Síða 1 af 2
Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 22:05
af Nitruz
Hvað segja kisu eigendur úm kattarmat? Hvaða tegund á að kaupa, hvar er ódýrt?
Langar að fá mér kettling. Vantar góð ráð. Þarf spes fóður fyrir ketlinga?
Má ekki að gefa þeim mjólk eða fisk? Hvernig á að koma í veg fyrir að þeir klóri í sófann, virka þessi sprey?
Endilega látið viskuna flæða
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 22:16
af AciD_RaiN
Góður og ódýr fara ekki alveg saman í þessu. Royal Canin er eina sem ég nota en þegar þú kaupir alltaf 10kg poka á heildsölu þá er það ekki svo dýrt.
Þeir eru með spes kitten fóður.
Mjólk fer illa í magann á þeim og ég veit að ef fiskurinn er saltaður þá er það ekki gott fyrir þá... Ég gef mínum blautmat á laugardögum og stundum smá rækjur með því.
Passaðu að vera með góðan sand líka... Ég mæli með Ever Clean og ég nota alltaf Multi Crystals frá þeim...
EDIT: Hvernig kött ertu að spá í að fá þér?
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 22:35
af Nitruz
Hver er með canin í heildsölu? Vorum að spá í svona standard heimilis kött, eigum ekki efni á pure blood ;D
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 22:43
af AciD_RaiN
Nitruz skrifaði:Hver er með canin í heildsölu? Vorum að spá í svona standard heimilis kött, eigum ekki efni á pure blood ;D
Dýrheimar eru með Royal Canin. En ég verð samt að mæla með Maine Coon... Ég hef líka séð nokkra vera að leiita sér að heimili en þeir eru svo svakalega sterkir persónuleikar... Mér fannst kettir alltaf leiðinlegir þangað til ég fékk mér Maine Coon
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 22:52
af Plushy
Ef ég fæ mér einhverntíman kött þá er það Maine Coon
Geta verið frekar dýrir ef þú kaupir þá, ert heppinn að fá þá gefins!
Hef samt átt bara venjulegan heimiliskött og hann var alveg snilld, tegundin skiptir ekkert öllu máli.
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 22:53
af IL2
Kettir þola illa venjulega mjólk en súrmjólk og jógúrt eru betri. Ef þú (þið) eruð lítið heima yfir daginn mundi ég athuga að vera með tvo. Ekki venja hann við að vera úti yfir nóttina heldur kalla alltaf á hann. Ég gerði svonna kossa hljóð með vörunum og þá komu þær alltaf. Einhverstaðar heyrði ég að ef kettir fengju mikið af fiski, færu þeir meira úr hárum.
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 22:55
af Nitruz
Þetta yrði inniköttur. hehe já ég væri sko meir en til í maine coon. En það eru ýmsar ástæður fyrir því að ég get ekki fengið mér þannig.
Númer 1 er að kella er hálf hrædd við ketti, svo erum við í lítitli íbúð og eigum heldur ekki efni á að fæða svona skrímsli XD
Svo væri það pínu creapy að kötturinn væri jafn stór og barnið haha.
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 23:00
af krissiman
Gef kettinum mínum oft rækjur, þá fer hann í gott skap
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fim 24. Jan 2013 23:38
af tdog
Á svipuðum nótum, hvaða kattasand eruði að nota? Fer hann út um allt og klumpast hann?
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 00:18
af AciD_RaiN
tdog skrifaði:Á svipuðum nótum, hvaða kattasand eruði að nota? Fer hann út um allt og klumpast hann?
Ever Clean klumpast best af öllu því sem ég hef prófað og það kemur ALDREI nein lykt hjá mér...
http://www.everclean.com/
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 00:24
af Viktor
Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég las þennan þráð.
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 01:09
af capteinninn
Sallarólegur skrifaði:Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég las þennan þráð.
Haha svo virðist sem við hundafólk verðum að hætta að halda þessu fram
http://blogs.scientificamerican.com/tho ... -as-tools/
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 01:14
af Victordp
Kötturinn minn fær alltaf fisk á kvöldin (kanski er það þessvegna að öll fötin mín eru hárótt). En hann fær þennan íslanska þurrmat og bara vatn. Hef samt aldrei skilið þetta með það að eiga inniketti. Frekar að fá sér útikött þá eftir kanski ár þarftu ekki að vera með sand þá fer hann bara út að skíta.
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 01:34
af Squinchy
Victordp skrifaði:Kötturinn minn fær alltaf fisk á kvöldin (kanski er það þessvegna að öll fötin mín eru hárótt). En hann fær þennan íslanska þurrmat og bara vatn. Hef samt aldrei skilið þetta með það að eiga inniketti. Frekar að fá sér útikött þá eftir kanski ár þarftu ekki að vera með sand þá fer hann bara út að skíta.
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 01:35
af Victordp
Squinchy skrifaði:Victordp skrifaði:Kötturinn minn fær alltaf fisk á kvöldin (kanski er það þessvegna að öll fötin mín eru hárótt). En hann fær þennan íslanska þurrmat og bara vatn. Hef samt aldrei skilið þetta með það að eiga inniketti. Frekar að fá sér útikött þá eftir kanski ár þarftu ekki að vera með sand þá fer hann bara út að skíta.
Hvað ?
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 01:43
af Squinchy
Victordp skrifaði:Squinchy skrifaði:Victordp skrifaði:Kötturinn minn fær alltaf fisk á kvöldin (kanski er það þessvegna að öll fötin mín eru hárótt). En hann fær þennan íslanska þurrmat og bara vatn. Hef samt aldrei skilið þetta með það að eiga inniketti. Frekar að fá sér útikött þá eftir kanski ár þarftu ekki að vera með sand þá fer hann bara út að skíta.
Hvað ?
Ekki gott fæði hvorki fiskurinn né þessi fiskimjöls matur sem er framleiddur hérna heima.
og að hverja fólk til að fá köttinn sinn til að gera þarfir sínar úti vegna eginn leti er bara kjánalegt IMO og stór ástæða fyrir því að dýr eru illa liðin innan borgarmarka
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 01:48
af AciD_RaiN
Squinchy skrifaði:Victordp skrifaði:Squinchy skrifaði:Victordp skrifaði:Kötturinn minn fær alltaf fisk á kvöldin (kanski er það þessvegna að öll fötin mín eru hárótt). En hann fær þennan íslanska þurrmat og bara vatn. Hef samt aldrei skilið þetta með það að eiga inniketti. Frekar að fá sér útikött þá eftir kanski ár þarftu ekki að vera með sand þá fer hann bara út að skíta.
Hvað ?
Ekki gott fæði hvorki fiskurinn né þessi fiskimjöls matur sem er framleiddur hérna heima.
og að hverja fólk til að fá köttinn sinn til að gera þarfir sínar úti vegna eginn leti er bara kjánalegt IMO og stór ástæða fyrir því að dýr eru illa liðin innan borgarmarka
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 07:09
af kizi86
er með þrjá ketti, royal canin út í gegn fyrir þá, ekkert annað, þe i þurrfóðri, svo fá þeir hráa ýsu stundum, miklu betra fyrir ketti að borða hráan fisk en soðinn, og svona 3-4 í mánuði set ég smá lýsi út í þurrmatinn, og þeir fara þá ekkert úr hárum og feldurinn verður glansandi og fínn
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 08:51
af gissur1
Gef mínum nú bara whiskas, en varðandi það að venja ketti af því að klóra allt og rústa öllu þá hefur gengið vel hjá mér að vera bara með vatn í sprautubrúsa og svo þegar hann er að gera eitthvað af sér þá sprauta ég á hann vatni og öskra NEI! NEI!
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 09:04
af DabbiGj
Victordp skrifaði:Kötturinn minn fær alltaf fisk á kvöldin (kanski er það þessvegna að öll fötin mín eru hárótt). En hann fær þennan íslanska þurrmat og bara vatn. Hef samt aldrei skilið þetta með það að eiga inniketti. Frekar að fá sér útikött þá eftir kanski ár þarftu ekki að vera með sand þá fer hann bara út að skíta.
Ég nenni ekki að þrífa upp eftir köttinn minn og finnst bara þægilegara að láta hann skíta í sandkassa og blómabeð hjá öðrum.
winwin
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 09:23
af AciD_RaiN
DabbiGj skrifaði::sleezyjoe

Þá átt þú bara ekki að eiga dýr...
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 15:45
af kizi86
DabbiGj skrifaði::sleezyjoe
Victordp skrifaði:Kötturinn minn fær alltaf fisk á kvöldin (kanski er það þessvegna að öll fötin mín eru hárótt). En hann fær þennan íslanska þurrmat og bara vatn. Hef samt aldrei skilið þetta með það að eiga inniketti. Frekar að fá sér útikött þá eftir kanski ár þarftu ekki að vera með sand þá fer hann bara út að skíta.
Ég nenni ekki að þrífa upp eftir köttinn minn og finnst bara þægilegara að láta hann skíta í sandkassa og blómabeð hjá öðrum.
winwin
svo þegar þú eignast krakka, þá skiptir þú aldrei á honum, heldur hendir honum út og lætur einhvern nágrannan vorkenna honum svo að hann skiptir um bleyju, og svo þegar hann verður eldri hendirru honum bara ut þegar hann þarf a klosettið? veit þetta er extreme dæmi, en hey, ef getur ekki tekið ábyrgð á dýrinu, í guðana bænum komdu því í hendur á fólki sem hefur snefil af ábyrgðartilfinningu...
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Fös 25. Jan 2013 16:36
af gRIMwORLD
Victordp skrifaði:Kötturinn minn fær alltaf fisk á kvöldin (kanski er það þessvegna að öll fötin mín eru hárótt). En hann fær þennan íslanska þurrmat og bara vatn. Hef samt aldrei skilið þetta með það að eiga inniketti. Frekar að fá sér útikött þá eftir kanski ár þarftu ekki að vera með sand þá fer hann bara út að skíta.
Fyrir nokkru síðan var íslenski þurrmaturinn tekinn úr umferð vegna gruns um að efni sem væru skaðleg kisum væri að finna í matnum. Orsakaði óeðlilega mikla myndun á nýrnasteinum sem svo gat orsakað þvagfærasýkingu og í verstu tilfellum dauða.
Það fór ekki hátt en maturinn er kominn aftur í sölu en dýralæknar sem ég hef rætt við geta og vilja EKKI mæla með þessum mat. Ég sjálfur keypti þennan mat á tímabili og minn köttur var ekki heill eftir það. Pissaði blóði og var nokkurn tíma að jafna sig. Kominn á Royal Kanine og líður mun betur.
Kisur og önnur gæludýr verðskulda að fá mat sem er hollur og góður alveg eins og þið mannfólkið mynduð ekki kaupa Euroshopper í öll mál.
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Lau 26. Jan 2013 11:47
af Nitruz
Takk fyrir öll svörinn, það hlaut að vera ástæða fyrir öllum þessum útiköttum, leti og fáviska.
Já frábært hann skítur bara annarstaðar, þægilegast að láta einhvern anna sjá úm þetta..
Eru þó allavega hreinskilnir. Væri ekker mjög spentur að segja dóttir minna að kisan væri horinn eða væri búið að keyra yfir hana, fyrir utan að leggja það á einhvern að þurfa að lenda í því að keyra yfir dyrið. Tala nú um allan viðbjóðinn sem kötturinn mundi draga inn, allsonar sýkla of jafnvel fugla og músar hræ.
Heimilið mitt verður aldrei Kattar Motel.
Re: Vantar ráð um kisur
Sent: Lau 26. Jan 2013 12:00
af Jón Ragnar
Er með 2 ketti
Domestic Shorthair læðu og Maine Coon högna.
Erum með bæði á Royal Canin fæði ásamt að Royal Canin blautfóður á tillidögum.
Notum Ever Clean Less track sand, fer ekki mikið útum allt, Stóri kötturinn á það til að brasa með sandinn samt
:edit:
Farðu í Kattholt og fáðu kisu þar
Fengum læðuna þar