Síða 1 af 1
Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 14:48
af GuðjónR
Samkvæmt þessari samantekt þá eru Samsung áræðanlegastar og Acer þær sem maður skyldi forðast.
Er frekar hissa á því hvað Apple kemur ílla út úr þessu.
http://www.rescuecom.com/news-press-rel ... -2013.aspx1.Samsung (648)
2. Asus (332)
3. Lenovo/IBM (228)
4. HP (124)
5. Toshiba (118)
6. Apple (76)
7. Dell (60)
8. Sony (54)
9. Acer (28)
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 14:56
af stefhauk
Alveg sammála þessu fór úr Dell yfir í Samsung og ég elska Samsung chronos 7 tölvuna mína.
Flottar útlitslega og nokkuð öflugar.
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 17:16
af flottur
Var að lesa þessa grein á einhverjum fréttamiðili, konan fór að hlæja þar sem hún á samsung
og ég á sony
Annars er ég alveg að fíla Samsung tölvuna hennar, hún er voðalega smooth á alla vegu á meðan mín er svona feitur hlunkur.
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 17:58
af odinn mar
hvernig er dell nr 7, dell bjó til Alienware! nema að þetta sé ekki um gaming tölvur
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 21:28
af biturk
ég á samsung og hún er tær snilld!
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 21:34
af Tiger
GuðjónR skrifaði:Samkvæmt þessari samantekt þá eru Samsung áræðanlegastar og Acer þær sem maður skyldi forðast.
Er frekar hissa á því hvað Apple kemur ílla út úr þessu.
http://www.rescuecom.com/news-press-rel ... -2013.aspx1.Samsung (648)
2. Asus (332)
3. Lenovo/IBM (228)
4. HP (124)
5. Toshiba (118)
6. Apple (76)
7. Dell (60)
8. Sony (54)
9. Acer (28)
Googlaði þetta, og það er hægt að fá þá niðurstöðu sem maður vill greinlega. Bara skoða nógu marga toplista og þú finnur örugglega einn með "þinni" vél á.
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 21:52
af Tesy
Hvernig getur HP og Toshiba verið fyrir ofan Apple?.. mesta ruglið.
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 22:02
af AntiTrust
Megið ekki gleyma því að það er væntanlega verið að taka allar "línur" hjá framleiðendum, sem er svo ómarktækt frá byrjun. Það segir sig alveg sjálft að 100þús kr Lenovo G-línu consumer vél er talsvert líklegri til bilunar en 400þús kr T/W/X línu enterprise vél. Sama má segja með flesta aðra stóra framleiðendur (Nema kannski Apple, ekki svo margar týpur í boði hjá þeim.)
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 22:17
af beggi90
Nennti ekki að leita lengi á síðunni en sá ekki í fljótu bragði hvernig þeir reikna þetta út.
Veit eitthver vinnuaðferðinar þeirra hvernig þeir ákveða hvaða tölva er áræðanlegri en önnur?
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Lau 02. Mar 2013 23:39
af Hargo
beggi90 skrifaði:Nennti ekki að leita lengi á síðunni en sá ekki í fljótu bragði hvernig þeir reikna þetta út.
Veit eitthver vinnuaðferðinar þeirra hvernig þeir ákveða hvaða tölva er áræðanlegri en önnur?
Var einmitt að pæla í því sama.
Sá bara þetta:
"The Rescuecom Computer Reliability Report is a factual, unbiased review of today’s personal computer manufacturers. Rescuecom defines reliability as the physical reliability of the computers plus the after the sale computer support of the manufacturers. "Eru þeir ekki örugglega bara að mæla hardware bilanir? Það er nú lítið að marka þetta ef að þeir eru að taka software vesen og almenna notendaaðstoð með í dæmið.
Eru þeir bara að mæla þessa framleiðendur? Hvað með Packard Bell, Fujitsu, MSI, Gateway og fleiri?
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Sun 03. Mar 2013 01:30
af upg8
Þetta inniheldur meira og minna sama vélbúnaðin og flest allt framleitt af Foxconn hvort sem er, hví skyldi eitthað ávaxtafyrirtæki frá Bandaríkjunum vera að skora eitthvað betur en aðrir. Það er líka hægt að fá fullt af PC tölvum í dag sem kosta meira heldur en sambærilegur Mac.
Ef ég sé tölvu á grunsamlega góðu verði miðað við afköst þá held ég mig frá henni.
Það sem ég hef helst áhyggjur af er brjálæðisleg krafa frá neytendum um að gera hlutina sem smæsta, að allt annað sé bara drasl og úrelt. Það gerir það að verkum að Apple og nokkrir aðrir eru farnir að líma og lóða niður vélbúnað sem gerir það að verkum að það er nær ómögulegt að gera við eða uppfæra nema á algjörlega sérhæfðum verkstæðum. Li-Ion rafhlöðum er líka oft raðað of þétt saman svo þær fá ekki næga kælingu...
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Sun 03. Mar 2013 13:20
af Xovius
upg8 skrifaði:Þetta inniheldur meira og minna sama vélbúnaðin og flest allt framleitt af Foxconn hvort sem er, hví skyldi eitthað ávaxtafyrirtæki frá Bandaríkjunum vera að skora eitthvað betur en aðrir. Það er líka hægt að fá fullt af PC tölvum í dag sem kosta meira heldur en sambærilegur Mac.
Ef ég sé tölvu á grunsamlega góðu verði miðað við afköst þá held ég mig frá henni.
Það sem ég hef helst áhyggjur af er brjálæðisleg krafa frá neytendum um að gera hlutina sem smæsta, að allt annað sé bara drasl og úrelt. Það gerir það að verkum að Apple og nokkrir aðrir eru farnir að líma og lóða niður vélbúnað sem gerir það að verkum að það er nær ómögulegt að gera við eða uppfæra nema á algjörlega sérhæfðum verkstæðum. Li-Ion rafhlöðum er líka oft raðað of þétt saman svo þær fá ekki næga kælingu...
Ég skil svosem kröfuna um smæð og léttleika þegar kemur að fartölvum en þegar þeir gera það sama með borðtölvur (til dæmis nýji iMac og PlayStation tölvurnar) þá er þetta gengið einum of langt.
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Sun 03. Mar 2013 16:37
af Tiger
Þráður hreinsaðu og leikskólakrakkar vinsamlegast beðnir að vera úti og aðrir beðnir að sýna kurteisi
Re: Samsung bestu fartölvurnar?
Sent: Sun 03. Mar 2013 16:55
af Sphinx
Tiger skrifaði:Þráður hreinsaðu og leikskólakrakkar vinsamlegast beðnir að vera úti og aðrir beðnir að sýna kurteisi