Síða 1 af 1
Gott bón eða mössun?
Sent: Fim 14. Mar 2013 16:28
af Garri
Sælir
Er fyrir sunnan núna og verð í nokkra daga..
Langar að nota tækifærið og fara með gamla bílinn minn í bón eða mössun. Ekki alveg klár á hvort um er að ræða tveggja þátta lakk eða að hann sé með glært ofan á litinn. Hugsa að það skipti einhverju máli upp á árangur.
Allavega.. hvað mæla menn með.
ps. Þetta er gamall Bens 210 bodý, svartur.
Re: Gott bón eða mössun?
Sent: Fim 14. Mar 2013 17:39
af g0tlife
Fór með minn í bílakjallarann í firðinum hér í hfj í gær. 8.000 þúsund Bón,felgur og þrifinn að innann. Var mjög sáttur
Re: Gott bón eða mössun?
Sent: Fim 14. Mar 2013 17:40
af Lexxinn
glitrandi.is eru langbestir upp á mössun
annars mundi ég fá einstaklingsmiðað fyrirtæki eða einstakling til að þrífa en ekki eitthvað eins og autospa og þess háttar rusl sem notar léleg bón sem fara af eftir 4-5 daga
Re: Gott bón eða mössun?
Sent: Fim 14. Mar 2013 17:42
af littli-Jake
Lexxinn skrifaði:glitrandi.is eru langbestir upp á mössun
annars mundi ég fá einstaklingsmiðað fyrirtæki eða einstakling til að þrífa en ekki eitthvað eins og autospa og þess háttar rusl sem notar léleg bón sem fara af eftir 4-5 daga
Óli Glitrandi er eginlega ekki virkur þessa dagana vegna anna í námi skilst mér
Re: Gott bón eða mössun?
Sent: Fös 15. Mar 2013 23:06
af vesley
Reddaði þessu fyrir hann
Skelli inn nokkrum myndum af bílnum bráðlega ef honum finnst það í lagi.
Gleymdi reyndar að taka almennilega before mynd en er með eitthverjar myndir af bílnum.
Re: Gott bón eða mössun?
Sent: Lau 16. Mar 2013 12:43
af Garri
Já og takk fyrir..
Þetta var mjög vel gert hjá ykkur. Góð þjónusta, sóttuð bílinn og komuð með hann sem munar miklu fyrir mig, utanbæjar manninn.
Mæli með Vesley í svona.
Kv. Garrinn