Síða 1 af 1
Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 16:07
af Nördaklessa
Sælir, tók sú heimskulegu hugmynd að setjast undir stýri ofurölvaður, tókst að velta bíl sem ég á ekkert í, bíllinn er metin á c.a 600-700 þús. og er verður væntanlega dæmdur ónýtur, bíllinn er í kaskó, en hefur einhver ykkar lent í svona óhappi eða þekkið þið einhvern sem hefur gert svona lagað. ég veit að ég þarf að greiða allan kostnað. veit einhver hver heildarkostnaður verði mikill með allri rannsókn?
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 16:14
af rango
Afkverju er Þetta ekki í "You Laugh...You Lose!" ?
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 16:22
af Nördaklessa
rango skrifaði:Afkverju er Þetta ekki í "You Laugh...You Lose!" ?
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 16:31
af vesley
Ef ég man rétt þá þarftu að borga sjálfsábyrgð en held að hún sé töluvert hærri því þú varst undir áhrifum.
Best er bara að tala annaðhvort við eitthvern hjá lögreglunni sem þekkir þetta eða tryggingarfélögin, þau geta gefið þér bestu svörin.
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 16:45
af emmi
Þar sem þú varst ölvaður þá kemur tryggingarfélagið til með að rukka þig fyrir þessu tjóni að fullu.
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 16:53
af Revenant
Félagið mun að öllum líkindum bera fyrir sig varrúðarreglu og hafna bótakröfunni.
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 17:52
af Klemmi
Þú berð kostnað að fullu við skemmdir á bílnum og ef það varð tjón á einhverjum öðrum hlutum s.s. vegastikum eða ljósastaur ef þér tókst að taka eitthvað svoleiðis niður í leiðinni.
Tryggingafélagið kemur til með að greiða eiganda bílsins bílinn að fullu sem og sér um að láta lagfæra annað í umhverfinu en gera svo kröfu á þig um að greiða þeim þá sömu upphæð þegar þú ert búinn að gangast við brotinu/niðurstaða rannsóknar komin í ljós.
Tryggingafélagið getur þó einnig neitað bótakröfunni ef þeir geta sýnt fram á að eigandi bílsins hafi vitað að þú værir ölvaður þegar hann lánaði þér bílinn, alveg eins og þeir geta neitað bótakröfu ef þú skemmir bílinn þinn viljandi sjálfur.
Hef ekki skoðað sektirnar nýlega en upphæð þeirra fer eftir áfengismagni í öndun/blóði, eftir því hvort var mælt eftir óhappið, bezt að greiða hana strax ef þú gengst við brotinu.
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 18:57
af Nördaklessa
já, bíst við að ég þurfi að greiða fyrir allt tjónið, var bara spá hvort það væri einhver aukasektir frá tryggingarfélaginu
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 19:11
af appel
Svo lengi sem eina tjónið er bíllinn þá er hann það eina sem þarf að borga.
Ef einhver hefði slasast, þá værir þú í djúpum grilluðum skít fjárhagslega for the rest of your life.
Re: Ökutækjatjón - Ölvunarakstur
Sent: Lau 08. Des 2012 19:47
af Nördaklessa
skemmdi bara bílinn, ekkert annað, ég slapp vel...vill samt að eigandi bílsins sem er gamli fái sambærilegan bíl eða betri í staðinn á minn kostnað