Síða 1 af 1

Kortalán / Raðgreiðslur

Sent: Mán 04. Mar 2013 14:04
af tanketom
Góðan dag

Ég er nú að velta því fyrir mér hvernig það er með að skila vöru sem var tekinn með kortaláni / Raðgreiðslum, er það hægt?
Þar sem ég ekki búinn að opna neinar umbúðir og mig snérist hugur á vöruni sem ég keyfti

Re: Kortalán / Raðgreiðslur

Sent: Mán 04. Mar 2013 14:16
af Gislinn
Stendur eitthvað um skil á vöru á kortalána samningnum?

island.is skrifaði:Meginreglan er sú að kaup eru bindandi samningur milli seljanda og kaupanda, nema samið hafi verið um skilarétt, til dæmis ef hluturinn er keyptur til reynslu.


Í þínum sporum myndi ég bara hafa samband við búðina og spyrja þá útí hvort þú megir skila vörunni, þú getur samt átt von á að fá ekki endurgreitt að fullu þar sem þú þarft líklegast að greiða kostnað sem stendur útaf vegna kortalána samningnum sem var stofnaður.

Re: Kortalán / Raðgreiðslur

Sent: Mán 04. Mar 2013 14:40
af lukkuláki
Lestu nótuna eða samninginn það ætti að koma fram þar hvernig skilafrestur er og það allt.

Re: Kortalán / Raðgreiðslur

Sent: Mán 04. Mar 2013 15:14
af AntiTrust
Á ekki að vera neitt mál að rifta raðgreiðslusamning, hef gert slíkt í gegnum tíðina bæði sem seljandi/kaupandi án teljandi vandræða.