Síða 1 af 1
Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 19:59
af appel
Ég er smá sjónvarpsjunkí, og hef tekið eftir því hvað kaffi er orðið áberandi í sjónvarpsþáttum. Allir karakterarnir eru með kaffi í hönd, undantekningalaust í hverjum þætti, oftast í byrjun þáttar eða einhverntímann í þættinum.
Tekur enginn eftir þessu?
Minnir mig á tímabil í amerískri kvikmyndagerð þegar allir voru með sígarettu í kjaftinum.
Er þetta heilaþvottur sponsoraður af kaffiframleiðendum?
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:01
af svanur08
Hef nú ekki tekið eftir því í Walking Dead allavegna haha
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:02
af appel
svanur08 skrifaði:Hef nú ekki tekið eftir því í Walking Dead allavegna haha
Oftast í einhverjum svona city/urban drama þáttum, og ekki í einhverjum heimsendaseríum eða sem gerast í öðrum raunveruleika einsog Game of Thrones.
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:04
af GuðjónR
Ég hef ekki tekið eftir þessu
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:04
af hagur
GuðjónR skrifaði:Ég hef ekki tekið eftir þessu
x2
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:04
af Bjosep
Ég hef nú ekki tekið eftir þessu og meira að segja man ég ekki í fljótu bragði eftir atriði þar sem kaffi kemur við sögu nema mögulega í Castle en það er búið að vera gegnumgangandi.
Þannig að þú hlýtur að vera að horfa á aðra þætti en ég eða bara að vera að einblína svona hrikalega á þetta.
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:06
af svanur08
Ertu ekki bara með kaffi á heilanum?
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:08
af fannar82
Friends?
=>
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:08
af gardar
Kaffi er náttúrulega bara áberandi allstaðar í lífinu
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:13
af svanur08
Ég drekk nú ekki oft kaffi en finnst alltaf gott að fá Capocchino á N1 með syrop
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:15
af Olli
nákvæmlega, svo eru bílar keyrðir í nánast hverjum einasta ameríska sjónvarpsþætti! hvað er málið með það?
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:19
af KermitTheFrog
Hef líka tekið eftir því hvað nánast allir karakterar í sjónvarpi og bíómyndum virðast vera í einhvers konar skóm...
Veit ekki hvort það sé tilviljun eða ekki, en gæti verið subliminal message.
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:27
af tdog
Þetta er valid pæling hjá appel, eitt sinn þótti hreinlega bara „kúl“ að reykja, núna virðist kaffineysla vera að trenda.
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:43
af capteinninn
Eins með að ríkir kallar eru alltaf að drekka Viskí í öllum þáttum og myndum.
Ég held að þetta sé alveg planað fyrirfram, fínt til að láta leikarana gera eitthvað með höndunum og það getur vel verið að einhverskonar samband kaffiframleiðenda borgar fyrir þetta
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 20:54
af GuðjónR
Er ekki James Bond hættur að drekka Martini og farinn að þamba öl? Í boði....Heineken??
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:00
af svanur08
GuðjónR skrifaði:Er ekki James Bond hættur að drekka Martini og farinn að þamba öl? Í boði....Heineken??
Allavegna í Casino Royal var hann spurður þegar hann datt út pókernum shaken not stured, look like i give a damn
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:03
af capteinninn
svanur08 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Er ekki James Bond hættur að drekka Martini og farinn að þamba öl? Í boði....Heineken??
Allavegna í Casino Royal var hann spurður þegar hann datt út pókernum shaken not stured, look like i give a damn
Mig minnir að í upprunalegu bókunum þá drekkur hann yfirleitt þarna Vesper drykkinn bara, Smirnoff borguðu bara nógu mikið til að breyta því yfir í Vodka Martini
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:07
af Frantic
Í Cougar Town er bara drukkið rauðvín.
Í HIMYM er yfirleitt alltaf verið að drekka bjór.
Samsæri?
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 21:24
af appel
Ég tek alltaf eftir þessu. Reynið að fylgjast með þessu næst þegar þið horfið á sjónvarp.
Ríka liðið er með "scotch" í chesterfield stofunni hjá sér.
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 22:47
af Gerbill
Það er allaveganna enn kúl í Sons of Anarchy að reykja
Hef ekki tekið eftir þessu með kaffið, en það er bara ágætt þar sem að kaffi er hollt.
Re: Kaffi í sjónvarpi
Sent: Fös 02. Nóv 2012 22:54
af upg8
Er það ekki bara útaf tuðurum sem vilja alfarið banna sígarettur í sjónvarpi og öðru afþreyingarefni? Höfundar bara gefast upp á baráttunni fyrir tjáningarfrelsinu að lokum.