Síða 1 af 3

Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 22:46
af vesley
ekki mikið búið en með því verra sem ég hef séð.

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 22:58
af eriksnaer
Sammála, lang siðan eg hef horft a eitthvað jafn leiðinlegt...

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:03
af lifeformes
Þetta er ekki fyndið hvað það er lèlegt :thumbsd

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:08
af svanur08
Skaupið hefur aldrei verið gott, enda mjög illa leikið.

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:16
af bAZik
Ætlaði að reyna klára en gat það ómögulega.

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:18
af thossi1
Var ekki líka verið að eyðileggja jólasveininn fyrir krökkum þarna einhversstaðar?

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:21
af Klemmi
Hvaða erindi áttu nauðgunardjókar inn í áramótaskaupið?

Djöfulsins vanvitar eru þetta, skapi næst að hella úr skálum reiði minnar vegna þessa Skaups á kommentakerfi DV.

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:23
af paze
Það þarf að fara leggja þetta drasl niður.

Ég er löngu hættur að horfa á þetta og mér blöskrar alltaf jafn mikið þegar einn hálfvitinn á eftir öðrum þarf að 'horfa á skaupið' áður en nokkuð getur gerst á gamlársdag.

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:26
af beggi90
Glotti yfir DV dótinu, samt meiri sannleikur þar en skop.

Fyrir utan það var ég aðallega á klukkunni að bíða eftir að það kláraðist.

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:29
af IL2
Að mörgu leyti samt mjög beitt pólitíkst.

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:30
af GuðjónR
Þetta var besta skaup í langan tíma!

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:33
af littli-Jake
Djöfulsins væl er þetta í ikkur. Mér fanst þetta ágætis skaup.

Held að megnið af ykkir sem eruð að hvarta séuð einfalega ekki að ná bröndurunum því að þið hafið ekkert filgst með innlendum fréttum.

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:34
af dori
Það eina sem var fyndið og relevant var kommentakerfisdjókurinn. Hitt var annað hvort eitthvað mjög lítið relevant eða eitthvað þannig að maður klóraði sér í hausnum og sagði "ok, ég held ég muni af hverju þeir eru að segja þetta... en þetta er ekkert fyndið".

Ég hefði örugglega hlegið meira yfir klukkutíma löngum upplestri úr Íslenzkri fyndni (örugglega ekki margir sem vita hvað það er en það er ekki fyndið) bara útaf því hversu súrrealískt það hefði verið.

IL2 skrifaði:Að mörgu leyti samt mjög beitt pólitíkst.

Er það eitthvað sem þetta skaup á að vera?

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:39
af IL2
Nei, en samt. Það má alveg vera það EF það gengur á flokkapólitík.

p.s Ég veit hvað er og hef lesið Íslenska fyndni. Þú veist hvaðan fyrstu minkarnir sluppu? (Nema þú sért X-B)

Re: Skaupið

Sent: Mán 31. Des 2012 23:49
af worghal
Eg hlo her og þar, eins og med ad draga ysur og borga veidi gjaldid :lol:
En annars var þetta heldur slapt.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:41
af Benzmann
gafst upp eftir 25min

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:42
af appel
Þetta var hrottalega leiðinlegt skaup, með þeim verstu sem ég hef séð.

Virðist bara verið RÚV að gera grín að sjálfu sér, og Ólafi Ragnar.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:44
af ASUStek
þetta skaup er ekki fyrir fjölskyldu fólk... einum of langt farið með blót og asnaskap.

but i ate some oranges and it was k.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:45
af dr.splattenburgers
IL2 skrifaði:Að mörgu leyti samt mjög beitt pólitíkst.


Er 100% sammála þessu.

Ætla ekki að halda því fram að sjallanir séu eitthvað aðdáunarverðir en það fór samt í tauganar á mér hvernig skaupið virðist hafa ráðist munn harðar á þá heldur en samfó og VG þótt svo að sjallanir séu ekki einu sinni í ríkisstjórn og þótt svo að ríkisstjórn samfó og félaga sé ekkert búinn að vera neitt betri. Þetta lag þarna í lokin var í raunni ekkert nema bara eitt langt áróðurslag gegn sjálfstæðisflokkinum.

Þá var líka gert mikið "grín" af Ólafi.

Ég er sammála því sem afi minn (sem er enn á lífi þrátt fyrir háan aldur) sagði: Þetta skaup er krataskaup.

Pólítískur áróður dulbúinn sem "grín".

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:46
af AciD_RaiN
Litla 8 ára frænka mín var að horfa á þetta -_- "fokking skíttu í rassgatið á þér drullutussan þín" osfr og "þú ert of gamall til að trúa á jólasveininn" þetta var svona meðal þess sem hún rak upp stór augu... Fannst þetta bara engan vegin við hæfi...

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:48
af Garri
Hugsa að þegar grín er jafn pólitískt og þetta skaup var, þá skiptist áhorfendur í tvo flokka. Þá sem eru sammála gríninu og hina, sem verða sárir undan.

Þarna var verið að gera mikið grín að sjálftökuliðinu og sjálfsagt svíður einhverjum guttunum undan.. réttilega eður ei.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:48
af KermitTheFrog
Veit ekki alveg hvaða væntingar fólk hefur fyrir þessu blessaða skaupi...

Ég hló við og við, en ég var ekkert að búast við 45 mínútna hláturskasti.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:53
af Haxdal
leiðinlegasta skaup sem ég hef séð í langan tíma.. amk var hægt að hlæja að einhverju reglulega í skaupinu í fyrra en ég var varla að meika þetta skaup.

2 góðir sketchar, þegar stjórnin vissi ekki hverjir voru ráðherrar og DV kommentakerfissketcharnir ..

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:57
af þorri69
mín skoðun.

Re: Skaupið

Sent: Þri 01. Jan 2013 00:58
af gRIMwORLD
Mér fannst stöku brandarar þarna fyndnir, dv skotið var fyndið í fyrsta skiptið en svo varð það algjör óþarfa óþverrakjaftakennsla fyrir börnin sem voru að horfa á skaupið. Heilt yfir þá fannst mér skaupið vera ca 10% fyndið og rest svona lala eða bara út í hött.

Burðarstoðin var svo lag sem ég vonaði innilega að yrði ekki stór hluti af skaupinu, en var það svo, og svona leiðinlega útfært að mér var gráti næst.

Jæja nú er ég búinn að pústa yfir skaupinu :)