Síða 1 af 1

Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 01:31
af playman
Bara svona forvitni hvað aðrir eru búnir að versla sér.
Endilega póstið myndum af gósinu :evillaugh
Bjóst ekki við því að þurfa að nefna þetta en...... PLEASE KEEP ON TOPIC! þeim sem er svo í mun að þurfa að rífast hvar maður verslar flugelda
í gvuðana bænum gerið ykkar eigin þráð og látið aðra þræði vera.
Mynd

Mynd

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 01:39
af Yawnk
Jesús :shock: Hvað fóru margir hundraðþúsund kallar í þennan pakka :happy

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 01:46
af playman
Yawnk skrifaði:Jesús :shock: Hvað fóru margir hundraðþúsund kallar í þennan pakka :happy

ekkert svo margir, þegar að maður er búin að versla við sama aðilan aftur og aftur, þá fær maður góða díla ;)

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 02:42
af bulldog
vóóóóó!!!! NICE !!!!! :happy

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 02:47
af ezkimo
:money :money :money :money :money


Munum bara að versla við björgunarsveitirnar!

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 03:24
af Ripparinn
ezkimo skrifaði::money :money :money :money :money


Munum bara að versla við björgunarsveitirnar!


Akkúrat, engin leiðindi eða neitt en þegar þú þarft hjálp geturu hringt í gæjann sem seldi þér þetta og gáð hvort hann komi ekki og hjálpi þér :)
Annars, vona a þú hafir gaman og eigir góð áramót :)

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 03:49
af DabbiGj

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 13:37
af ingibje
Ripparinn skrifaði:
ezkimo skrifaði::money :money :money :money :money


Munum bara að versla við björgunarsveitirnar!


Akkúrat, engin leiðindi eða neitt en þegar þú þarft hjálp geturu hringt í gæjann sem seldi þér þetta og gáð hvort hann komi ekki og hjálpi þér :)
Annars, vona a þú hafir gaman og eigir góð áramót :)


þetta eru ekkert nema leiðindi, mér finnst allt í lagi að fólk versli við hvern sem það vill án þess að verða fyrir áreiti vegna þess.

Björgunarsveitirnar eru með langstæðstu sneiðina af markaðnum og mér þykir bara gott að það sé smá aðhald svo venjulegi jón geti keyft sína flugelda á sanngjörnu verði.

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 14:12
af juggernaut
Skaust í gær.
Mynd

Uploaded with ImageShack.us

Nokkrar stórar í pokunum

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 14:23
af playman
Ripparinn skrifaði:
ezkimo skrifaði::money :money :money :money :money


Munum bara að versla við björgunarsveitirnar!


Akkúrat, engin leiðindi eða neitt en þegar þú þarft hjálp geturu hringt í gæjann sem seldi þér þetta og gáð hvort hann komi ekki og hjálpi þér :)
Annars, vona a þú hafir gaman og eigir góð áramót :)

Sorry en þetta er ekkert nema leiðindi hjá þér, ég hef aldrey og ég meyna aldrey þurft á aðstoð björgunarsveita á að halda og mun vonandi aldrey
á þeim að halda 7-9-13.

Ef svo nokkurn tíma færi svo að ég þyrfti að fá aðstoð fra þeim, þá myndi ég alveg sjá mér sóman í að styrkja þá, og myndi gera það með glöðu geði.
En hvað veist þú um hvort að ég sé búin að styrkja þá? Fyrir mitt leiti fynst mér gáfulegra að styrkja þá um 10.000kr með millifærslu heldur en að versla af þeim flugelda
fyrir 15-20.000kr

Þessi þráður á og átti ekkert að fara út svona rifrlildi, ef þið þurfið að rífast um þetta endilega gerið þá sér þráð fyrir það, takk.

DabbiGj skrifaði:http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/12/28/brotist_inn_a_flugeldasolu/

:guy

hjúkk sem betur fer er ég á akureyri :-"


Nóg af off-topic

Nice one juggernaut, 100kall þarna?
voru þessar rakettur ekkert dýrar? sé að þú ert með slatta af þeim. þær kosta alveg morðfjár og báða handleggi hérna.

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 14:26
af intenz
Ég keypti bara bjór fyrir allan peninginn. :japsmile

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 14:35
af juggernaut
playman skrifaði:

Nóg af off-topic

Nice one juggernaut, 100kall þarna?
voru þessar rakettur ekkert dýrar? sé að þú ert með slatta af þeim. þær kosta alveg morðfjár og báða handleggi hérna.


Kassarnir 3 eru 150k restin var aðeins ódýrari. En við erum tveir með þetta og fáum mjög góðan afslátt. Eftir að hafa prufa eina svona tertu í fyrra kemur ekkert annað til greina.
Stærsta terta björgunarsveitanna kemst ekki nálagt í gæðum og verði, ég styrki þá frekar öðruvísi

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 14:43
af rapport
Maður veit hvernig vinagreiðarnir eru í þessum flugeldabransa.

Sumir fá allt fyrir ekkert og álagningin er nánast í þúsundum prósenta fyrir almenna borgarann.

Sé ekki tilganginn við að setja peninga í þessa hít, sérstaklega ekki til einkaaðila.

Kaupi blys, stjörnuljós oþh. hjá skátunum fyrir börnin og mun njóta flugeldanna frá öðrum þar til STEF fer að rukka mig fyrir að horfa á þá.

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 15:00
af juggernaut
rapport skrifaði:Maður veit hvernig vinagreiðarnir eru í þessum flugeldabransa.

Sumir fá allt fyrir ekkert og álagningin er nánast í þúsundum prósenta fyrir almenna borgarann.

Sé ekki tilganginn við að setja peninga í þessa hít, sérstaklega ekki til einkaaðila.

Kaupi blys, stjörnuljós oþh. hjá skátunum fyrir börnin og mun njóta flugeldanna frá öðrum þar til STEF fer að rukka mig fyrir að horfa á þá.


Þú þarft samt ekki annað en að vera vinur stjörnuljósa á FB til að fá 30% afslátt hjá þeim. En í guðanna bænum ekki gefa STEF neinar hugmyndir ;)

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 16:16
af rapport
:-#

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 20:08
af Hargo
Einn svona pakki fyrir sjálfan mig:
Mynd

Einn svona krakkapakki fyrir litla guttann:
Mynd

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Lau 29. Des 2012 22:23
af pattzi
Mynd

Svona

og 3 svona fyrir mig :)

Mynd

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Sun 30. Des 2012 00:01
af Dúlli
Verslaði tvö svona stykki handa mér og kærustunni, All hell will break lose woop woop :happy :megasmile

Mynd

Re: Einhverjir búnir að versla flugelda?

Sent: Sun 30. Des 2012 00:03
af hfwf
Kaupi enga flugelda þetta árið frekar en önnur, en styð sveitirnar með peningagjöfum allt árið í kring og nýt svo bara ofsans frá 23:00 til 01:00 með yndisauka.