Síða 1 af 1

Slökkt á tölvunni þegar ekki í notkun or not?

Sent: Fim 08. Nóv 2012 09:40
af bjorninn
Ég var að velta fyrir mér hvort ég ætti að taka upp þann sið að slökkva á tölvunni t.d. þegar ég er ekki heima, á nóttunni o.þ.h.

Núna keyrir hún nánast 24/7, skjárinn slekkur bara á sér eftir 15 mín.

Skiptir það máli upp á endingu?

Re: Slökkt á tölvunni þegar ekki í notkun or not?

Sent: Fim 08. Nóv 2012 09:41
af bulldog
ég myndi hafa kveikt á henni 24/7 þetta með að slökkva á skjánum á 15 mín fresti er stillingaratriði.

Re: Slökkt á tölvunni þegar ekki í notkun or not?

Sent: Fim 08. Nóv 2012 09:43
af dori
Ég myndi ekki hafa áhyggjur af endingartíma tölvu. Hafðu bara kveikt á henni og láttu hana folda eða gera eitthvað þegar hún er ekki í notkun.

Um að gera að láta skjáinn slökkva á sér, það hefur eitthvað um endingu að segja.

Re: Slökkt á tölvunni þegar ekki í notkun or not?

Sent: Fim 08. Nóv 2012 11:07
af k0fuz
Ég hef vanið mig á að slökkva á tölvunni þegar ég er ekki heima og á nóttuni, nema ég sé að downloada einhverju rosalegu, annars er ljósnetið að skila svo góðum hraða að ég þarf aldrei að hafa kveikt á tölvunni sökum downloads. Mæli með að slökkva amk á skjánum handvirkt þegar þú ferð e-ð. Svo náttúrulega ef þú hefur áhuga á að minnka rafmagnsreikningin þá telur sjálfsagt töluvert til lengri tíma að slökkva á vélinni ;). Ekki viss með endinguna, hefði haldið að líftíminn yrði lengri þegar maður hefur slökkt á henni yfir nótt, amk 8 tíma á dag, 224 tímar á mánuði.

Re: Slökkt á tölvunni þegar ekki í notkun or not?

Sent: Fim 08. Nóv 2012 13:15
af Stuffz
ekki hlusta á hackerana hérna slökktu alltaf á henni þegar þú þarft að fara í útidyrnar, kamarinn eða símann


nei annars það er kannski of mikið :sleezyjoe


ég slekk á minni þegar ég er ekki að nota hana í langan tíma, ef ekki bara vegna öryggisins, svo minni rafmagnseyðsla, hávaði.

Re: Slökkt á tölvunni þegar ekki í notkun or not?

Sent: Fim 08. Nóv 2012 13:17
af Frost
Slekk alltaf á minni á næturna og þegar ég er ekki við þá slekk ég á skjáunum.

Re: Slökkt á tölvunni þegar ekki í notkun or not?

Sent: Fim 08. Nóv 2012 14:23
af ASUStek
haf kveikt á minni 24/7 fólk nær í efni hjá mér til að spara erlent þar sem ég er á "góðum" díl