Síða 1 af 2

Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 22:38
af danheling92
Ég veit að allir menn eiga sér draum, og vildi gjarnan fá að vita hver draumur ykkar vaktara er :)

Eru það peningar? Langt líf? Endilega deilum okkar dýpstu óskum með hvorum öðrum.

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 22:45
af Yawnk
Að eiga fiskvinnslustöð á Flateyri.

djók.

Að vera heilsuhraustur, eiga gott magn af peningum, flott hús, flottan bíl, góða menntun / starf, og góða kærustu.

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 22:47
af rango
Að ég muni lifa nógu lengi til að upplifa þriðju heimstyrjöldina,

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 22:51
af Stuffz
draumar eru oftast óraunhæfir, þar af leiðandi hef ég hef enga drauma.

óskir er raunhæfari..

t.d. Fólk er fífl segja sumir, einsog það gefi þeim eitthvað "skotleyfi á það, ég held fólk sé ekki fífl en það hefur bara ekki tíma til að kynna sér alla hluti svo það treystir sérfræðingum kannski um of, það er bara sport í sumum atvinnugeirum að blekkja fólk og telst til hæfileika að vera góður í því að nota sér þennan veikleika finnst mér ómerkilegt en það er því miður óspart gert, vonandi verðum við nógu upplýst einn daginn til að blekkingar virka ekki á okkur eða nógu góð til að hætta að blekkja hvert annað O:)


rango skrifaði:Að ég muni lifa nógu lengi til að upplifa þriðju heimstyrjöldina,


http://www.lifeoflight.com/features/quotes/757.html

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 23:06
af Tesy
Ich habe keinen draum :(

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 23:07
af rango
Stuffz skrifaði:
rango skrifaði:Að ég muni lifa nógu lengi til að upplifa þriðju heimstyrjöldina,


http://www.lifeoflight.com/features/quotes/757.html


=D>

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 23:13
af danheling92
rango skrifaði:Að ég muni lifa nógu lengi til að upplifa þriðju heimstyrjöldina,


Ef hlutir halda áfram að ganga eins og þeir eru að gera í dag þá efa ég ekki að sú ósk muni rætast hjá þér..

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 23:29
af Captaintomas
Grafíkin í þessu lífi er alveg ágæt og allt það en ekkert sérstaklega hrifinn af gameplay-inu, en draumurinn er að í næsta lífi verði borðin meira spennandi

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Sun 03. Mar 2013 23:31
af urban
Captaintomas skrifaði:Grafíkin í þessu lífi er alveg ágæt og allt það en ekkert sérstaklega hrifinn af gameplay-inu, en draumurinn er að í næsta lífi verði borðin meira spennandi


Þú ræður þeim alveg sjálfur, þarft bara að leita eftir því.

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 00:05
af AntiTrust
Draumurinn minn hefur ræst að stórum hluta mikið fyrr en mig óraði um, en það sem situr eftir er að áorka e-rju sem barnabörnin eiga eftir að segja frá, óspurð, til þess eins að monta sig.

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 00:27
af Xovius
Að hætta ekki að vera þekktur fyrir það að vera aldrei fúll :)

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 08:42
af biturk
Að börnin mín verði hamingjusöm og ég eigi nóg af peningum til að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur

sent úr s2

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 09:27
af ZiRiuS
Ég er húmanisti svo minn draumur er að mannkynið uppgötvi möguleikana sína, hætti að hugsa um peninga, völd og græðgi og fari að vinna í að bæta mannkynið.

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 09:46
af Danni V8
Að hafa einverntímann efni á því að fara erlendis og taka þátt í professional akstursíþróttum, á alvöru keppnisbrautum.

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 09:55
af troll face96
ég vill vera ríkur :sleezyjoe

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 12:51
af tanketom

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 13:40
af troll face96
tanketom skrifaði:


kannski of mikið en núna vill ég í þetta :shock:

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 13:58
af Ulli
Að skriðdýr verði gerð leyfileg að hluta á klakanum svo maður þurfi ekki að flyja land til að gera það sem manni dreimir að gera.

Freakr basic :s

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 14:04
af pulsar
Að vera samverkamaður guðs um aldur of ævi..

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 14:05
af Varasalvi
Captaintomas skrifaði:Grafíkin í þessu lífi er alveg ágæt og allt það en ekkert sérstaklega hrifinn af gameplay-inu, en draumurinn er að í næsta lífi verði borðin meira spennandi


Þetta er sandbox líf, gerðu það sem þú vilt.

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 14:28
af kubbur
Ferðast og læra

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 18:05
af urban
Aðaldraumurinn hjá mér er nú að verða pabbi, er reyndar takmarkað að vinna í því, þarf að fara í það mission áður en maður verður mikið eldri.

Draumurinn var nú lengi vel bara að vinna við eitthvað sem að mér finnst mjög gaman að vinna við og er góður í og reynir á mann
það er ég að upplifa núna :)

að lifa lífinu lifandi hefur var alltaf draumur hjá mér, ákvað að hætta að bíða eftir því og láta það gerast (rosalega gott að fatta það að lífið er ekki eitthvað sem að gerist seinna, heldur það sem að gerist núna)

síðan er það auðvitað þetta basic bara eiga pening þannig að maður þurfi ekki að spá í hlutunum
geta t.d. pantað sér dýrasta pakkann hérna án þess að verða var við það. http://www.digitalstormonline.com/compl ... %249%2C880

Annars eru tveir draumar sem að er á 10 ára planinu hjá mér (og búnir að vera í allaveganna 5 ár)
taka þátt í WSOP main event annars vegar og vera í new york á áramótum

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 18:59
af danheling92
urban skrifaði:Aðaldraumurinn hjá mér er nú að verða pabbi, er reyndar takmarkað að vinna í því, þarf að fara í það mission áður en maður verður mikið eldri.

Draumurinn var nú lengi vel bara að vinna við eitthvað sem að mér finnst mjög gaman að vinna við og er góður í og reynir á mann
það er ég að upplifa núna :)

að lifa lífinu lifandi hefur var alltaf draumur hjá mér, ákvað að hætta að bíða eftir því og láta það gerast (rosalega gott að fatta það að lífið er ekki eitthvað sem að gerist seinna, heldur það sem að gerist núna)

síðan er það auðvitað þetta basic bara eiga pening þannig að maður þurfi ekki að spá í hlutunum
geta t.d. pantað sér dýrasta pakkann hérna án þess að verða var við það. http://www.digitalstormonline.com/compl ... %249%2C880

Annars eru tveir draumar sem að er á 10 ára planinu hjá mér (og búnir að vera í allaveganna 5 ár)
taka þátt í WSOP main event annars vegar og vera í new york á áramótum


Ég held að allir vilja eignast helling af pening, en eins og með allt annað, þá hættir maður að njóta þess eftir að maður hefur upplifað það í langan tíma, og byrjar að leita sér að nýjum markmiðum. Er samt ekki að segja að ég væri á móti einni millu $ :)

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mán 04. Mar 2013 20:18
af rapport
Varasalvi skrifaði:
Captaintomas skrifaði:Grafíkin í þessu lífi er alveg ágæt og allt það en ekkert sérstaklega hrifinn af gameplay-inu, en draumurinn er að í næsta lífi verði borðin meira spennandi


Þetta er sandbox líf, gerðu það sem þú vilt.


No guts, no glory

Re: Hver er draumur ykkar?

Sent: Mið 06. Mar 2013 19:41
af bulldog
Eignast stórann páfagauk á einn stórann nú þegar og bæta síðan við riggið mitt 3 tb diskum í raid 10