Síða 1 af 1
Láta streymendur efnis borga sjónvarpsskatt
Sent: Fös 01. Mar 2013 10:30
af playman
Hvað fynst ykkur um þetta?
Myndi þetta þíða það að niðurhal á myndum og tónlist yrði löglegt?
Ef að þetta er að ske í svíþjóð, þá eru góðar líkur á því að þetta myndi koma hingað, og það kæmi
mér ekki á óvart ef að STEF og/eða SMÁÍS myndu vilja taka þetta upp hérna.
http://www.mbl.is/frettir/taekni/2013/0 ... arpsskatt/
Re: Láta streymendur efnis borga sjónvarpsskatt
Sent: Fös 01. Mar 2013 10:36
af rattlehead
eru allir skattgreiðendur ekki að borga þetta gjald nú þegar?
Re: Láta streymendur efnis borga sjónvarpsskatt
Sent: Fös 01. Mar 2013 10:39
af GuðjónR
playman skrifaði:Hvað fynst ykkur um þetta?
Myndi þetta þíða það að niðurhal á myndum og tónlist yrði löglegt?
Ef að þetta er að ske í svíþjóð, þá eru góðar líkur á því að þetta myndi koma hingað, og það kæmi
mér ekki á óvart ef að STEF og/eða SMÁÍS myndu vilja taka þetta upp hérna.
http://www.mbl.is/frettir/taekni/2013/0 ... arpsskatt/
Annaðhvort er ég að misskilja eða þú, er ekki verið að tala um að fólk sé að komast hjá því að borga sænska ríkissjónvarpinu afnotagjöld með því að horfa á það í tölvu en ekki TV?
Ef svo er þá ættu þeir bara að fara íslensku leiðina, þ.e. nefskatt og málið dautt. Við borgum fyrir þessa strauma með nefskattinum.
Re: Láta streymendur efnis borga sjónvarpsskatt
Sent: Fös 01. Mar 2013 11:07
af playman
hehe
ætli ég sé ekki að miskylja þá eitthvað, en myndi þá nefskatturinn ekki þá hækka eitthvað ef að
þetta kæmi hérna?
Æji maður sér það bara svo fyrir sér að STEF/SMÁÍS myndu reyna að fá eitthvað svona í gegn.
Re: Láta streymendur efnis borga sjónvarpsskatt
Sent: Fös 01. Mar 2013 13:07
af Gislinn
playman skrifaði:hehe
ætli ég sé ekki að miskylja þá eitthvað,
en myndi þá nefskatturinn ekki þá hækka eitthvað ef að
þetta kæmi hérna?Æji maður sér það bara svo fyrir sér að STEF/SMÁÍS myndu reyna að fá eitthvað svona í gegn.
Þetta er nú þegar hér, þú borgar þetta með útvarpsgjaldinu.
Þú getur horft og hlustað á efni frá RÚV á heimasíðunni þeirra eins og er verið að lýsa þarna.
Re: Láta streymendur efnis borga sjónvarpsskatt
Sent: Fös 01. Mar 2013 15:23
af appel
Svíþjóð er eftirbátur Íslands í þessum efnum. Nefskatturinn, þótt hann sé fáránlegur, er mun skárra fyrirkomulag heldur en RÚV geri út fjöldann allan af gluggagægjaragæjum sem reyna að komast að því hvort þú eigir sjónvarp eða ekki. Ég fékk einu einn þannig á dyrabjölluna mína, og mér hefur aldrei fundist ríkisvaldið vaða jafn mikið inn á persónufrelsi og einkalíf mitt og þegar hann vildi endilega að ég hleypti honum inn fyrir dyrnar svo hann gæti séð hvað væri í íbúðinni minni.
Re: Láta streymendur efnis borga sjónvarpsskatt
Sent: Fös 01. Mar 2013 15:26
af beggi90
Aldrei gott þegar maður heyrir talað um að fara "sænsku leiðina".