Síða 1 af 2

Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:17
af GuðjónR
Ég veit allaveganna hvar ég versla ekki jólagjafirnar mínar í ár.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:23
af capteinninn
Er allt í lagi að ræða þessi mál á spjallinu?

Skaðar það þig ekkert?

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:25
af dori
Endilega halda fólki upplýstu um þessi efni. Ég hata þegar svona hlutir eru semi þaggaðir niður og bannað að tala um þá.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:26
af Gúrú
Hvenær voruð þið bókaðir til að mæta næst?

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:28
af TraustiSig
Einhver til í að upplýsa mig um hvað þetta meiðyrðamál snýst?

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:28
af GuðjónR
Gúrú skrifaði:Hvenær voruð þið bókaðir til að mæta næst?

Næsta fyrirtaka er 24. janúar 2013

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:31
af AntiTrust
Ef út í smáatriðin er farið þá er nú lítið annað verið að segja hér annað en hvar aðilinn ætlar að versla sínar jólagjafir. Treysti því annars að við fáum að fylgjast með þessu eins mikið og lög leyfa.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:35
af GuðjónR
AntiTrust skrifaði:Ef út í smáatriðin er farið þá er nú lítið annað verið að segja hér annað en hvar aðilinn ætlar að versla sínar jólagjafir. Treysti því annars að við fáum að fylgjast með þessu eins mikið og lög leyfa.

Hárrétt...

TraustiSig skrifaði:Einhver til í að upplýsa mig um hvað þetta meiðyrðamál snýst?

Grein í DV sem útskýrir málavexti.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:38
af Gúrú
TraustiSig skrifaði:Einhver til í að upplýsa mig um hvað þetta meiðyrðamál snýst?

viewtopic.php?f=13&t=43773
viewtopic.php?f=9&t=46544

Einhverjir helstu poppkornsþræðir Vaktarinnar.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 15:54
af GuðjónR
Já þau eru nokkur "gullkornin". :face

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 16:00
af hagur
Ég bara skil ekki afhverju maðurinn vill halda þessu til streitu. Tími, fyrirhöfn og peningar sem fara í þetta. En það er sumt sem maður bara skilur ekki.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 16:18
af Hargo
Úff, þú átt mína samúð. Vonandi stendurðu uppréttur eftir þetta vesen.

...ef ekki, þá skiptirðu bara um kennitölu. Problem solved :megasmile

En svona án gríns þá máttu endilega halda okkur upplýstum svo langt sem lög leyfa í þessu tilfelli.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 16:29
af GuðjónR
hehehe jájá ég er brattur, mér finnst bara leiðinlegt að standa í þessu sérstaklega þar sem ég á engan hlut að máli.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 16:38
af vesi
Hargo skrifaði:Úff, þú átt mína samúð. Vonandi stendurðu uppréttur eftir þetta vesen.

...ef ekki, þá skiptirðu bara um kennitölu. Problem solved :megasmile

En svona án gríns þá máttu endilega halda okkur upplýstum svo langt sem lög leyfa í þessu tilfelli.

X2

spurning að hefja söfnun ef þetta fer að kosta einhverja aura, mér fyndist það ömurlegt ef þú bærir fjáhagslegt tjón af þessu.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 16:50
af tdog
Fyrir hvað nákvæmlega ert þú ákærður í þessu, að reka vaktina, og þ.m.t. berð ábyrgð á skrifum annara.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 16:55
af GuðjónR
vesi skrifaði:
Hargo skrifaði:Úff, þú átt mína samúð. Vonandi stendurðu uppréttur eftir þetta vesen.

...ef ekki, þá skiptirðu bara um kennitölu. Problem solved :megasmile

En svona án gríns þá máttu endilega halda okkur upplýstum svo langt sem lög leyfa í þessu tilfelli.

X2

spurning að hefja söfnun ef þetta fer að kosta einhverja aura, mér fyndist það ömurlegt ef þú bærir fjáhagslegt tjón af þessu.

Takk fyrir umhyggjuna, en það er alveg óþarfi. Ég stórefast að ég tapi þessu máli.
Málið snýst um hvort ákveðin ummæli teljist meiðyrði eða ekki, mér var stefnt til "vara" ef ekki tækist að sanna hver hefði viðhaft ummælin en sá sem það gerði hefur aldrei þrætt fyrir það.
Það gerir þessa stefnu ennþá furðulegri.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 19:09
af appel
Ef þú tapar þá er internetinu sjálfhætt, a.m.k. á Íslandi. Það verður "read-only" þá.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 21:54
af GuðjónR
appel skrifaði:Ef þú tapar þá er internetinu sjálfhætt, a.m.k. á Íslandi. Það verður "read-only" þá.

Eða sett neðanjarðar eins og torrent samfélögin.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 21:55
af Gúrú
GuðjónR skrifaði:Takk fyrir umhyggjuna, en það er alveg óþarfi. Ég stórefast að ég tapi þessu máli.
Málið snýst um hvort ákveðin ummæli teljist meiðyrði eða ekki, mér var stefnt til "vara" ef ekki tækist að sanna hver hefði viðhaft ummælin en sá sem það gerði hefur aldrei þrætt fyrir það.
Það gerir þessa stefnu ennþá furðulegri.

Af hverju grunar mig að þó að þú sigrir málið verði svo gott sem ómögulegt að fá greiddan lögmannskostnað ofl.?

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 22:03
af GuðjónR
Gúrú skrifaði:

Ef hann er búinn að færa allar eigur sínar yfir á konuna þá væru það oft fyrstu merki þess að hann ætli sér ekki að standa við skuldbindingar sínar.
Annars ætla ég ekki að hafa áhyggjur af því.

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 22:23
af vesi
jöfull væri það týpist..Ætli það yrði í fyrsta skipti sem hann myndi ekki standi við sitt...

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 22:29
af Klaufi
Baráttukveðjur! ;)

P.s.
Vesi, eigum við nokkuð að vera að afvegaleiða umræðuna of mikið?

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 22:32
af JReykdal
Vonandi tekst honum að halda sér vakandi hjá ykkur :D

http://www.dv.is/folk/2012/11/22/vilhja ... tarsalnum/

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fim 22. Nóv 2012 22:36
af vesi
Klaufi: true,, my bad

Re: Stóra meiðyrðamálið

Sent: Fös 01. Mar 2013 14:12
af GuðjónR
Fjórða eða fimmta fyrirtaka var í dag, alveg orðinn ruglaður á þessu...
Aðalmeðferð verður 2. september 2013