Síða 1 af 1

Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 15:05
af krissiman
Er að fara að skreppa til útlanda (USA) á föstudaginn og vantar smá hjálp. Er búinn að ákveða að kaupa Ipod Touch 5th generation (299$) og
Beats by Dr. Dre (299.5$) og föt fyrir sirka 120$. Vantar upplýsingar um hversu mikið ég þyrfti sirka að borga í toll.

Re: Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 15:20
af J1nX
ekki neitt ef þú tekur miðana af fötunum, tengir beats við ipodinn og ert að hlusta á þetta þegar þú kemur til landsins :happy :happy

Re: Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 15:22
af Gislinn
Skoðaðu þetta, þetta og þetta.

Ætti að innihalda allt sem þú þarft til að finna útúr þessu. :happy

J1nX skrifaði:ekki neitt ef þú tekur miðana af fötunum, tengir beats við ipodinn og ert að hlusta á þetta þegar þú kemur til landsins :happy :happy


Svar mitt við þessu er þetta. Ekki taka sénsinn nema þú sért tilbúinn að láta gera þetta upptækt.

Re: Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 15:25
af J1nX
þetta var nú líka bara létt djók :P

Re: Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 15:30
af krissiman
heyrðu takk æðislega fyrir þetta akkúrat það sem ég þarf :D. Veistu samt nokkuð hvort að tollurinn reiknist með skattinum þarna úti (í mínu tilfelli 6%) eða bara base verðinu?

Re: Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 16:35
af Gislinn
krissiman skrifaði:heyrðu takk æðislega fyrir þetta akkúrat það sem ég þarf :D. Veistu samt nokkuð hvort að tollurinn reiknist með skattinum þarna úti (í mínu tilfelli 6%) eða bara base verðinu?


Ég er ekki viss, en ég myndi gera ráð fyrir að það reiknist miðað við verðið með skattinum.

Re: Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 16:36
af Daz
krissiman skrifaði:heyrðu takk æðislega fyrir þetta akkúrat það sem ég þarf :D. Veistu samt nokkuð hvort að tollurinn reiknist með skattinum þarna úti (í mínu tilfelli 6%) eða bara base verðinu?


Alltaf af heildarverðinu. S.s. með skatti og flutningsgjöldum, ef það á við.

Re: Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 18:48
af Einarr
Afhverju beats? Getur fengið svo miklu miklu betri heyrnatól fyrir minni pening. Tjekkaðu á sennheiser hd25 eða aiaiai tma-1. Get vottað að þau eru bæði epísk

Re: Hjálp með toll :D

Sent: Mið 05. Des 2012 19:50
af rango
Einarr skrifaði:Afhverju beats? Getur fengið svo miklu miklu betri heyrnatól fyrir minni pening. Tjekkaðu á sennheiser hd25 eða aiaiai tma-1. Get vottað að þau eru bæði epísk


Kræst nú skalltu hlaupa, Og það hratt :twisted: