Síða 1 af 1

1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 20:14
af GuðjónR
Crucial M500 1TB undir $600 og DDR4 á markað síðar á þessu ári:
http://www.theinquirer.net/inquirer/new ... ed-1tb-ssd

og

http://www.computerworld.com/s/article/ ... _under_600

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 21:16
af mundivalur
Já fer að koma að uppfærslu :happy

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 21:20
af bulldog
:happy

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 21:47
af GuðjónR
Ég er búinn að velta fyrir mér 500GB uppfærslu, þ.e. vera með 1x 250 fyrir system og 500 fyrir þá iPhoto, videovinnslu og annað dót...(iPhoto library er 252GB) þannig að 500GB væri lágmark eða hreinlega splitta myndasafninu.
Eftir að ég las þessa grein þá er 500GB pælinginn komin á HOLD!

Þessi töff gæti trúað að hann verði kringum 100k hérna heima.
Veit ekki hversu áreiðanlegur hann er samt...en núna er greinilega allt að gerast í SSD málum.

Ég ætla að verða á undan bulldog að kaupa 1TB SSD :happy

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 21:58
af bulldog
Mynd

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 22:06
af playman
GuðjónR skrifaði:og DDR4 á markað síðar á þessu ári:

Og ég sem var að kaupa vélina :crying :crying :crying :crying :crying

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 22:28
af Klemmi
playman skrifaði:
GuðjónR skrifaði:og DDR4 á markað síðar á þessu ári:

Og ég sem var að kaupa vélina :crying :crying :crying :crying :crying


Tekur yfirleitt 6-12 mánuði fyrir nýja minnistegund að verða hagstæð samanborið við kynslóðina á undan, svo no worries :)

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 22:29
af mundivalur
Playman það er svo gott fyrir markaðinn :happy

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 22:33
af Xovius
Klemmi skrifaði:
playman skrifaði:
GuðjónR skrifaði:og DDR4 á markað síðar á þessu ári:

Og ég sem var að kaupa vélina :crying :crying :crying :crying :crying


Tekur yfirleitt 6-12 mánuði fyrir nýja minnistegund að verða hagstæð samanborið við kynslóðina á undan, svo no worries :)

Og þeir segja að þetta komi á markað seint á árinu, svo það er ekki fyrr en seinnipart 2014 sem þetta fer að verða almennilegur kostur...

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Mán 14. Jan 2013 22:45
af playman
Jæja best að sækja handklæði og hætta þessu "volæði" :D

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Þri 15. Jan 2013 08:57
af GuðjónR
DDR4, 5 eða 6 skiptir ekki máli, en 1TB SSD það er eitthvað sem bragð er af!

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Þri 15. Jan 2013 09:51
af KermitTheFrog
Ég á samt eftir að eiga mjög erfitt með að setja 1TB af efni á SSD disk til að byrja með. Ef SSD diskur hrynur er mjög erfitt að ná af honum gögnunum.

En svo á maður náttúrulega ekki að geyma mikilvæg gögn á stökum miðli. Verður gaman að setja fleiri TB af SSD í RAID :)

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Þri 15. Jan 2013 10:01
af GuðjónR
KermitTheFrog skrifaði:Ég á samt eftir að eiga mjög erfitt með að setja 1TB af efni á SSD disk til að byrja með. Ef SSD diskur hrynur er mjög erfitt að ná af honum gögnunum.

En svo á maður náttúrulega ekki að geyma mikilvæg gögn á stökum miðli. Verður gaman að setja fleiri TB af SSD í RAID :)

Þess vegna er góð regla að eiga backuð af því sem maður má ekki tapa. Þá á líka við um venjulega HDD. Vera með skjölin sín og myndirnar á backup.

Re: 1TB SSD diskar að verða raunhæfur kostur

Sent: Þri 15. Jan 2013 10:02
af playman
KermitTheFrog skrifaði:Verður gaman að setja fleiri TB af SSD í RAID :)

Úff það verður dýrt til að byrja með, en það er eithvað sem mér langar líka að gera.