Síða 1 af 2
FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 14:01
af tanketom
Nýjasta nýtt FM 91.9, loksins kominn útvarpsstöð sem er að gera eitthvað að viti!
edit:
Í dag stigum við fyrsta skrefið í átt að aukinn útbreiðslu Flass vörumerkisins!
Fyrri stöðin, af tveimur hliðarstöðvum Flass 104,5, fór í loftið í dag. Nýja stöðin mun bera nafnið Flass Back. Hlustendur stöðvarinnar munu svo sannarlega fá Flass Back því stöðin mun einbeita sér að því að spila tónlist frá árunum 1990 – 2005. Þú getur hlustað á Flass Back á FM 91.9 á Suð-vestur horninu og á
www.flass.is.
Eins og áður sagði er Flass Back fyrsti liðurinn í frekari útbreiðslu Flass því á næstunni mun Flass Xtra bætast við. Þar fá hlustendur að heyra tónlistarstefnur sem útvarpsstöðvar á Íslandi hafa svelt hingað til. HipHop og raftónlist verða þar áberandi. Jaðartónlist mun fá nýtt heimili á Flass Xtra og íslenskir tónlistarmenn fá að vera í algjöru aðalhlutverki. Stöðin verður bæði send út á FM-tíðni og á netinu, líkt og Flass 104,5 og Flass Back.
Flass mun því halda úti þremur útvarpsstöðvum sérsniðnum til þess að þjóna fólki á aldrinum 15-35 ára og raunar hressu fólki á öllum aldri. Er þetta aukin þjónusta fyrir hlustendur sem nú hafa valmöguleika að nálgast fjölbreytt efni og sömuleiðis aukin þjónusta fyrir auglýsendur sem vilja ná til þess markhóps.
Takk fyrir frábær viðbrögð! – Áfram Flass!
Hlustaðu á stöðina í beinni á netinu hér:
http://www.flass.is/live/back/
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 14:06
af worghal
Og spilar hvad ?
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 14:12
af tanketom
worghal skrifaði:Og spilar hvad ?
ekki sömu helvítis 10 lögin aftur og aftur og aftur, hún heitir flassback sem sagt þessi gömlu góðu hittarar 2000 og uppúr, jafnvel eldra
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 14:16
af capteinninn
Geturðu komið með einhverja betri lýsingu en þetta?
Rokk, popp, techno, what is it ?
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 14:18
af ZiRiuS
Eru þeir með heimasíðu eða eitthvað til að hlusta á netinu?
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 14:26
af ponzer
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 14:30
af worghal
Sigh, entha engin rock tonlistarstod!
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 15:46
af Nördaklessa
worghal skrifaði:Sigh, entha engin rock tonlistarstod!
true that
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 16:02
af Viktor
Í dag stigum við fyrsta skrefið í átt að aukinn útbreiðslu Flass vörumerkisins!
Fyrri stöðin, af tveimur hliðarstöðvum Flass 104,5, fór í loftið í dag. Nýja stöðin mun bera nafnið Flass Back. Hlustendur stöðvarinnar munu svo sannarlega fá Flass Back því stöðin mun einbeita sér að því að spila tónlist frá árunum 1990 – 2005. Þú getur hlustað á Flass Back á FM 91.9 á Suð-vestur horninu og á
www.flass.is.
Eins og áður sagði er Flass Back fyrsti liðurinn í frekari útbreiðslu Flass því á næstunni mun Flass Xtra bætast við.
Þar fá hlustendur að heyra tónlistarstefnur sem útvarpsstöðvar á Íslandi hafa svelt hingað til. HipHop og raftónlist verða þar áberandi. Jaðartónlist mun fá nýtt heimili á Flass Xtra og íslenskir tónlistarmenn fá að vera í algjöru aðalhlutverki. Stöðin verður bæði send út á FM-tíðni og á netinu, líkt og Flass 104,5 og Flass Back.
Flass mun því halda úti þremur útvarpsstöðvum sérsniðnum til þess að þjóna fólki á aldrinum 15-35 ára og raunar hressu fólki á öllum aldri. Er þetta aukin þjónusta fyrir hlustendur sem nú hafa valmöguleika að nálgast fjölbreytt efni og sömuleiðis aukin þjónusta fyrir auglýsendur sem vilja ná til þess markhóps.
Djöfull líst mér vél á þetta undirstrikaða. Flott framtak! Meira svona!
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 16:07
af valdij
Frábær stöð, búinn að vera með kveikt á henni mikið síðustu 2 daga
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 16:12
af worghal
Sallarólegur skrifaði:Í dag stigum við fyrsta skrefið í átt að aukinn útbreiðslu Flass vörumerkisins!
Fyrri stöðin, af tveimur hliðarstöðvum Flass 104,5, fór í loftið í dag. Nýja stöðin mun bera nafnið Flass Back. Hlustendur stöðvarinnar munu svo sannarlega fá Flass Back því stöðin mun einbeita sér að því að spila tónlist frá árunum 1990 – 2005. Þú getur hlustað á Flass Back á FM 91.9 á Suð-vestur horninu og á
http://www.flass.is.
Eins og áður sagði er Flass Back fyrsti liðurinn í frekari útbreiðslu Flass því á næstunni mun Flass Xtra bætast við.
Þar fá hlustendur að heyra tónlistarstefnur sem útvarpsstöðvar á Íslandi hafa svelt hingað til. HipHop og raftónlist verða þar áberandi. Jaðartónlist mun fá nýtt heimili á Flass Xtra og íslenskir tónlistarmenn fá að vera í algjöru aðalhlutverki. Stöðin verður bæði send út á FM-tíðni og á netinu, líkt og Flass 104,5 og Flass Back.
Flass mun því halda úti þremur útvarpsstöðvum sérsniðnum til þess að þjóna fólki á aldrinum 15-35 ára og raunar hressu fólki á öllum aldri. Er þetta aukin þjónusta fyrir hlustendur sem nú hafa valmöguleika að nálgast fjölbreytt efni og sömuleiðis aukin þjónusta fyrir auglýsendur sem vilja ná til þess markhóps.
Djöfull líst mér vél á þetta undirstrikaða. Flott framtak! Meira svona!
er ekki allveg að fatta hvort þetta sé kaldhæðni eða ekki
annars eru þetta tonlistarstefnur sem er of mikið af.
eina alvöru stöðin er rás 2 eftir klukkan 10 eða 11 á kvöldin þegar enginn er að hlusta...
búinn að fá upp í kok af þessum útvarpsstöðum, einstaka sinnum lumar x-ið á sér en í heildina sökkar þetta allt.
ég hlustaði aðeins á x-ið í gær og tók eftir að Telstar með The Tornados var í spilun í bakgrunni meðan þáttastjórnandi var að tala eins og það væri næst í spilun og ég varð himin lifandi, en svo var farið í auglýsingar og lagið fékk ekki spilun
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 17:01
af rapport
Hver man ekki eftir Útrás og B-hliðinni...
https://soundcloud.com/b-hli-in-og-fleira-gottSvona útvarp þarf að vera til og skapar bara skemmtilega og fjölbreytta menningu.
@1.50.00 Snilldin byrjar... ohhhhh... hvað ég dýrkaði þetta lag... áttu ekki allir hérna Icerave á sínum tÍma?
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 18:11
af DJOli
rapport skrifaði:Hver man ekki eftir Útrás og B-hliðinni...
https://soundcloud.com/b-hli-in-og-fleira-gottSvona útvarp þarf að vera til og skapar bara skemmtilega og fjölbreytta menningu.
@1.50.00 Snilldin byrjar... ohhhhh... hvað ég dýrkaði þetta lag... áttu ekki allir hérna Icerave á sínum tÍma?
Ég er að verða tuttugu og þriggja, en ég man eftir að bróðir minn hlustaði á tónlist álíka þessu þegar ég var sirka 4-5 ára.
http://www.youtube.com/watch?v=zYbd6DhriM8
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 19:20
af Black
Þetta er ömurleg útvarpsstöð.
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 19:22
af Saber
worghal skrifaði:Sallarólegur skrifaði: Þar fá hlustendur að heyra tónlistarstefnur sem útvarpsstöðvar á Íslandi hafa svelt hingað til. HipHop og raftónlist verða þar áberandi.
Djöfull líst mér vél á þetta undirstrikaða. Flott framtak! Meira svona!
er ekki allveg að fatta hvort þetta sé kaldhæðni eða ekki
annars eru þetta tonlistarstefnur sem er of mikið af.
Þetta hlítur að vera kaldhæðni í þér? Raftónlist fær sáralítið að heyrast í íslensku útvarpi, fyrir utan nokkra sérþætti á X-inu og Rás 2 og ég hef ekki orðið mikið var við það að Hip-Hop fái að heyrast neitt heldur. Þetta er það sem meirihluti unga fólksins í dag hlustar á, kemur manni lítið á óvart að þetta skuli vera "deyjandi miðill".
Flott framtak! Hefðuð mátt samt setja Xtra í loftið á undan.
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 20:35
af siggik
fynst þetta flott stöð, samt búinn að heyra svoldið mikið sömu lögin seinustu 2 daga
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 21:03
af Sveinn
Þetta er bara snilld þessi útvarpsstöð
sjálfur búinn að vera með stillt á hana síðan hún var sett í loftið. Stöðin er að spila hittara frá árunum 1995-2005. Í augnablikinu eru um 500 lög í spilun en á næstu dögum fara þau upp í allavegana 1500 lög og svo hækkar það á næstu vikum.
Útvarpsstöðin er bara nýbyrjuð þannig það er ekki skrítið að menn séu að heyra sömu lög þar sem 500 lög eru bara rúmlega sólarhringur í stanslausri spilun (m.v. að lag sé 3min). Annars eru bara snillingar sem standa að þessu og veit ég að þeir eru að vanda sig mjög við val á tónlist.
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 21:18
af Black
Sko nú er bara verið að spila Britney Spears,
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 21:24
af tanketom
Black skrifaði:Sko nú er bara verið að spila Britney Spears,
þú verður þó að viðurkenna að þetta er betra en flest allar aðrar stöðvar
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 21:26
af Gunnar
Black skrifaði:Sko nú er bara verið að spila Britney Spears,
þú ert nýbuinn að segja að þessi útvarpsstöð sé ömuleg. er það ekki nóg?
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 21:38
af zedro
Jæja Black er búið að vera hlusta á FM 91,9 í hvað, rúmar tvær klukkustundir! BÖSTED
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 21:44
af oskar9
Mikið rosalega eruð þið vitlausir, þetta tekur slagara frá 1990-2005 sirka, britney var vinsæl á þeim tíma þó þið fýlið það ekki, hættið þessu helvítis grenji, stofnið ykkar eigin útvarpstöð og spilið bara tónlist sem þið viljið heyra
Annars skil ég ekki þetta væl á vaktinni, hélt að allir hér væru með Aux-væddar græjur í bílunum eða slíkt, ég hef ekki hlustað á útvarp í 4 ár held ég, hlusta á 95Blö og annars er ég með mitt efni á símanum og CD, hlusta mest á raftónlist, trentemoller og slíkt, einnig inflames, Pantera, Rammstein og þannig, X-ið er bara með eitthvað svona indy væl rokk, 104.5 var mikið meira electro fyrir nokkrum ár síðan, nú shuffla þeir sama lista og FM957, Íslenskt útvarp er orðið að algjöru sorpi, bind vonir við þessa Flass-Xtra, vandað hipphopp og raftónlist væri vel séð
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 23:04
af valdij
oskar9 skrifaði:Mikið rosalega eruð þið vitlausir, þetta tekur slagara frá 1990-2005 sirka, britney var vinsæl á þeim tíma þó þið fýlið það ekki, hættið þessu helvítis grenji, stofnið ykkar eigin útvarpstöð og spilið bara tónlist sem þið viljið heyra
Annars skil ég ekki þetta væl á vaktinni, hélt að allir hér væru með Aux-væddar græjur í bílunum eða slíkt, ég hef ekki hlustað á útvarp í 4 ár held ég, hlusta á 95Blö og annars er ég með mitt efni á símanum og CD, hlusta mest á raftónlist, trentemoller og slíkt, einnig inflames, Pantera, Rammstein og þannig, X-ið er bara með eitthvað svona indy væl rokk, 104.5 var mikið meira electro fyrir nokkrum ár síðan, nú shuffla þeir sama lista og FM957, Íslenskt útvarp er orðið að algjöru sorpi, bind vonir við þessa Flass-Xtra, vandað hipphopp og raftónlist væri vel séð
Mjög mikið til í hvernig Flass er orðið núna - mikil synd. Fyrir 3-5 árum var þetta miklu meira electró og það heyrðist varla þetta R&B sorp sem er í spilun 24/7 á FM957.. Núna er þetta eins og þú segir réttilega bara sami listi og á FM. Ég var dyggur Flass-ari en verð fyrir vonbrigðum í hvert skipti sem ég hlusta á það núna.
Re: FM 91.9
Sent: Þri 19. Mar 2013 23:55
af capteinninn
Vá hvað ég hef hljómað bitur þarna efst, þegar Tanketom setti þennan post inn fyrst stóð ekkert um stöðina en ég sé núna að hann er búinn að bæta hana.
Ég hlustaði aðeins á hana áðan og get ekki sagt að ég hafi verið mjög hrifinn, er búinn að gefast upp á íslensku útvarpi og hlusta eiginlega bara á iPodinn minn eða set á BBC World service eða Rás 2 þegar ég hlusta á útvarpið í bílnum. Mun samt hlusta eitthvað meira á þetta áður en ég dæmi þetta almennilega.
Ég er samt spenntur fyrir Flass Xtra, hún hljómar eins og hún gæti verið góð, verið með einhverja sérþætti sem væri mjög gaman að heyra, langflestar útvarpsstöðvarnar eru algjört rusl og spila allar sömu tónlistina. Flass FM er nú samt ekki alslæm því ég heyri við og við góða tónlist þegar ég er í bíl með félögum mínum sem setja á hana en þau eru ekki mörg innan um flóðið af leiðinlegu tónlistinni.
Ég er annars 24 ára gamall og mér finnst ótrúlegt að það sé ekkert sem ég get hlustað á í útvarpinu miðað við þá frábæru tónlist sem íslenskir listamenn eru að dæla út.
Re: FM 91.9
Sent: Mið 20. Mar 2013 01:28
af DJOli
Var að senda skilaboð til eiganda (trúi ég) Flassfm með ábendingu á lög frá þessu skemmtilega tímabili.
Ég benti á m.a. Public Enemy, Tupac, Biggie, Big L, Tribe called quest, D12 og fleira.
Mikið djöfulli væri ég til í að '(það er rangt að tala um að rönna, ég lofa að vanda málfar mitt annars verð ég bannaður, lengi lifi ritskoðun!)' þetta show.
Ef þeir taka svo upp á einhverju heimskulegu eins og spila mix (eða fokking 'bootleg') frá dj óla geir þá verð ég bara að segja að ég hafi misst alla trú á mannkyninu.
dj óli geir er seriously svo hræðilega lélegur að það er ekki til orð til að lýsa því.