Síða 1 af 1
Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 00:30
af Stuffz
Ég keypti mér 2 gleraugu á kreppugler.is/ síðla sumars 2012 og svo 2 gleraugu í Glæsibæ, var að prófa mismunandi tegundir
allavegana varðandi kreppugler þá ég hafði ekki spáð í það fyrr útaf hverju nákvæmlega en ég var að fá sigg aftan á eyrunum og inní eyrunum reglulega, en ég hafði verið að nota kreppugleraugu samhliða hinum gleraugunum sem ég keyti í glæsibæ og svo þegar ég var að fara í ferðalag nýverið og tók fram ferðatösku sem vat með einu af þessum kreppugleraugum í boxi sem svona backup gleraugu sem ég hafði tilbúið í töskunni allavegana ég opnaði boxið sem hafði verið lokað í nokkra mánuði og sá ég þetta:
eitthvað hvítt efni á plastinu, og ég fór að leggja tvo og tvo saman.
og hætti ég að nota kreppu gleraugun í nokkrar vikur núna og siggið er farið, ég get bara dottið í hug að annaðhvort er ég með ofnæmi fyrir þessu plasti þarna á endanum eða það er gallað svo var að spá í hvort aðrir hafi reynslu af þessu líka,
hvað finnst ykkur?
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 00:34
af AciD_RaiN
Ég fékk mér gleraugu frá kreppugler og var bara alltaf með sár á bakvið eyrun og á nefinu eftir þau enda algjört drasl. Þú borgar fyrir gæði
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 00:39
af Xovius
Ég hef undanfarið verslað á
www.zennioptical.com þar sem ég fæ góð gleraugu og þau dýrustu hjá þeim kosta um 45$
Ég er með missterkt eftir augum og gleraugun sem ég er með núna eru um 1 og hálfs árs gömul og enn fín
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 00:45
af axyne
Ég er að nota gleraugu frá zennioptica, sem er held ég það sem kreppugler pantar frá og engin vandamál hjá mér, þú ert öruglega bara með ofnæmi eða eitthvað óþol gangvart plastinu sem er í kreppu umgjörðinni.
hef séð svipað hvítt stuff á 50þús króna gleraugum sem ég keypti í einhverri búð í kringlunni, fer þetta ekki af með heitu vatni og smá kroppi ?
Fékk mín gleraugu sem ég nota núna, titanum memory umgjörð með 1.5gleri, mismunandi styrkleiki, sjónskekkja og glampavörn á rétt rúmar 3þús krónur ísl í bréfalúguna hjá mér í gegnum zennioptical og gæti ekki verið sáttari
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 00:47
af Haxdal
Færð varla sigg útaf ofnæmi, væri þá frekar að eyrun yrðu rauð og viðkvæmari fyrir snertingu ef þetta væri ofnæmi. Er ekki málið bara að gleraugun eru of þröng og eru sífellt að nuddast í eyrað, þegar þú kaupir gleraugu í gleraugna búð þá lagar sjóntækjafræðingarnir yfirleitt hvernig gleraugun liggja að hausnum á manni (allavega gerðu það síðast þegar ég keypti "alvöru" rándyr gleraugu hérna á klakanum), en dótið frá Kreppugler/Zenni er bara beint frá verksmiðjunni svo þú þarft sjálfur að beygja þau til svo þau aðlagist rétt að hausnum (AciD_RaiN: gleymdirðu kannski að gera það?) Og þetta hvíta drasl er líklegast bara skítur/dauðar húðflögur sem safnast saman bakvið eyrun og festast svo við arminn þegar þú lætur gleraugun á þig, ég fæ þetta stundum á gleraugunum mínum og þurrka þetta bara af með pappír.
svo mæli ég með að kaupa gleraugun bara beint frá
http://zennioptical.com/ og sleppa milligönguaðilanum (
Kreppugler er bara endursöluaðili fyrir Zenni sem smyr ofaná), Gleraugun sem ég er nota núna og varagleraugun mín eru bæði frá Zenni og hef ég sparað nokkra tugi þúsunda á þeim viðskiptum. Ég var efins fyrst þegar ég pantaði gleraugu þarna svo ég lét augnlækninn minn refractor mæla þau og þau voru alveg einsog receptið sagði til um.
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 00:49
af Stuffz
AciD_RaiN skrifaði:Ég fékk mér gleraugu frá kreppugler og var bara alltaf með sár á bakvið eyrun og á nefinu eftir þau enda algjört drasl. Þú borgar fyrir gæði
amm alveg rétt enda keypti ég mér 2 ágætis gleraugu í glæsibæ líka
ég ætla nú að reyna að kaupa annað plast þarna á endann í eitthverri gleraugnaversluninniog sjá hvort þetta lagast ef ekki bara til að fá frekari niðurstöðu í málið.
EDIT: er með hjálm stundum í vinnunni og húfu undir útivið svo gæti verið að hafa áhrif, annars einsog ég nefndi áður þá lagaðist þetta eftir að ég hætti að nota kreppugleraugun og fór bara að nota gleraugun sem ég keypti í glæsibæ.
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 00:59
af Haxdal
Líka ef þú færð þér svona gleraugu með "venjulegum" örmum og þetta sé plastið sem þú ert ekki að þola þá ættirðu að geta rifið plast draslið af og fengið "venjulegt" plast/gúmmí í næstu gleraugna búð til að renna yfir arminn í staðinn, ég fékk þannig nokkrum sinnum á gömlu (pre-zenni) gleraugunum mínum þar sem plastdraslið var oft að detta af þeim gleraugum
<- svona örmum.
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 01:01
af Stuffz
Haxdal skrifaði:Líka ef þú færð þér svona gleraugu með "venjulegum" örmum og þetta sé plastið sem þú ert ekki að þola þá ættirðu að geta rifið plast draslið af og fengið "venjulegt" plast/gúmmí í næstu gleraugna búð til að renna yfir arminn í staðinn, ég fékk þannig nokkrum sinnum á gömlu (pre-zenni) gleraugunum mínum þar sem plastdraslið var oft að detta af þeim gleraugum
<- svona örmum.
amm
akkúrat það sem ég er að spá í að gera.
vantaði bara að fá að vita hvað margir aðrir væru að lenda í þessu sama.
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 01:02
af J1nX
senda þessir zennioptical til íslands?
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 01:09
af Haxdal
J1nX skrifaði:senda þessir zennioptical til íslands?
jamm, tekur 3-4 vikur standard shipping og ég fékk express sendingu frá þeim á 3 dögum í fyrra.
Re: Kreppugler.is
Sent: Þri 15. Jan 2013 08:05
af fannar82
Keypti mér gleraugu frá reykjavík eyes fyrir um hálfu ári, get ekki sagt að ég sé eftir því
kostuðu reyndar smá
Re: Kreppugler.is
Sent: Mið 16. Jan 2013 01:28
af J1nX
ætli maður skelli sér þá ekki fljótlega til augnlæknis til að ath hversu mikið sjónin hefur versnað á síðustu 2 árum útaf endalausri notkun á linsum og panti sér svo gleraugu
Re: Kreppugler.is
Sent: Sun 20. Jan 2013 00:01
af Stuffz
já og vitið þið afhverju flest þessi gleraugu eru svona dýr í dag?
það er víst bara eitt risastórt fyrirtæki sem á eða framleiðir og selur fyrir flest öll þekktu merkin sem aftur hefur gert þeim kleyft að okra á gleraugum
ætli verkalýðsfélög í öðrum löndum séu með samskonar sponslur fyrir meðlimi við gleraugnakaup og eru hérlendis?
Re: Kreppugler.is
Sent: Sun 20. Jan 2013 00:19
af sakaxxx
Stuffz skrifaði:já og vitið þið afhverju flest þessi gleraugu eru svona dýr í dag?
það er víst bara eitt risastórt fyrirtæki sem á eða framleiðir og selur fyrir flest öll þekktu merkin sem aftur hefur gert þeim kleyft að okra á gleraugum
ætli verkalýðsfélög í öðrum löndum séu með samskonar sponslur fyrir meðlimi við gleraugnakaup og eru hérlendis?
varstu að horfa á þetta?
http://www.cbsnews.com/video/watch/?id=7424700n ég hafði ekki hugmynd um að gleraugna buisnesinn væri nánast í eigu eitt fyrirtæki
Re: Kreppugler.is
Sent: Sun 20. Jan 2013 00:45
af Stuffz
sakaxxx skrifaði:Stuffz skrifaði:já og vitið þið afhverju flest þessi gleraugu eru svona dýr í dag?
það er víst bara eitt risastórt fyrirtæki sem á eða framleiðir og selur fyrir flest öll þekktu merkin sem aftur hefur gert þeim kleyft að okra á gleraugum
ætli verkalýðsfélög í öðrum löndum séu með samskonar sponslur fyrir meðlimi við gleraugnakaup og eru hérlendis?
varstu að horfa á þetta?
http://www.cbsnews.com/video/watch/?id=7424700n ég hafði ekki hugmynd um að gleraugna buisnesinn væri nánast í eigu eitt fyrirtæki
jamm frá október
en sú "samkeppnis-sjónhverfing"
bara alltíeinu mundi eftir þessu í samhengi við gleraugna umræðuna hérna
ég bara velti fyrir mér hvernig niðurgreiðslu peningar verkalýðsfélaganna hérna eru að fara beint í vasann á þessu eina fyrirtæki, betra að verja þeim í að ná góðum samningum við framleiðendur í kína fyrir félagsmenn og minnka smá í leiðinni óþarfa fjárstreymi úr landinu, held þeir myndu líka geta fylgt eftir vandkvæðum með gæðin ef á við.
Re: Kreppugler.is
Sent: Sun 20. Jan 2013 02:18
af ZiRiuS
Laser er málið, ein besta fjárfesting sem ég hef gert!