Síða 1 af 1

Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 16:16
af bulldog
Mynd
http://midi.is/tonleikar/1/7391/

Hverjir ætla á Deep Purple tónleikanna næsta sumar ? Það er byrjað að selja miða á þá. Þetta verða bara flottir tónleikar, ég er búinn að versla mér tvo miða á a svæði \:D/

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 16:30
af KermitTheFrog
Keypti a-miða í fyrradag. Verður hellað!

Ég bilaðist þegar ég sá þeta auglýst í einhverju blaði.

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 16:32
af bulldog

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 17:11
af konice
Ég bara veit ekki.
Blackmore hættur og John lord dáinn.
Þeim fer fækkandi rokkurunum.

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 17:18
af bulldog
12.900 kr á a svæði og 10.900 á b svæði.

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 18:12
af KermitTheFrog
konice skrifaði:Ég bara veit ekki.
Blackmore hættur og John lord dáinn.
Þeim fer fækkandi rokkurunum.


Var mjög leiður þegar ég heyrði að hann hefði daið. Mjög fær tónlistarmaður þar á ferð. Child in time er með uppáhalds lögunum mínum. Þó riffið sé stæling á Bombay Calling.

Hérer mjög góð útgáfa af laginu. Algerir meistarar. Maður hefði ekkert á móti þessu lænöppi í dag en maður verður að njóta þess sem býðst. Verða hörku tónleikar samt sem áður.

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 18:27
af Garri
Hugsa að ég fari ekki núna..

Sweet Child in Time og Blind Man eru með betri lögum Deep Purple.. fór á tónleikana fyrir einhverjum árum og saknaði þessara laga, allavega Sweet Child in Time (sem er erfitt fyrir hvaða söngvara sem er, hvað þá fyrir einhverja ellismelli).. man ekki bara lengur hvort Blind Man var tekið.

Á hinni línunni eru Hush og Black Night þrusu góð lög sem og Woman in Tokyo, super uber hress lög. Smoke on The Water hefur mér alltaf fundist eitthvað leiðigjarnt.. þótt riffið eða sólóið sé grípandi (sáraeinfalt og grípandi).

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 19:01
af worghal
ég er löngu búinn að tryggja mér miða á tónleika með þeim á mikið betra sviði :D
http://www.wacken.com/en/woa2013/main-n ... 2013-7864/

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 22:23
af kobbi keppz
Vitiði hvort það sé eitthvað aldurstakmark?

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 23:10
af Starman
kobbi keppz skrifaði:Vitiði hvort það sé eitthvað aldurstakmark?


Aðeins fyrir 50 ára og eldri ;)

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Fös 14. Des 2012 23:12
af ferskur og fallegur
mér gæti allt eins verið boðið á Deep Purple tónleikana af góðum vini mínum en það kemur í ljós er nær dregur :happy

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Lau 15. Des 2012 23:56
af bulldog
:megasmile

rock on !!!!

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Sun 16. Des 2012 00:01
af ZiRiuS
Ég myndi frekar fara á Slayer :thumbsd

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Sun 16. Des 2012 04:30
af bulldog
en þeir eru ekki að spila þannig að það er dautt mál....

Re: Deep Purple tónleikar.

Sent: Sun 16. Des 2012 04:41
af worghal
ZiRiuS skrifaði:Ég myndi frekar fara á Slayer :thumbsd

ég er bara að bíða eftir að þeir verði announcaðir á Wacken.
en ég skelli mér á rammstein og fleira ásamt deep purple :D :twisted: