Síða 1 af 1
The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 14:56
af gRIMwORLD
Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri skynsamlegt að taka 7 ára krakka með á The Hobbit.
Hún er merkt sem PG13 mynd en einhvern veginn finnst mér það slide'a þar sem þetta er ævintýri og krakkar virðast höndla þau öðruvísi en samtímamyndir.
Hvað finnst ykkur?
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 15:16
af Magneto
held a' það ætti að vera í góðu lagi
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 15:21
af Plushy
3 tima mynd. Heldurðu að hann hafi úthald í þetta?
Tók frænda minn einu sinni á svona langa mynd og honum langaði hreinlega að fara heim í hléinu. Áhugaspan margra krakka er alveg 0
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 15:29
af svanur08
Sonur minn rétt svo meikar heila teiknimynd og hann er 7 ára.
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 15:32
af gRIMwORLD
Dóttir mín er mikið movie fan og hangir límd yfir barnamyndum þannig að ég held að lengdin á myndinni verði ekki issue
Hins vegar þarf ég að sannfæra móðurina að stelpan hljóti ekki varanlega andlegan skaða af því að horfa á myndina
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 15:59
af Halli25
The Hobbit var upprunalega barnasaga svo..
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 16:02
af gRIMwORLD
Einmitt það sem ég sagði konunni minni
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 16:13
af dori
Halli25 skrifaði:The Hobbit var upprunalega barnasaga svo..
En þessi útfærsla af henni er sett upp aðeins meira miðuð að fullorðnum.
Ég myndi segja að eina leiðin til að vita hvernig barnið þitt myndi taka þessari mynd væri að fara á hana fyrst sjálfur. Taka þá eftir því hvort það séu einhver atriði sem fara illa í börn. Of "dimm" eða svona atriði sem reyna að bregða fólki gæti hugsanlega orðið svolítið erfitt. En þú þekkir barnið þitt best þannig að endilega ekki hlusta á þetta
"rated PG-13" kjaftæði.
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 16:16
af Dagur
Ef þetta er eins og LOTR myndirnar þá mundi ég ekki taka 7 ára krakka með.
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 16:49
af chaplin
3 Klst mynd, he shall not pass.
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 17:02
af lukkuláki
Bönnuð innan 12 ára hjá Sambíó
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 17:05
af Klemmi
gRIMwORLD skrifaði:Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri skynsamlegt að taka 7 ára krakka með á The Hobbit.
Hún er merkt sem PG13 mynd en einhvern veginn finnst mér það slide'a þar sem þetta er ævintýri og krakkar virðast höndla þau öðruvísi en samtímamyndir.
Hvað finnst ykkur?
Þú gerir þér grein fyrir að myndin er á ensku og ólíklegt að 7 ára krakki sé með nægilega góð tök á því að lesa til að geta bæði lesið textann nógu hratt og fylgst með hvað er að gerast á skjánum... sem endar líklega í því að hann fer að spyrja þig hvað sé að gerast og þú ferð að svara því og skemma myndina fyrir öllum öðrum í salnum?
Sorry að ég sé með leiðindi, en 7 ára krakki á ekkert erindi á þessa mynd í bíó
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 17:48
af siggik
Klemmi skrifaði:gRIMwORLD skrifaði:Ég var að velta því fyrir mér hvort það væri skynsamlegt að taka 7 ára krakka með á The Hobbit.
Hún er merkt sem PG13 mynd en einhvern veginn finnst mér það slide'a þar sem þetta er ævintýri og krakkar virðast höndla þau öðruvísi en samtímamyndir.
Hvað finnst ykkur?
Þú gerir þér grein fyrir að myndin er á ensku og ólíklegt að 7 ára krakki sé með nægilega góð tök á því að lesa til að geta bæði lesið textann nógu hratt og fylgst með hvað er að gerast á skjánum... sem endar líklega í því að hann fer að spyrja þig hvað sé að gerast og þú ferð að svara því og skemma myndina fyrir öllum öðrum í salnum?
Sorry að ég sé með leiðindi, en 7 ára krakki á ekkert erindi á þessa mynd í bíó
x2
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 17:55
af Zpand3x
Láttu hana bara horfa á LOTR, ef hún make-ar hana og fílar þá getur hún klárað myndirnar og farið svo á The Hobbit
Re: The Hobbit - PG13?
Sent: Fim 13. Des 2012 19:51
af Alcatraz
Pabbi fór með mig (10 ára) og litla bróður minn (7 ára) á Lord of the Rings. Bróðir minn er mjög sáttur með það, ekki margir af hans kynslóð sem fengu að sjá þennan þríleik í bíói.