Síða 1 af 1

Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 16:15
af Bux
Daginn

Við félagarnir uppgötvuðum helvíti sniðuga leið til þess að horfa á HM án þess að borga okurgjaldið hjá Stöð2 en samt fengið að njóta þess að heyra íslenska rödd lýsa leiknum.

VLC býður upp á að stream-a audio file-a og slóðin á RÁS2 er http://178.19.48.174:1935/ruv/ras2.ruv. ... ?key=56713
Takið þessa slóð og smellið henni í VLC -> Media -> Open Network Stream.. og skellið henni inn. Síðan kveikiði á stream-i af leiknum einhverstaðar á netinu.

Video stream-ið er örugglega ekki syncað við útsendinguna hjá RÁS2 núna, en til þess að laga það er hægt að ýta á Ctrl+E í VLC, fara þaðan inn í Synchronization og bæta við smá Delay á hljóðið þangað til það hljómar vel.

Enjoy.

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 16:19
af Viktor
Góð leið! Sérstaklega með syncið.

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 16:23
af beatmaster
Þú herra minn ert algjör snillingur, takk miljón sinnum :happy

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 16:26
af Tiger
Sorry en mér finnst helsti ókostur þess að horfa á þetta á stöð2 einmitt vera íslensku þulirnir.....Sama var með handboltan á olympíuleikunum, horfði frekar á þá á SKY án nokkura þula en á RUV.

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 16:31
af ZiRiuS
Snilld! Ég ætlaði einmitt að fara að spurja hvernig maður delayar live streami í VLC.

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 16:34
af sibbsibb
Já sammála með þulinn... hann var að segja eitthverja tóma steypu í gær bara amk og það fór vel í taugarnar á mér. Hefði kveikt rás 2 til að fá betri þul ef ég hefði veirð með það tengt rétt. En svo er líka leikurinn í kveld sýndur á DR1 ef einhver er með aðgang að því. Ég ætla horfa á hann þar með kveikt á rás 2.

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 19:18
af ZiRiuS
Fuuuu, DR1 er langt á undan Rás2, hvað getur maður gert?

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 19:32
af sibbsibb
já þessi linkur fyrir vlc virkar ekki hjá mér :(

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 19:32
af Klaufi
Hvaðan ert þú að streyma leiknum, þ.e. myndinni?

Búinn að prufa þrjá linka, virðist allt vera sama streamið af DR1 eða linkurinn sem er í hinum þræðinum.

Þetta laggar all hræðilega (Gæti verið mín megin) og er langt á undan hljóð streyminu.

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 19:36
af Halli13
ég er að horfa á hann hér, ekkert spes gæði en laggar allavegna ekkert

http://www.thefirstrow.eu/watch/163613/ ... nmark.html

Er eitthver lausn á að delay-a útsendingunni af rás 2?

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 19:38
af ZiRiuS
Ég er með á DR1 á myndlykli Símans og þar er myndin langt á undan hljóði.

Eina hljóðið sem ég finn sem er á undan er flash playerinn á ruv.is en ég kann ekki að setja delay á það :/

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 19:58
af sibbsibb
já sama hér... er með ddr1 í sjónvarpinu en kann ekki að streama rás 2 í gegnum vlc.

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 20:00
af Klaufi
sibbsibb skrifaði:já sama hér... er með ddr1 í sjónvarpinu en kann ekki að streama rás 2 í gegnum vlc.


CTRL-N > Paste link > Ýta á enter..

Btw takk fyrir linkinn Halli13, virkar vel, hlusta bara á hljóðið langt eftirá ^^

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 20:07
af sibbsibb
Ég kann að ýta á Crl-n paste link og enter... takk fyrir ábendinguna. Kemur bara error hjá mér alltaf File reading failed:
VLC could not open the file....

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 20:09
af ZiRiuS

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 20:16
af Klaufi
ZiRiuS skrifaði:mms://3.efstaleiti.rs.ruv.is/ras2.ruv.is

Þetta virkar



Snilld!!!

4Sek er flott seinkun btw ef einhver er að tune-a inn!

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 20:34
af axyne
Ég er að nota http://www.virtualaudiocable.net/ og http://www.daansystems.com/radiodelay/ til að synca hljóðið frá rás2

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 21:37
af Greykjalin
Má ég forvitnast hvernig þú náðir að finna slóðina á strauminn hjá RÚV?
Var eitthvað a grúska í þessu á Sunnudaginn án árangurs..

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 22:41
af Moldvarpan

Re: Handbolta Hakk

Sent: Mið 16. Jan 2013 23:15
af Saber
Við félagarnir höfum einmitt undanfarin tvö ár verið að notast við þessa aðferð til að horfa á Eurovision með mynd frá RÚV HD og hljóði/lýsingu af X-inu... sem er bara snilld.