Síða 1 af 1
Endurhæfingarlífeyrir og nám
Sent: Lau 08. Des 2012 13:39
af Krissinn
Má stunda nám í Símenntunarkerfinu og þiggja Endurhæfingarlífeyrir til framfærslu frá Tryggingastofnun Ríkisins á sama tíma? Ég þigg ekkert slíkt og stunda ekki þannig nám, Er einungis að forvitnast
Re: Endurhæfingarlífeyrir og nám
Sent: Lau 08. Des 2012 17:05
af Bjosep
Þú færð líklegast mun betra svar við þessu á bland.is en hér.
Re: Endurhæfingarlífeyrir og nám
Sent: Lau 08. Des 2012 17:28
af ZiRiuS
Kíktu á
www.thekkingarmidstod.is og sendu póst ef þú finnur ekki svar þar
Re: Endurhæfingarlífeyrir og nám
Sent: Lau 08. Des 2012 17:29
af playman
krissi24 skrifaði:Má stunda nám í Símenntunarkerfinu og þiggja Endurhæfingarlífeyrir til framfærslu frá Tryggingastofnun Ríkisins á sama tíma? Ég þigg ekkert slíkt og stunda ekki þannig nám, Er einungis að forvitnast
Já ég hugsa að það meigi, allaveganna var ég á því.
Þá var ég hjá Starfsendurhæfingu norðurlands, og heimilislæknir sótti svo um endurhæfingarlífeyrir fyrir mig.
Re: Endurhæfingarlífeyrir og nám
Sent: Lau 08. Des 2012 18:32
af Krissinn
playman skrifaði:krissi24 skrifaði:Má stunda nám í Símenntunarkerfinu og þiggja Endurhæfingarlífeyrir til framfærslu frá Tryggingastofnun Ríkisins á sama tíma? Ég þigg ekkert slíkt og stunda ekki þannig nám, Er einungis að forvitnast
Já ég hugsa að það meigi, allaveganna var ég á því.
Þá var ég hjá Starfsendurhæfingu norðurlands, og heimilislæknir sótti svo um endurhæfingarlífeyrir fyrir mig.
Já okey, Var það nokkuð langt ferli? Fór á kynningu um Símenntunarkerfið í seinasta mánuði og Samvinna - starfsendurhæfing á Suðurnesjum mun sjá um umsókn um endurhæfingarlífeyrir frá TR. Málið er að ég er með heimilislækni á Akureyri en ekki hér í Reykjanesbæ því ég er ekki með lögheimili þar, Verður þetta þá ekki snúið hjá mér? Ég nenni heldur ekki að standa í einhverju þvílíkt löngu ferli við kerfið. Systir mín er loksins að klára sitt ferli hjá TR vegna umsóknar um Örorkustyrk og byrjar hún að þiggja Örorkustyrksbætur í Febrúar á næsta ári, S.S þegar hún er orðinn 18 ára sem hún verður núna í Des. Og hennar ferli er búið að taka sirka 2 ár....... En það er notla öðruvísi tilfelli......
Re: Endurhæfingarlífeyrir og nám
Sent: Lau 08. Des 2012 19:44
af playman
Minnir að umsóknin og samþykkið hafi ekki tekið langan tima 1-2 mán minnir mig.
En það versta og það sem að þú þarft að passa þig á er að þeir borga mánuð fyrirfram, en ekki mánuð eftir á eins og á hinum almenna vinnumarkaði.
Þannig að ef þu ert búin með endurhæfingar tíman og færir svo t.d. á atvinnuleisis bætur, þá er einn mánuður sem þú ert í raun auralaus.
Þó svo að þú hafir lögheimili á AK, ætti ekki, held ég að breyta neinu.
Úff tók hana 2 ár að fá Örorkubætur? mér fanst það langur tími þegar að ég var að vesenast í mínum, en það tók um 3-4 mánuði. En í raun tók það um ár vegna þess að ég þurfti að
sækja um þær 2x, vegna þess að þeir klúðruðu málunum í fyrsta skiptið.
Re: Endurhæfingarlífeyrir og nám
Sent: Lau 08. Des 2012 20:41
af Krissinn
playman skrifaði:Minnir að umsóknin og samþykkið hafi ekki tekið langan tima 1-2 mán minnir mig.
En það versta og það sem að þú þarft að passa þig á er að þeir borga mánuð fyrirfram, en ekki mánuð eftir á eins og á hinum almenna vinnumarkaði.
Þannig að ef þu ert búin með endurhæfingar tíman og færir svo t.d. á atvinnuleisis bætur, þá er einn mánuður sem þú ert í raun auralaus.
Þó svo að þú hafir lögheimili á AK, ætti ekki, held ég að breyta neinu.
Úff tók hana 2 ár að fá Örorkubætur? mér fanst það langur tími þegar að ég var að vesenast í mínum, en það tók um 3-4 mánuði. En í raun tók það um ár vegna þess að ég þurfti að
sækja um þær 2x, vegna þess að þeir klúðruðu málunum í fyrsta skiptið.
Já okey það sleppur hehe
Hún er að fara að fá örorkustyrkslífeyrir, s.s Ekki fullan örorkulífeyrir heldur bara 3/4 af fullum örorkulífeyri vegna þess að hún er ekki metin 75% öryrki. Þetta hefur samt sem áður tekið svona langan tíma.... Fáránlegt af TR að klúðra þínu máli í 1 skipti! :O