Síða 1 af 1
Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 20:14
af Stuffz
Lítandi yfir all leikjaflóruna sem er í boði í dag þá fór ég að spá í hvað menn myndu túlka sem þroskaða leiki, eða allavegana þroskaðri en í meðallagi, það eru til margir svosem ágætir leikir en sem eru hálf barnalegir þá meina ég eitthverja sem maður kannski hefði ekki mikinn áhuga á að láta jafnaldra sýna sem eru ekki mikið í leikjum sjá sig spila ef maður á að vænta þess að þeir taki mann alvarlega
svo allavegana hvað eru góð dæmi um þroskaða leiki og hvað eru góð dæmi um "síður en svo" þroskaða leiki, ég skal byrja með hvað mér dettur í hug, ef eitthver er ósammála þá er velkomið að koma með tillögur.
Þroskaðari:Skákforrit og svipaðir tölvuvæddir borðleikir
Spilastokks leikir, kaplar o.s.f.
Sögulegir Stríðsleikir, Total War, AtWar, RISK o.s.f.
Aðrir sögulegir leikir
Aðrar tilnefningar: Minecraft, Mount and Blade, Civilization, EVE
hmm svona í miðjunni/Misþroskaðir:Allir Geimveru, Fantasý og Zombie leikir
Aðrir stríðsleikir
~Kubbaröðun og aðrir þrautaleikir
GTA-Grand theft Auto o.s.f teiknimyndastíls leikir.
Óþroskaðari:Allt pokímon o.s.f. teiknimyndafígúru leikir
Allir teiknimynda leikir sem eru ekki sögulegir.
Allt annað barnalegt
Aðrar tilnefningar: call of duty
Spurning hvar "Angry Birds" passar?
Svo hérna gott dæmi um Þroskaðari leiki, þetta er það sem ég myndi flokka undir sögulega stríðsleiki, með alvöru kort, borgir o.s.f. og eitthvað sem maður getur notað frítt.
Re: Þroskaðir Leikir vs Barnalegir
Sent: Mið 20. Mar 2013 20:16
af worghal
call of duty í óþroskað, takk.
Re: Þroskaðir Leikir vs Barnalegir
Sent: Mið 20. Mar 2013 20:20
af Stuffz
worghal skrifaði:call of duty í óþroskað, takk.
ekki viss um að allir væru sammála
EDIT:
annars myndi hann vera í miðjunni í "Aðrir stríðsleikir"
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 20:30
af oskar9
Þetta er einhver bjánalegast þráður sem ég hef séð lengi, hvernig er einhver turn based kortaleikur "Þroskaður" á meðan shooter leikir sem reyna mikið á samhæfni, reflexes, oft mjög krefjandi og oft mikið teamwork "óþroskaður"
Fólk sem hraunar yfir shootera og allt það er oftast því það borðar tvær kúlur í þeim.
Spila ekki Cod BTW, spila BF3, War thunder og EVE online og borderlands 2.
þú ert bara að opna can of worms hérna inná, þó EVE sé vissulega meira krefjandi en hinir leikirnir þá er t.d. Borderlands þá er hann ekki "óþroskaður" á nokkurn hátt vegna þess að hann er mikið hraðari en það sem þú kallar "þroskaða" leiki
Rant OFF
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 20:38
af GuðjónR
Þroskaður eða þroskandi ... veit ekki ... Minecraft!!!
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 20:48
af Stuffz
oskar9 skrifaði:Þetta er einhver bjánalegast þráður sem ég hef séð lengi, hvernig er einhver turn based kortaleikur "Þroskaður" á meðan shooter leikir sem reyna mikið á samhæfni, reflexes, oft mjög krefjandi og oft mikið teamwork "óþroskaður"
Fólk sem hraunar yfir shootera og allt það er oftast því það borðar tvær kúlur í þeim.
Spila ekki Cod BTW, spila BF3, War thunder og EVE online og borderlands 2.
þú ert bara að opna can of worms hérna inná, þó EVE sé vissulega meira krefjandi en hinir leikirnir þá er t.d. Borderlands þá er hann ekki "óþroskaður" á nokkurn hátt vegna þess að hann er mikið hraðari en það sem þú kallar "þroskaða" leiki
Rant OFF
fínt meira svona
ég sjálfur var nú bara efstur á klakanum í BF2, en ég myndi ekki flokka hann sem þroskaðan leik þótt ég hafi vissulega þurft á öllu reflex, o.s.f. að halda, samt allir svona rosalega ping háðir leikir eru IMO ekki áræðanlegu mælikvarði á skills nema sért beinlínis í sama herbergi og hinir, en þetta er kannski off topic.
hérna er smá attitude signature sem maður gerði þegar var sem mest að spila
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 20:53
af Gúrú
Tókstu aldrei eftir því að þú skrifaðir Arctic vitlaust?
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 20:55
af Stuffz
Gúrú skrifaði:Tókstu aldrei eftir því að þú skrifaðir Arctic vitlaust?
vááá þú ert fyrstur til að benda mér á það
auðvitað
ég kenni háskólagengnum bróður mínum um það
nei náttúrulega átti maður að goggla það fyrst
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 21:07
af worghal
Stuffz skrifaði:Gúrú skrifaði:Tókstu aldrei eftir því að þú skrifaðir Arctic vitlaust?
vááá þú ert fyrstur til að benda mér á það
auðvitað
ég kenni háskólagengnum bróður mínum um það
nei náttúrulega átti maður að goggla það fyrst
artic, goggla, pokímon.
oh dear.
í öllu góðu gríni
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 21:10
af Stuffz
worghal skrifaði:Stuffz skrifaði:Gúrú skrifaði:Tókstu aldrei eftir því að þú skrifaðir Arctic vitlaust?
vááá þú ert fyrstur til að benda mér á það
auðvitað
ég kenni háskólagengnum bróður mínum um það
nei náttúrulega átti maður að goggla það fyrst
artic, goggla, pokímon.
oh dear.
í öllu góðu gríni
hehe
annars er það ekki íslenska nafnið á þessu fyrirbæri?
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 21:18
af Stuffz
GuðjónR skrifaði:Þroskaður eða þroskandi ... veit ekki ... Minecraft!!!
ekki spilað hann sjálfur en hef heyrt góða hluti um hann.
ég setti kubbaleiki í miðjuna, þetta er svona kubbaleikur en með fígúrum er það ekki, er eitthver leikjaspilun?
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 21:29
af Daz
Án þess að vilja endilega dæma einn eða neinn, er þetta ekki flokkun sem unglingur í mótþróa/uppreisn gerir til að finnast hann meira fullorðinn? "Ég spila bara þroskaða leiki!" Í það minnsta sé ég lítil not í svona flokkun, ég flokka afþreyingu bara í leiðinlega og skemmtilega. Skylanders og Orcs must die er skemmtileg afþreying, Risk er bara flóknari útgáfa af Lúdó.
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 21:37
af Lunesta
Ef þú myndir setja total war í þroskaða leiki myndirðu líka setja Mount and Blade þangað? M&B er náttúrulega ekkert sérlega sögulegur en samt er hann líkur Total war leikjunum en samt er hann algjörlega týpískur stríðsleikur þegar þú ferð í MP eða bardaga fyrir utan það að þú getur stýrt hermönnum þínum og barist sjalfur a meðan.
Held það sé ekkert hægt að skipta þessu svona einfaldlega niður. Verður bara að miða við hvern og einn leik þegar að því kemur. Það munu alltaf verða leikir milli hópa eða í 2 hopum og jafnvel leikir sem passa ekki neins staðar.
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 21:46
af Stuffz
Daz skrifaði:Án þess að vilja endilega dæma einn eða neinn, er þetta ekki flokkun sem unglingur í mótþróa/uppreisn gerir til að finnast hann meira fullorðinn? "Ég spila bara þroskaða leiki!" Í það minnsta sé ég lítil not í svona flokkun, ég flokka afþreyingu bara í leiðinlega og skemmtilega. Skylanders og Orcs must die er skemmtileg afþreying, Risk er bara flóknari útgáfa af Lúdó.
hehe
tja miðað við að maður var að spila Lemmings, DOOM, o.s.f. þegar maður var á þeim aldri þá að sama skapi án þess að dæma er það ekki baraaðili í afneitun um þroskastig uppáhalds leikjanna sinna sem myndi amast við svona flokkun
ég held a.m.k ef mér hefði verið leyft að leika mér eins mikið og ég vildi þá væri ég kannski enn að kubba legó í dag, enda endalaust skemmtilegt, margt sem mann langaði að byggja en kom aldrei í verk, væri ekkert mál fyrir mann núna að fara útí búð og kaupa sér tonn af legókubbum en eitthverra hluta vegna gerir maður það ekki
Lunesta skrifaði:Ef þú myndir setja total war í þroskaða leiki myndirðu líka setja Mount and Blade þangað? M&B er náttúrulega ekkert sérlega sögulegur en samt er hann líkur Total war leikjunum en samt er hann algjörlega týpískur stríðsleikur þegar þú ferð í MP eða bardaga fyrir utan það að þú getur stýrt hermönnum þínum og barist sjalfur a meðan.
Held það sé ekkert hægt að skipta þessu svona einfaldlega niður. Verður bara að miða við hvern og einn leik þegar að því kemur. Það munu alltaf verða leikir milli hópa eða í 2 hopum og jafnvel leikir sem passa ekki neins staðar.
ok skal adda því
og þessi listi er ekkert meitlaður í stein bara það sem mér datt í hug
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 21:56
af Daz
Ég leik mér öðru hverju í Legó. Fékk meira að segja Legó í jólagjöf! Afhverju ætti maður ekki að leika sér með Legó ef maður getur það?
En ég er ekkert að amast við flokkuninni á leikjum, ég bara skil hana ekki.
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 22:10
af Varasalvi
Civilization - Þroskaður?
En hvaða leikur er þetta með mappinu?
Edit: Varðandi Minecraft, þá lítur hann mjög barnalegur út en ég myndi kalla gameplay þroskað, eða eins og Guðjón seigir, þroskandi.
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 22:13
af appel
Fer það ekki eftir aldri þínum hvað þú telur vera "þroskaðan" eða "barnalegan" leik?
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Mið 20. Mar 2013 22:24
af Stuffz
Daz skrifaði:Ég leik mér öðru hverju í Legó. Fékk meira að segja Legó í jólagjöf! Afhverju ætti maður ekki að leika sér með Legó ef maður getur það?
En ég er ekkert að amast við flokkuninni á leikjum, ég bara skil hana ekki.
já legó er endalaust skemmtilegt
bara.. tja misjafn áhugi I guess, fyrir mér "been there done that, time to move on", ég t.d. hef ekki eins mikinn áhuga á skotleikjum lengur, og reyndar hef aldrei haft, er meira svona turn based strategy gaur, vantaði "substitude hobbý" þarna 2005 og BF2 var að koma út svo bara overkillaði á honum, var svona í og með að "prove a point" persónulega líka en burt séð frá því var skemmtilegt meðan á stóð, tja nema kannski þegar maður var að maska ódýru ebay lyklaborðunum sem ég keypti sérstaklega fyrir þannig moment, priceless LOL
en samt aldrei velt fyrir þér afhverju sumar eiginkonur kalla kallinn sinn sitt fyrsta barn?
Varasalvi skrifaði:Civilization - Þroskaður?
En hvaða leikur er þetta með mappinu?
Edit: Varðandi Minecraft, þá lítur hann mjög barnalegur út en ég myndi kalla gameplay þroskað, eða eins og Guðjón seigir, þroskandi.
já Civ auðvitað, skal bæta þessu við.
mappið, hvað þá í undirskriftinni eða?
appel skrifaði:Fer það ekki eftir aldri þínum hvað þú telur vera "þroskaðan" eða "barnalegan" leik?
Auðvitað
en þá á persónulegu leveli
þetta hinsvegar er hugsað til að miðast við hvað myndi almennt teljast til "þroskaðan" eða "barnalegan" leikja.
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Fim 21. Mar 2013 00:17
af danheling92
Call of Duty leikirnir eru mismunandi barnalegir.
Call of Duty 2 er ekki nálægt því að vera barnalegur, mér leið eins og að ég væri hermaður í seinni heimsstyrjöldinni þegar ég var að spila campaignið!
Held að þú sért aðallega að vitna í online samfélagið, sem getur á köflum verið skítlegt, og ég tel að leikjahönnuðir seinni cod leikja hafi að mörgu leiti reynt að móta leikina eftir því hvað þeir töldu samfélagið vilja úr þeim..
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Fim 21. Mar 2013 02:21
af Minuz1
paradox framleiðir í flestum tilfellum "þroskaðari" leiki
MoO og álíka leikir eru líka "þroskaðari" að mínu mati.
Geimveru og álíka klassinn er óviðeigandi, gæti flokkað Eve Online sem slíkann leik, sem er ekki miðlungs leikur.
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Fim 21. Mar 2013 04:54
af DJOli
Ég heimta hér með að eve fari í þroskaðasta flokkinn.
Einfaldlega byggt á þeim rökum að það getur einfaldlega ekki hver sem er spilað hann.
Einnig:
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Fim 21. Mar 2013 05:14
af Varasalvi
DJOli skrifaði:Ég heimta hér með að eve fari í þroskaðasta flokkinn.
Einfaldlega byggt á þeim rökum að það getur einfaldlega ekki hver sem er spilað hann.
Einnig:
EvE Online er varla leikur, þetta er second life.
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Fim 21. Mar 2013 05:15
af danheling92
DJOli skrifaði:Ég heimta hér með að eve fari í þroskaðasta flokkinn.
Einfaldlega byggt á þeim rökum að það getur einfaldlega ekki hver sem er spilað hann.
Einnig:
Skil þetta ekki alveg, afhverju er valtarinn að keyra yfir þá sem náðu að komast á rétta braut?
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Fim 21. Mar 2013 17:17
af Stuffz
Minuz1 skrifaði:paradox framleiðir í flestum tilfellum "þroskaðari" leiki
MoO og álíka leikir eru líka "þroskaðari" að mínu mati.
Geimveru og álíka klassinn er óviðeigandi, gæti flokkað Eve Online sem slíkann leik, sem er ekki miðlungs leikur.
MoO var skemmtilegur, náði einu sinni 5000 score í MOO2 samt miðlungs IMO, ég byrjaði að spila Eve þegar hann kom út en var bara ekki tilbúinn að eyða þeim tíma sem þurfti til að komast eitthvað áfram í honum að ráði svo hætti eftir 1-2 mánuði.
DJOli skrifaði:Ég heimta hér með að eve fari í þroskaðasta flokkinn.
Einfaldlega byggt á þeim rökum að það getur einfaldlega ekki hver sem er spilað hann.
Einnig:
Flóknir leikir og þroskaðari leikir eru ekki það sama, það væri hægt að taka pokemon sem dæmi, gera rosalega djúpan söguþráð í kringum hann og með allskonar flóknu systemi, og milljón upgrade valmöguleika en í lok dagsins þá er hann ennþá bara pokemon teiknimyndafígúruleikur, EVE online er viðskipta/uppbyggingar/stríðs/ o.s.f. svona bara bland í poka leikur og dálítið spec með tengingu við Dust 514 en í lok dagsins þá er hann geim-fantasíu leikur, ég meina ég er t.d. að spila Forngrísk-fantasíu leik þar sem ég eyddi ógrynni tíma síðustu nokkur árin í að gera flókin roadplans sem skiluðu mér top plássi í einum heimi og enn flóknari plön til að koma alliance í top plássi í öðrum heimi en í lok dagsins er þetta bara silly leikur sem sumir aðrir spilarar klóra sé í kollinum afhverju maður sé að eyða svona miklum tíma og pælingu í
*
Ég geri mér fyllilega grein fyrir að þetta sé í besta falli miðlungs þroskaður leikur en samt er maður að spila þetta lol
er eiginlega búinn að ná þeim markmiðum sem ég setti mér í honum svo er að hugsa mér til hreyfingar, svona einsog BF2, yngri kynslóðir spilara taka við.
*hmm já þetta heitir nú EIMU bara af því ég var ekkert voðalega alvörugefinn þegar ég valdi nafn á þetta, eiginlega bara persónulegur húmor með tilvitnun í Gámanúmer
Re: Þroskaðari Leikir vs Barnalegri
Sent: Fim 21. Mar 2013 18:38
af inservible
what did I just read?