Síða 1 af 1

Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 13:21
af siggi83
Hefur einhver hér reynslu af Bitcoin mining?
Eru einhver pool hér á landi?
Er þetta einhvað borga sig að gera þetta?

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 14:35
af hjalti8
siggi83 skrifaði:Hefur einhver hér reynslu af Bitcoin mining?
Eru einhver pool hér á landi?
Er þetta einhvað borga sig að gera þetta?


að mine-a með skjákortum var að borga sig fyrir stuttu en það voru að koma út vélar með sérhönnuðum kísilflögum sem eru margfallt öflugari heldur en nokkurt skjákort í að mine-a svo að difficulty-ið er að rísa upp úr öllu valdi sem þýðir að þetta borgar sig ekki lengur með skjákortum.

rauða línan á þessu charti táknar difficulty: http://bitcoindifficulty.com/

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 14:42
af demaNtur
Er forvitinn og langar að spyrja, hvað er verið að nota svona í?

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 14:44
af hjalti8
https://en.bitcoin.it/wiki/FAQ


EDIT:

Reyndar er verðið á einni bitcoin komið yfir 70 dollara svo þetta er kannski ekki alveg dautt eins og ég hélt. En það segir sig samt sjálft að þegar fleiri eru komnir með þessar vélar frá butterflylabs þá verður þetta alveg dautt fyrir þá sem eru að mine-a með skjákortum.

en það getur svosem enginn vitað hvað verðið á einni bitcoin verði í framtíðinni, í febrúrar var það í kringum 20 dollarar og svo núna allt í einu komið í 70 dollara http://bitcoincharts.com/charts/

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 15:56
af siggi83
Jæja ég keypti einn svona. Verð með hann tengdan við Raspberry Pi.

Mynd
BitForce Little Single SC

Vonum að þetta borgi sig. [-o<
Annars hef ég ekkert of miklar áhyggjur.

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 16:14
af aaxxxkk
siggi83 skrifaði:Jæja ég keypti einn svona. Verð með hann tengdan við Raspberry Pi.

Mynd
BitForce Little Single SC

Vonum að þetta borgi sig. [-o<
Annars hef ég ekkert of miklar áhyggjur.



Hefuru einhverja hugmynd um hvað 1 svona er að gera margar BTC á mánuði ?

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 16:29
af hjalti8
aaxxxkk skrifaði:Hefuru einhverja hugmynd um hvað 1 svona er að gera margar BTC á mánuði ?



eins og difficulty er í dag þá á hann að ná 3 bitcoins á dag með 30ghash vél sem gerir hátt í 7000 dollara á mánuði. En hann mun sennilega ekki fá vélina fyrr en eftir 1-2mán svo difficulty-ið mun verða MIKLU hærra svo hann mun ekki græða næstum því svona mikið. En ég hef samt fulla trú á því að þetta muni borga sig á endanum.

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 16:50
af aaxxxkk
hjalti8 skrifaði:
aaxxxkk skrifaði:Hefuru einhverja hugmynd um hvað 1 svona er að gera margar BTC á mánuði ?



eins og difficulty er í dag þá á hann að ná 3 bitcoins á dag með 30ghash vél sem gerir hátt í 7000 dollara á mánuði. En hann mun sennilega ekki fá vélina fyrr en eftir 1-2mán svo difficulty-ið mun verða MIKLU hærra svo hann mun ekki græða næstum því svona mikið. En ég hef samt fulla trú á því að þetta muni borga sig á endanum.



þannig miðað við difficulty í dag vlri þessi að gefa 150 bitcoins á dag ? https://products.butterflylabs.com/home ... miner.html

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 16:58
af hjalti8
aaxxxkk skrifaði:
hjalti8 skrifaði:
aaxxxkk skrifaði:Hefuru einhverja hugmynd um hvað 1 svona er að gera margar BTC á mánuði ?



eins og difficulty er í dag þá á hann að ná 3 bitcoins á dag með 30ghash vél sem gerir hátt í 7000 dollara á mánuði. En hann mun sennilega ekki fá vélina fyrr en eftir 1-2mán svo difficulty-ið mun verða MIKLU hærra svo hann mun ekki græða næstum því svona mikið. En ég hef samt fulla trú á því að þetta muni borga sig á endanum.



þannig miðað við difficulty í dag vlri þessi að gefa 150 bitcoins á dag ? https://products.butterflylabs.com/home ... miner.html


jáb, eins og er þá eru samt mjöög fáir komnir með þetta og þegar fleiri fá þetta þá hækkar difficulty þvílikt og þeir hætta að græða svona mikið. hérna er fínn calc: http://www.alloscomp.com/bitcoin/calculator


edit:
hér er top listinn hja btcguild(ágætis pool), greinilega nokkrir komnir með asic frá butterflylabs:

Mynd

það eru 50 bitcoin í hverri block en það er mjöög ólíklegt að finna block(nema þá að maður er með svaka vél eins og þessir gaurar á topplistanum) og þessvegna eru menn með þessi pool þar sem allir vinna saman og deila síðan bitcoins jafnt á milli. Eins og þið sjáið þá er þessi í efsta sæti hjá btcguild búinn að finna 754 blocks sem gerir 37.700bitcoins eða 343 milljón isk :-k

Re: Bitcoin mining

Sent: Fös 22. Mar 2013 17:27
af siggi83
Fæ þetta ekki fyrr en eftir 2 mánuði. Ég verð örugglega mjög neðarlega miðað við þennann lista. Veit að erfiðleika stigið verður orðið einhvað gígatískt þegar ég fæ loksins vélina í hendurnar.

Re: Bitcoin mining

Sent: Lau 23. Mar 2013 23:19
af dandri
þú getur pretty much keypt hvað sem þig girnist með bitcoind og það er órekjanlegt.

áður fyrr var fólk að byggja nokkur öflug rigs til að mæna og aðrir gerðu clustera. þeir sem voru með mesta computing powerið og voru að græða mest voru að (það er rangt að tala um að rönna, ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!) stór bottanet til að mæna því að þá eru þeir ekki að borga fyrir rafmagnsnotkun.

annars myndi ég ekki hafa of miklar áhyggjur af difficulty blokkanna því að virði bitcoins hafa rokkað gríðarlega upp og niður síðustu 3 árin.

Re: Bitcoin mining

Sent: Mið 03. Apr 2013 09:10
af hkr
Bitcoin er að rjúka upp núna, 100$ í gær/fyrradag og núna í ~140.

Aðeins spurning hvenær þessi bóla mun springa en það er eflaust hægt að græða slatta á þessu áður en það gerist..

Re: Bitcoin mining

Sent: Mið 03. Apr 2013 16:01
af zedro

Re: Bitcoin mining

Sent: Mið 03. Apr 2013 16:42
af playman

Re: Bitcoin mining

Sent: Mið 03. Apr 2013 17:59
af hjalti8
Mynd

bóla? :-k

Re: Bitcoin mining

Sent: Mið 03. Apr 2013 19:01
af beggi90
hjalti8 skrifaði:Mynd

bóla? :-k


Oft talað um bólur þegar hlutir vaxa með svona látum og springa svo. (verða verðlausir)
Annars hef ég ekkert kynnt mér þetta af viti en ég ætla samt að halda mig fjarri þessu.

Gangi ykkur hinum vel með þetta.

Re: Bitcoin mining

Sent: Lau 06. Apr 2013 17:22
af Skúnkur
Ef þið eruð ekki með mikið Hashrating þá borgar sig frekar að mina Litecoins og selja fyrir bitcoins. Það er mjög einfald að selja litecoins fyrir bitcoins eða öfugt inn á https://btc-e.com

Borgar sig að fylgjast með genginu á LTC, búið að flakka milli $2-$5 seinustu daga.

Re: Bitcoin mining

Sent: Lau 06. Apr 2013 17:23
af Skúnkur
Það hefur verið fjallað töluvert um bitcoins á Bloomberg fréttastöðinni síðustu daga.

Re: Bitcoin mining

Sent: Lau 06. Apr 2013 17:28
af Skúnkur
Ef ykkur leiðist þá getiði grædd smotterý af bitcoins inn á þessum minecraft server :sleezyjoe http://bitvegas.net/?id=450
Ég er búin að græða bitcoins að jafnvirði ca 1500ISK á tveimur dögum þarna inni :p

Re: Bitcoin mining

Sent: Mán 08. Apr 2013 20:37
af capteinninn
Ég skil þetta ekki alveg, get ég bara skráð mig einhversstaðar (t.d. BTC Guild) náð í forrit og látið það keyra sig á tölvunni og ég fæ bitcoins sem ég get svo selt fyrir dollara eða evrur eða eitthvað?

Afhverju eru ekki allir og ömmur þeirra að gera þetta? Er þetta frekar pointless ef maður myndi hafa þetta í gangi á venjulegri i3 borðtölvu meðan maður væri að sofa eða í vinnunni?

Re: Bitcoin mining

Sent: Mán 08. Apr 2013 20:42
af playman
hannesstef skrifaði:Ég skil þetta ekki alveg, get ég bara skráð mig einhversstaðar (t.d. BTC Guild) náð í forrit og látið það keyra sig á tölvunni og ég fæ bitcoins sem ég get svo selt fyrir dollara eða evrur eða eitthvað?

Afhverju eru ekki allir og ömmur þeirra að gera þetta? Er þetta frekar pointless ef maður myndi hafa þetta í gangi á venjulegri i3 borðtölvu meðan maður væri að sofa eða í vinnunni?

Þú þarft þónokkuð öfluga tölvu til þess að græða eitthvað á þessu, og örgjafarnir eru of hægir fyrir bitcoin mining, þarft að vera með gott skjákort í þetta.

EDIT:
Hérna er ein mining vél

Re: Bitcoin mining

Sent: Þri 09. Apr 2013 09:51
af Dagur
http://realtimebitcoin.info/ Þetta er magnað, þetta nær væntanlega $200 í dag

Re: Bitcoin mining

Sent: Þri 09. Apr 2013 12:26
af Swanmark

Re: Bitcoin mining

Sent: Mið 10. Apr 2013 21:59
af Dagur
Hrunið er hafið!

Re: Bitcoin mining

Sent: Mið 10. Apr 2013 22:16
af Vectro