Síða 1 af 1

Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 11:24
af zypx
http://www.facebook.com/photo.php?fbid= ... permPage=1

Er eitthvað vit í því að kaupa þessa tölvu?

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 11:27
af zypx
Og hún er notuð.

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 11:44
af beggi90
Verðið er mjög hátt á henni en þetta eru skemmtilegar vélar meðan skjárinn á þeim virkar.

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 14:48
af lukkuláki
Mjög hátt verð ég sá tölvu auglýsta um daginn á 79.900 nýja og sú var betri en þessi

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 14:53
af Tbot
Sé hvergi hvað vélin er gömul.
70.000 er mjög hátt verð, miðað við sumar af þeim vélum sem hafa verið boðnar hérna.
Ég mundi ekki borga þetta fyrir vélina.

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 14:53
af AntiTrust
Þá tæki ég nú frekar T61 vélina hjá honum á 48þ.

http://www.facebook.com/photo.php?fbid= ... permPage=1

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 15:14
af gRIMwORLD
Windows Vista og DDR2, vélin er lágmark 3-4 ára gömul. Kom fyrst af færibandinu hjá Dell í Janúar 2009. Verðið er í hærri kantinum fyrir notaða vél með enga ábyrgð og enga spes specca.
Örgjörvinn er Intel T3400 með 1mb L2 cache, enginn spes vinnuþjarkur þar á ferð.

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 16:11
af MagneticRock
Tæki nú frekar nýja vél með ábyrgð á 80k~

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 17:50
af Hargo
Þú getur fundið nýja vél fyrir svipaðan pening og þá fengið 2 ára ábyrgð sem og Win 7 eða 8 stýrikerfi.

Þessi notaða Dell vél er með Vista sem er þungt og leiðinlegt stýrikerfi í vinnslu. Svo er spurning hvort rafhlaðan í vélinni sé ekki orðin lúin enda líklega orðin nokkurra ára gömul. Mér finnst þessi tölva alltof hátt verðlögð.

Nokkrar ódýrar nýjar vélar á svipuðu verðbili:
http://tl.is/product/toshiba-satellite-c850-19d-fartolva
http://www.stod2.is/vildarklubbur/tilbod/vildartilbod-/2012/11/06/OK-budin/?itemid= - Þessi er á 79.900 með 16GB USB lykli ef þú ert í Stöð2 Vild.
http://tolvutek.is/vara/acer-travelmate-5744z-p624g32mikk-fartolva-svort
http://tolvutek.is/vara/hp-compaq-presario-cq57-460sd-fartolva-svort
http://tolvutek.is/vara/packard-bell-easynote-te11-bz-408-fartolva-svort

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 21:06
af methylman
Ég seldi svona vél með 4GB minni og 250 GB disk um daginn á 45.000 og var bara sáttur við verðið

Re: Dell Inspiron 1545 spurning

Sent: Mið 21. Nóv 2012 22:36
af methylman
zypx skrifaði:http://www.facebook.com/photo.php?fbid=4832236091990&set=a.1861730351203.111175.1479279647&type=1&permPage=1

Er eitthvað vit í því að kaupa þessa tölvu?


Nei þetta er okur