Síða 1 af 1
Laugarásbíó [Þarf svar fljótt]
Sent: Fös 28. Des 2012 20:50
af Tesy
Planið var að fara a The Hobbit í dag í laugarásbíó klukkan 22:00 en miðarnir eru greinilega uppseldir.. En það er sýning klukkan 23:00 nema það að það stendur ekki 48r bakvið sýninguna eins og það stendur á klukkan 22:00, þýðir það þá að þetta sé bara venjuleg sýning eða eru allar Hobbit sýningar í Laugarásbíó í 48fps?
Re: Laugarásbíó [Þarf svar fljótt]
Sent: Fös 28. Des 2012 20:56
af cartman
Ég myndi nú bara hringja í laugarásbíó fyrst þú þarft svar fljótt
Re: Laugarásbíó [Þarf svar fljótt]
Sent: Fös 28. Des 2012 20:57
af Jón Ragnar
Stendur 48R fyrir aftan ef hún er í 48 römmum
Re: Laugarásbíó [Þarf svar fljótt]
Sent: Fös 28. Des 2012 20:59
af Tesy
Æj, ákváðum að fara frekar bara á morgun og kaupa miðana fyrr. Takk fyrir þetta samt
Re: Laugarásbíó [Þarf svar fljótt]
Sent: Fös 28. Des 2012 22:36
af oskarom
Það er algjört möst að sjá þessa mynd í 48fps, fyrstu mínúturnar eru pínu skrítnar þar sem maður þarf að venjast þessu aðeins.
Uppáhalds aukafídusinn minn sem ég tók eftir var að þessi varpi er mun bjartari en eldri 3D varpar og var þetta því fyrsta 3D myndin sem ég sé í bíó sem er ekki óeðlilega dökk.
Re: Laugarásbíó [Þarf svar fljótt]
Sent: Lau 29. Des 2012 00:47
af HR
oskarom skrifaði:Það er algjört möst að sjá þessa mynd í 48fps, fyrstu mínúturnar eru pínu skrítnar þar sem maður þarf að venjast þessu aðeins.
Uppáhalds aukafídusinn minn sem ég tók eftir var að þessi varpi er mun bjartari en eldri 3D varpar og var þetta því fyrsta 3D myndin sem ég sé í bíó sem er ekki óeðlilega dökk.
Já og fyrir utan það að hann varpar líka í 2x hærri upplausn en nokkur annar varpi á Íslandi. Mæli með að sitja rétt fyrir neðan miðju í laugarás til að upplifa skerpuna til fulls