Síða 1 af 1
Lagg í xbmc og plex
Sent: Mán 28. Jan 2013 20:33
af PepsiMaxIsti
Góða kvöldið
Vitið þið hvers vegna það laggar hjá mér xbmc og plex, er með apple tv tengt me snúru og tölvan sem að er með efninu á er líka með snúru.
Öll svör vel þegin, er mjög nýr í þessu
Re: Lagg í xbmc og plex
Sent: Mán 28. Jan 2013 21:38
af Oak
HD efni?
Re: Lagg í xbmc og plex
Sent: Mán 28. Jan 2013 23:10
af Hargo
Ertu með stórt library?
Re: Lagg í xbmc og plex
Sent: Þri 29. Jan 2013 00:28
af PepsiMaxIsti
Hargo skrifaði:Ertu með stórt library?
Já, þetta er pínu stórt, en samt ekki, ekki búinn að setja allt inní það, ætti ég að prufa að splita því upp
Oak skrifaði:HD efni?
Þetta kemur bæði á hd efni og sd efni. Er að velta fyrir mér hvort að ég þurfi að stækka vinnsluminnið í vélinni sem er með öllu efninu.
Re: Lagg í xbmc og plex
Sent: Þri 29. Jan 2013 01:35
af AntiTrust
VIð afspilun á efni í tölvunni ýttiuá O og skoðaðu CPU og VCPU usage - er annaðhvort í 100% usage á meðan afspilun stendur?
Re: Lagg í xbmc og plex
Sent: Þri 29. Jan 2013 01:46
af PepsiMaxIsti
AntiTrust skrifaði:VIð afspilun á efni í tölvunni ýttiuá O og skoðaðu CPU og VCPU usage - er annaðhvort í 100% usage á meðan afspilun stendur?
Hún fer í 100% þó svo að ég sé ekki að spila, en það er bara í smá stund, tölvan með öllu er bara með 2gb í vinnsluminni, þarf ég ekki að bæta við það, eða ætti ég að skoða aðra vél, eða jafnvel að setja allt efnið á flakkara sem að er tengdur með usb við routerinn?
Re: Lagg í xbmc og plex
Sent: Þri 29. Jan 2013 09:24
af AntiTrust
Vinnsluminnið er alveg 99% ekki vandamálið.
Skil ég þig rétt að efnið hiksti líka á AppleTV?
Ertu með kveikt á DXVA2 á tölvunni sem keyrir XBMC/Plex?
Hikstar efnið ef þú spilar það í sömu tölvu í VLC?
Re: Lagg í xbmc og plex
Sent: Þri 29. Jan 2013 09:29
af PepsiMaxIsti
AntiTrust skrifaði:Vinnsluminnið er alveg 99% ekki vandamálið.
Skil ég þig rétt að efnið hiksti líka á AppleTV?
Ertu með kveikt á DXVA2 á tölvunni sem keyrir XBMC/Plex?
Hikstar efnið ef þú spilar það í sömu tölvu í VLC?
DXVA2 hvað er það, er allveg nýr í þessu
Re: Lagg í xbmc og plex
Sent: Þri 29. Jan 2013 09:43
af AntiTrust
PepsiMaxIsti skrifaði:AntiTrust skrifaði:Vinnsluminnið er alveg 99% ekki vandamálið.
Skil ég þig rétt að efnið hiksti líka á AppleTV?
Ertu með kveikt á DXVA2 á tölvunni sem keyrir XBMC/Plex?
Hikstar efnið ef þú spilar það í sömu tölvu í VLC?
DXVA2 hvað er það, er allveg nýr í þessu
Tækni til þess að nýta skjákortið fyrir afspilun á efni fremur en örgjörvann, enda skjákortið oftast betur til þess fallið. Getur virkjað DXVA ef þú ert með samhæft skjákort í stillingum í XBMC og Plex.