Síða 1 af 1
Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fim 17. Jan 2013 16:21
af Dagur
Eru einhverjir hérna að nota app í staðinn fyrir sms?
Google talk er mjög þægilegur staðgengill fyrir sms ef að báðir aðilar eru með android en ef maður ætlar að senda á iPhone notanda þá flækjast málin. Ég notaði forrit sem heitir What's App en það er ókeypis á android en kostar fyrir iPhone þannig að mér finnst það ekki vera option, það væri best ef allir notuðu það sama.
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fim 17. Jan 2013 16:22
af Ripparinn
Viber
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fim 17. Jan 2013 16:26
af Vignirorn13
Forrit sem heitir kik. Er frítt í iphone og androit minnir mig.
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fim 17. Jan 2013 16:29
af Dagur
Ég prófaði kik einu sinni og var ekki hrifinn af viðmótinu. Ég ætla að skoða viber. Eru þið að nota þetta mikið?
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fim 17. Jan 2013 16:49
af Vignirorn13
Dagur skrifaði:Ég prófaði kik einu sinni og var ekki hrifinn af viðmótinu. Ég ætla að skoða viber. Eru þið að nota þetta mikið?
Já kik er ekkert spes. En viber er fínt. Mæli með því.
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fim 17. Jan 2013 17:44
af J1nX
ég nota bara þetta venjulega, ekkert að því
fæ sms og get skrifað sms
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fim 17. Jan 2013 18:03
af playman
Ég nota nú bara facebook messenger, það er frítt, virkar á öll kerfi, getur notað það í símanum og í tölvuni
Og það virkar bara alveg eins og SMS í raun.
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fim 17. Jan 2013 18:32
af Frantic
Já facebook messenger er held ég að bjóða uppá það í android að vera sms clientinn ásamt messenger á facebook.
En mér finnst handcent of þæginlegt sms app.
Ég hef notað whatsapp en eiginlega allir sem ég þekki eiga android síma svo það er ekki problem.
Finnst það vera snilld, annars nota ég aðalega fb messenger.
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Fös 18. Jan 2013 22:41
af intenz
Ég hef prófað Viber, Kik, KakaoTalk, WhatsApp og fíla ekki neitt af þessu - aðallega út af því að þetta sýgur batteríið (lélegar útfærslur á push-messaging).
En Google er að vinna að því að sameina Talk, Messenger, Hangouts og Voice. Bara vonandi fara þeir út fyrir Android svo hægt sé að drepa þetta SMS fyrirbæri. Löngu kominn tími til.
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Lau 19. Jan 2013 00:23
af J1nX
svona útaf þú ert að tala um að sjúga batterýið þá finnst mér batterýið helvíti fljótt að klárast á mínum S3 síma.. er eitthvað forrit sem ég get notað til að nýta batterýið betur eða cleana forrit sem eru í gangi sem þurfa ekki að vera í gangi og eru að taka út batterýið, dugar varla í sólarhring batterýið þó að síminn sé í lítilli notkun, í mikilli notkun er hann kannski að duga rúmlega hálfan dag
Re: Eitthvað app sem getur komið í staðinn fyrir SMS
Sent: Lau 19. Jan 2013 01:15
af intenz
J1nX skrifaði:svona útaf þú ert að tala um að sjúga batterýið þá finnst mér batterýið helvíti fljótt að klárast á mínum S3 síma.. er eitthvað forrit sem ég get notað til að nýta batterýið betur eða cleana forrit sem eru í gangi sem þurfa ekki að vera í gangi og eru að taka út batterýið, dugar varla í sólarhring batterýið þó að síminn sé í lítilli notkun, í mikilli notkun er hann kannski að duga rúmlega hálfan dag
Það slæma er að það getur verið svo margt. Símkerfið (signal / roaming), birtustigið á skjánum, WiFi, 3G, GPS, önnur öpp, ofl.
Ef þú ert ekki búinn að roota þá mæli ég með því að setja þetta upp til að fylgjast með batteríseyðslunni:
https://play.google.com/store/apps/deta ... amlabs.bbm