Síða 1 af 1

Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 15:20
af BirkirEl
Sælirnú.

Ég keypti síma núna í sumar (hjá símanum) sem ég notaði sem vinnusíma, hætti svo að nota hann þegar ég fór aftur í skólann og lét bróðir kærustunnar hafa símann. Svo kemur að því að síminn bilar, báðir hátalarnir sprungnir.

Þannig að ég sendi strákinn niður í síma til að láta gera við hann og ekkert mál með það. En NEI, hann er með númerið sitt hjá NOVA og fær þessvegna ekki lánssíma á meðan síminn sem var verslaður hjá þeim er í viðgerð. Þetta fer virkilega í taugarnar á mér og finnst mér vera hrikalega léleg þjónusta, kannski er þetta bara ég að vera smámunasamur.

Hvað finnst ykkur ?

Re: Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 15:23
af gRIMwORLD
Ef þeir eru með þannig þjónustu að viðskiptavinir símans fá extra fríðindi fram yfir aðra þá er það bara þannig. Ætti ekki að vera erfitt að finna einhversstaðar síma sem er á lausu. Næstu annar hver maður á orðið tvo síma. Einn sem er kominn ofan í skúffu og safnar bara ryki.

Re: Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 15:24
af beggi90
Á fólk almennt rétt á því að fá lánssíma þegar sími bilar?

Re: Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 15:46
af tlord
fólkið sem afgreiðir er bara rosalega misjafnt, sumir eru fínir og geta látið fyrirtækið líta sæmilega út.

Re: Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 15:49
af playman
Ég fékk lánssima hjá símanum þegar að minn sími bilaði, samt er ég hjá nova.
Það á ekkert að koma simanum við hvort að þu sért í nova/vodafone/tal eða annarsstaðar ef að síminn þinn bilar sem þu keyptir hjá þeim.
Þú verslaðir síman hjá þeim en ekki t.d. nova, og því fynst mér asnalegt að hann fái ekki lánssima af þvi að hann er hjá nova.

Re: Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 15:59
af BirkirEl
playman skrifaði:Ég fékk lánssima hjá símanum þegar að minn sími bilaði, samt er ég hjá nova.
Það á ekkert að koma simanum við hvort að þu sért í nova/vodafone/tal eða annarsstaðar ef að síminn þinn bilar sem þu keyptir hjá þeim.
Þú verslaðir síman hjá þeim en ekki t.d. nova, og því fynst mér asnalegt að hann fái ekki lánssima af þvi að hann er hjá nova.


akkurat það sem ég hugsaði, afhverju er þeim ekki sama hjá hvaða fyrirtæki hann er með númerið sitt ef að síminn ef keyptur hjá þeim...

Re: Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 16:02
af AntiTrust
Skv. neytendalögum á viðskiptavinur ekki rétt á lánstæki fyrr en það sannast að bilunin falli undir ábyrgð.

Re: Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 16:07
af BirkirEl
AntiTrust skrifaði:Skv. neytendalögum á viðskiptavinur ekki rétt á lánstæki fyrr en það sannast að bilunin falli undir ábyrgð.


já, þetta er samt spurning um að reyna að vera almennilegur við kúnnann. (sama þótt að hann sé hjá NOVA/VODA/TAL, síminn var jú verslaður hjá þeim)

Sprungnir hátalarar, ætli það flokkist ekki undir vatnsskemmdir eins og flest annað :face

Re: Léleg Þjónusta Símans

Sent: Mið 28. Nóv 2012 16:17
af playman
BirkirEl skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Skv. neytendalögum á viðskiptavinur ekki rétt á lánstæki fyrr en það sannast að bilunin falli undir ábyrgð.


já, þetta er samt spurning um að reyna að vera almennilegur við kúnnann. (sama þótt að hann sé hjá NOVA/VODA/TAL, síminn var jú verslaður hjá þeim)

Sprungnir hátalarar, ætli það flokkist ekki undir vatnsskemmdir eins og flest annað :face

Mér þætti gaman að sjá þá ætla að sanna það.