "konur hafa ekkert lítil laun, þær hafa sín laun og laun kallanna sinna líka"
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 20:52
af Danni V8
Allt sem heitir forréttindafemínismi á að kæfa niður eins hratt og það kemur upp. Ekki einusinni hugsa tvisvar um það.
Fólk á skilið jafna framkomu allstaðar. Sama hvort það er svart, hvítt, gult, grænt, fjólublátt, karl, kona eða eitthvað þar á milli.
En að ætlast til þess að setja það í lög að einhver einn hópur á að fá betri framkomu en aðrir er ekkert nema afturför í þróun samfélagsins og á aðeins eftir að hafa neikvæðar afleiðingar í för með sér.
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 21:17
af biturk
ahhhh þá skil ég þetta betur, það er verið að kafa enn dýpra með feminismann, alveg niður í gáfulegstu og sk0rpustu hugmyndir nasisma
ég styð jafnrétti en femismi......fokkit ég set það á sama stall og aðra sem misnota málfrelsi til að upphefja sjálfa sig....á íslensku kallað skíthæll!
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 21:49
af Moldvarpan
Ég held að þið séuð að misskilja þetta eitthvað.
Frekar ruglingsleg nöfn sem notuð er þarna á síðunni, en það er verið að tala um að banna öfga femínista.
Öfgar í jafnréttisbaráttu geta sjálfsagt allir verið sammála um að hefjist þegar hreyfing, eða einstaklingar innnan hennar, krefst réttinda umfram viðmiðunarhóp, þ.e. forréttinda. Ég veit að langflestir femínistar eru jafnréttissinnar, en ég veit jafn vel að það á ekki við um alla. Mér finnst nauðsynlegt að aðgreina öfgafulla femínsta frá öðrum og kýs að flokka þessar tvær fylkingar í jafnréttisfemínista annarsvegar og forréttindafemínista hinsvegar, ekki ósvipað og Christina Hoff Sommers gerir í bók sinni Who Stole Feminism.
Að lokum vil ég svo taka fram að ég er ekki and-femínisti skv. skilgreiningu orðabókar Oxford Háskóla á enska hugtakinu “anti-feminist”. Ég viðurkenni þó fúslega, og með stolti, að ég er and-forréttindafemínisti. Eitthvað segir mér að enginn greinarmunur verði gerður þar á þegar leyniþjónusta forréttindafemínista tekur til starfa.
Re: Er þetta í alvörunni rétt???
Sent: Mán 01. Apr 2013 21:58
af Templar
Feminstar = Kommúnistar og forsjárhyggjufólk sem reynir svo að segja að allir sem ekki eru sammála þeim séu vondir og með lélegt siðferði, hati konur og svo framv. Feministar eru hreinn öfga hópur og hefur alltaf verið, verður bara aldrei almennilega skýrt fyrir hin hógværa meirihluta fyrr en pakkið er komið með lúkurnar í völd.
Ef þetta sýnir það ekki skýrt og greinilega hversu mikil öfgahópur þetta fólk er og hvað jafnréttisröflið er yfirvarp þá er fólki bara ekki bjargandi, ætti að veita fólki innsýn inn í hvernig öfgamenn eins og Hitler, Stalín og í dag Olígarkið BNA viðhalda völdum, ýta á rétta tilfinningalega takka hjá þér, búa til óvin og segja þér svo hvernig þú átt að sjá heiminn, sértu þeim ósammála er bara eitthvað að þér og þú hatar konur.