Síða 1 af 1
Stærðfræðihjálp - Pólhnit
Sent: Fim 29. Nóv 2012 21:40
af KermitTheFrog
Sælir drengir, er einhver hérna sem er vel að sér í stærðfræðigreiningu og getur útskýrt eitt vandamál fyrir mér.
Dæmið er að finna hallatölu fallsins x/y + (y/x)^3 = 2 í punktinum (-1, 1).
Hvernig fer maður að því að diffra þetta?
Re: Stærðfræðihjálp - Fólgin diffrun
Sent: Fim 29. Nóv 2012 22:06
af ElbaRado
Myndi mæla með að margfalda með xy í gegn, svo diffraru . Verður að passa þig á að y er fall af x
Re: Stærðfræðihjálp - Fólgin diffrun
Sent: Fim 29. Nóv 2012 22:14
af KermitTheFrog
Haha fattaði ekki að beita svo einföldu trixi og fór lengri leiðina og diffraði þetta fólgið eins og þetta er og fékk það sama út. Takk fyrir svarið.
Re: Stærðfræðihjálp - Fólgin diffrun
Sent: Fim 29. Nóv 2012 22:24
af GuðjónR
Re: Stærðfræðihjálp - Fólgin diffrun
Sent: Fim 29. Nóv 2012 23:04
af roadwarrior
Það er einhver á blandinu að óska eftir grafískri Casio reiknivél. Væri ekki ráð fyrir þig að prufa það
Notendanafnið á blandinu er "stigasol"
Re: Stærðfræðihjálp - Pólhnit
Sent: Mið 09. Jan 2013 22:47
af KermitTheFrog
Sælir aftur drengir.
Er einhver hérna sem getur leiðbeint mér hvernig ég get skrifað r^2 * sin(2theta) = 2 á kartesísku formi?
Þetta sin(2theta) er eitthvað að rugla mig.
Re: Stærðfræðihjálp - Pólhnit
Sent: Mið 09. Jan 2013 23:20
af vonlaus
getur umskrifað sin(2theta) = 2*sin(theta)*cos(theta)
Re: Stærðfræðihjálp - Pólhnit
Sent: Mið 09. Jan 2013 23:50
af KermitTheFrog
ahh næs, takk
þá er þetta 2rsin(theta)*rcos(theta) = 2 sem samsvarar xy = 1 right?
Re: Stærðfræðihjálp - Pólhnit
Sent: Fim 10. Jan 2013 00:33
af Eiiki
KermitTheFrog skrifaði:ahh næs, takk
þá er þetta 2rsin(theta)*rcos(theta) = 2 sem samsvarar xy = 1 right?
Greining 2?
En já í pólhnitum er x = rcos(theta) og y = rsin(theta). Þ.a. r^2 * sin(2theta) = 2rsin(theta)*rcos(theta) = 2 leiðir af sér að x*y = 1
Re: Stærðfræðihjálp - Pólhnit
Sent: Fim 10. Jan 2013 00:37
af KermitTheFrog
Jebb, greining 2
Var búinn að læra þessi pólhnit einhverntímann í menntó en það ryðgar eins og margt annað.