Síða 1 af 2
Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 04:36
af kubbur
ekkert cocoapuffs rusl!
hafragrautur eldaður úr vatni, bætt útí rúsínum, hnetum, fræum, bananabitum, eplabitum, þurrkuðum ávöxtum, skeið af próteini, smá bökunarkakói og smá kanil(ekki kanilsykri), grauturinn síðan kældur með rjómablandaðri nýmjólk
besti morgunmatur sem ég get mögulega fengið mér og reyni að fá mér svona á hverjum morgni ásamt lýsi, b vítamíni, járni, magnesíum og stundum brauðsneið úr dökku, grófu brauði
hver er ykkar ideal morgunmatur?
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 05:36
af Gúrú
Þetta er samt ekkert sérlega 'hollt' hjá þér. (Svona fyrst þú varst að dissa Cocoa Puffsið)
Rjómi monstrous magn af frúktósa og kanill+bökunarkakó?
Sjálfum finnst mér skyr+mjólk+ávexti í boosti bara betri kostur en flest annað þó maður nenni sjaldan að gera þannig.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 08:47
af bAZik
Próteinshake eða egg&beikon. Slegið.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 09:05
af kubbur
Gúrú skrifaði:Þetta er samt ekkert sérlega 'hollt' hjá þér. (Svona fyrst þú varst að dissa Cocoa Puffsið)
Rjómi monstrous magn af frúktósa og kanill+bökunarkakó?
Sjálfum finnst mér skyr+mjólk+ávexti í boosti bara betri kostur en flest annað þó maður nenni sjaldan að gera þannig.
Kanill og bokunarkako er voða hollt(enginn sykur og þarf litið til að gefa mikið bragð), get ekki seð að það sé mikill fruktosi i þessu og rjóminn bætir og kætir og lengir meltinguna aðeins
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 09:06
af Jón Ragnar
Sleppa fokking morgunmat
Óþarfar kalóríur
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 09:25
af danheling92
Jón Ragnar skrifaði:Sleppa fokking morgunmat
Óþarfar kalóríur
Það er almenn þekking að morgunmatur er mikilvægasta máltíð dagsins..
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 09:25
af playman
Jón Ragnar skrifaði:Sleppa fokking morgunmat
Óþarfar kalóríur
Þá fyrst byrjar maður að fitna
(samhvæmt heimildum lækna)
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 09:44
af Jón Ragnar
danheling92 skrifaði:Jón Ragnar skrifaði:Sleppa fokking morgunmat
Óþarfar kalóríur
Það er almenn þekking að morgunmatur er mikilvægasta máltíð dagsins..
Segja morgunkornsframleiðendur
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 09:46
af Jon1
skyr +prótein shake eða múslí með protein shake eða vatni
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 09:50
af blitz
Enginn morgunmatur, stærri hádegismatur.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 11:09
af gRIMwORLD
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 11:14
af starionturbo
Weetabix súkkulaði + fjörmjólk + lýsi
Anyways, ef ég borða morgunmat verð ég svengri þegar fer að líða að hádegi.
Annars verð ég bara ekkert svangur.
morgunmatur er alveg lykillinn að öflugri vöðvauppbyggingu.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 11:37
af Svansson
blitz skrifaði:Enginn morgunmatur, stærri hádegismatur.
Tek undir þetta! Sé engan tilgang að borða morgunmat ef ég vakna ekki svangur. Fer voðalega lítið eftir þessum máltíðarskiptum, ég borða bara þegar ég er svangur!
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 11:49
af ManiO
Egg, beikon og pylsur með rótsterku kaffi. Prótein og fita. Ef maður vill einhver kolvetni þá skellir maður í sig einhverjum góðum avöxt. Heldur mér alla vega söddum í dágóðan tíma.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 12:14
af MuGGz
Elda alltaf hafragraut fyrir mig og guttann, voða basic bara
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 12:17
af Jón Ragnar
Er búinn "vera á" leangains í nokkra mánuði núna. Fasta 16 tíma. 8 tíma fæðugluggi (en bara 2máltíðir)
Virkar vel
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 13:49
af Xovius
Ég er nú bara yfirleitt sofandi fram að hádegismat
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 16:19
af Leviathan
Jarðaberja AB mjólk
Slatti af hampfræjum
Slatti af Chiafræjum
Slatti af höfrum
500ml mjólk og skeið af Syntha6 (Er reyndar bara búinn að vera með hydrowhey núna, vegna peningaskorts.
)
Treð þessari drullu yfirleitt í mig á morgnanna, ekkert sérlega gott haha. Borða svo helst 500g af skyri ca. 2 tímum seinna.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 16:54
af tdog
Kornflex kl 06:30, síðan ávextir upp úr 7 í vinnunni.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 16:57
af rango
Chicago á grill 66 - Tvöfaldur beikonborgari
End of story, I win.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 17:09
af kubbur
rango skrifaði:Chicago á grill 66 - Tvöfaldur beikonborgari
End of story, I win.
true
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 17:41
af bulldog
eitthvað óhollt og gott
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 19:07
af BirkirEl
kaffi.
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 19:12
af g0tlife
lucky charms með orkudrykk !
Re: Alvöru morgunmatur!
Sent: Mið 19. Des 2012 19:22
af vesley
g0tlife skrifaði:lucky charms með orkudrykk !
Annars uppáhaldið mitt til að borða hollt er haframjöl og helli svo súkkulaði próteini blandað við lítið magn af vatni.
Gefur gott kakóbragð og nóg hollusta.
Drakk alltaf heilsusafa á morgnana en hættur því útaf mikla sykurmagninu, hendi frekar í mig ávexti eða álíka til að koma mér aðeins í gang.