Síða 1 af 1

Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:17
af kizi86
hvernig finnst ykkur þetta framlag okkar til evrusjónar (eurovision) ?

er allaveganna drullufeginn því að hinn horbjóðurinn skuli ekki hafa verið valið, enda arfaslakt og leiðinlegt með eindæmum...

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:20
af appel
Grænar bólur.... Á RASSINUM.

Nei djók... skál.

"Ég syng" er miklu betra eurovision lag, catchy og flott gella. Hitt er bara svona róleg ballaða með feitum lúða.

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:27
af rango
Njótið, Þetta er allavega betra enn hagkaups auglýsingin.
Verður allavega gert massagrín að okkur í keppnini núna.. Verði ykkur að góðu.


Re: Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:30
af C2H5OH
mér fannst nú ekkert varið í nein af þessum lögum í ár... þar með talið lagið sem varð valið
finnst þetta vera mjög keimlíkt


Damit var of seinn...

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:32
af intenz
Vá, vandræðalegt. Við verðum skömm Evrópu.

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:33
af appel
Það á pottþétt eftir að breyta laginu, enska það og breyta svo það sé hægt að flytja það fyrir 700 milljónum manna.

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:33
af intenz
appel skrifaði:Það á pottþétt eftir að breyta laginu, enska það og breyta svo það sé hægt að flytja það fyrir 700 milljónum manna.

Verður þá enski textinn: "I am Cow"?

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:38
af KermitTheFrog
Does anyone care?

Eurovision er hvort sem er svo mikið flopp að það skiptir engu máli hversu gott eða slæmt lagið er sem við sendum...

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Lau 02. Feb 2013 22:43
af vesley
KermitTheFrog skrifaði:Does anyone care?

Eurovision er hvort sem er svo mikið flopp að það skiptir engu máli hversu gott eða slæmt lagið er sem við sendum...


Við erum svo mikil Eurovision þjóð að við munum aldrei gefast upp.

Annars er ég löngu hættur að horfa á þessa keppni, Facebook er reyndar að fyllast núna af I am Cow "statusum"

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Sun 03. Feb 2013 05:54
af worghal
ég held að við erum svo meðvituð um það að ísland á bara ekkert efni á því að halda eurovision, svo við sendum viljandi lélegt lag út, en svo sendum við einu sinni eða tvisvar óvart allt í lagi lag sem hafnaði í öðru sæti.
en ég vill sjá almennilegt rokk fara út svona einusinni, ekki eitthvað fyrirsjáanlegt popp sem enginn vill. endalaust popp >_<

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Sun 03. Feb 2013 16:00
af Bjosep
Þegar kemur að Söngkeppni evróvarpsins þá borgar sig að taka sig ekki of alvarlega. Taka bara sömu nálgun á þetta og Jesús Kristur

Jesús Kristur skrifaði:Slappaðu af og slefaðu, rektu við og þefaðu.

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Sun 03. Feb 2013 17:06
af GuðjónR
Það er ekki að ástæðulausu að fólk kallar þetta vondulagakeppnina...
1800 manns í Eldborgarsalnum í gær, veit einhver hvað miðinn kostaði?

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Sun 03. Feb 2013 17:21
af dori
2500 kall minnir mig að einhver hafi sagt mér. Sá sami sagði að það hefði verið uppselt á general prufuna sem kostaði 1250 kall.

Fólk er furðulegt.

Re: Ég á líf lagið..

Sent: Sun 03. Feb 2013 20:04
af ManiO
Segi að við fáum Alf Poier til að taka þátt fyrir okkar hönd á næsta ári.