Sælir, er að athuga hvað það myndi kosta að heilsprauta Ford Bronco '74, ef maður myndi vinna hann sjálfur fyrir sprautun?
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 17:47
af halli7
Það kostar ábyggilega einhvern slatta, bara fara og fá tilboð.
Og það eru ekki öll verkstæði til í að sprauta þar sem að eigandinn gerði undirvinnuna sjálfur.
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 17:48
af oskar9
700-800 þúsund
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 17:50
af vesi
ertu að gera þetta í fyrsta skipti.. ef svo og ef þú hefur engann með reynslu til að leiðbeina þér þá myndi ég eindregið mæla með að láta verkstæði sjá um alla sparsl vinnu og málun.. það kemur til með að borga sig ef bíllin á að fallegur sem ég geri ráð fyrir. Það fer gífurlegur tími í að laga eftir mannin sem ætlaði að gera "allt" sjálfur og tíminn á verkstæðinu er ekki ódýr. mæli með að þú hringir á milli og fáir fast tilboð frá þeim í þetta verk.
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 18:05
af Yawnk
Sælir, takk fyrir svörin, og ég er bara svona að spá hvað það myndi kosta, ef þessi uppgerð klárast einhverntímann, væri flott að sprauta hann í lokin
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 20:29
af tdog
Þeir sem sprauta vilja nefnilega ekki að sitt nafn festist við lélegt prep fyrir sprautun, orðsporið skiptir þá miklu máli.
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 21:39
af littli-Jake
þar sem að undirvinnan er allavega 50-60% loka útkomunni efast ég um að það sé skinsamlegt hjá þér að ætla að gera það sjálfur ef þú hefur ekki gert þetta áður. Þetta er talsvert meira mál en að hamast á bílnum með sandpappír. Sérstaklega þar sem þetta er gamal bronco. Sennilega dass af riði hér og þar.
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 21:43
af playman
oskar9 skrifaði:700-800 þúsund
þetta verð getur ekki verið rétt ef að hann vinnur undir vinnuna sjálfur. Ég fékk tilboð uppá þessa upphæð fyrir heilsprautun á mínum bíl, og þá sæju þeir um alla vinnuna, en ef ég myndi vinna undir vinnuna sjálfur, ásamt því að koma með hann strípaðan þá væri þetta um 400þ.
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 21:50
af viddi
Slatta vinna, en ódýrt!
Re: Hvað kostar heilsprautun á bíl?
Sent: Mið 31. Okt 2012 22:22
af Yawnk
viddi skrifaði:Slatta vinna, en ódýrt!
Horfði á þetta allt, rosaleg vinna sem fer í þetta, en ég er með eina spurningu, hvað í ósköpunum er Rustoleum
Ég gerði alla undirvinnu sjálfur á mínum bíl og fékk sprautun á 100 þúsund Ég keypti lakk og allt það, málarinn sá um að pakka og sprauta. Bara fara milli fyrirtækja og biðja um tilboð. Sumir bjóða svört boð ^^,