Síða 1 af 3

NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 12:21
af mundivalur
Jæja nammi kallar eða nammið kallar :-k
Linkó:
http://slikkeri.is/Forsida/Forsida/view.aspx?.
alltikoku.is
nammi.is/
http://uppskriftir-1.blogcentral.is/sida/2372421/
Mynd
Mynd
IMG_3018.JPG
IMG_3018.JPG (201.74 KiB) Skoðað 2244 sinnum

IMG_3019.JPG
IMG_3019.JPG (132.78 KiB) Skoðað 2244 sinnum

IMG_3020.JPG
IMG_3020.JPG (192.69 KiB) Skoðað 2244 sinnum


Hlaup Uppskrift EL Mundo
2x Hartleys Jelly kubbar fæst í bónus jarðaberja eða sítrónu
13 stk gelatínblöð ,blá bréf fæst í bónus
1 bolli sykur ,amerískur bolli = frekar stór
1/2 bolli síróp
1/2 bolli Vatn
1-2 tsk sítrónu sýra , 2 ef þú villt dálítið súrt
1/2 tsk matarsóti , ef þú villt ekki hafa hlaupið loftkennt eða tvískipt þá sleppa matarsótanum

Byrja á því að finna eitthvað fat undir hlaupið og olíubera það,eitthvað olíu sprey
Svo þarf tvo potta ,setja vatn,sykur, sítrónu sýru og síróp saman og bræða saman ekki láta hitna mikið yfir 100°c (suðu) ,bræða Hartleys kubbana í hinum pottinum við lágan hita.
Setja gelatín blöðin í kallt vatn í ca. 5 mín,Þegar sykurblandan er bráðnuð þá á að setja gelatín blöðin út í og hræra síðan hella Hartleys hlaupinu út í og hræra , ef þú ætlar að nota matarsóta þá á að skella honum í núna og hræra :D
Svo er gott að láta þetta standa og þorna í góðann tíma,þá á að vera hægt að klippa eða skera með pítsuskera !
Svo er ég líka með lakkrís sem kemur aðeins seinna !

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 13:12
af dandri
Om nom nom

ég styð þennan þráð.

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 13:54
af axyne
:happy

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 13:56
af AntiTrust
Pff.

1. Kaupa 10 mismunandi tegundir af súkkulaði
2. Bræða í pott
3. Borða með skeið og bestu lyst.

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 14:09
af hfwf
Þetta er vonandi allt hollt nammi :baby

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 14:55
af zedro
AntiTrust skrifaði:Pff.

1. Kaupa 10 mismunandi tegundir af súkkulaði
2. Bræða í pott
3. Borða með skeið og bestu lyst.


Mynd

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 15:06
af mundivalur
Lakkrís og súkkulaði í pott JAMM, setti nokkra linkó :D

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 15:17
af J1nX
ohh núna væri ég til í heimagerðu karamelluna sem mamma gerði oft þegar ég var lítill.. djöfull var það gúrm

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 15:25
af vesley
AntiTrust skrifaði:Pff.

1. Kaupa 10 mismunandi tegundir af súkkulaði
2. Bræða í pott
3. Borða með skeið og bestu lyst.



Nota bara rör :happy

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 17:52
af chaplin
vesley skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Pff.

1. Kaupa 10 mismunandi tegundir af súkkulaði
2. Bræða í pott
3. Borða með skeið og bestu lyst.



Nota bara rör :happy

Mynd

Ég sem get varla smakkað á súkkulaði..

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 18:30
af braudrist
Fylgir kransæðastífla með þessu? :guy

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 18:40
af hagur
AntiTrust skrifaði:Pff.

1. Kaupa 10 mismunandi tegundir af súkkulaði
2. Bræða í pott
3. Borða með skeið og bestu lyst.


Dýfa svo jarðarberjum/banönum í þetta .... kjamms.

Bananar og súkkulaði er match made in heaven.

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 19:02
af worghal
hva segiru mundi, sendiru suður :lol:

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 20:41
af Xovius
Þarf að finna góðu karamellu-uppskriftina mína :P Alltof langt síðan ég hef gert hana!

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 20:52
af mundivalur
worghal skrifaði:hva segiru mundi, sendiru suður :lol:

HAHA ég er nú ekki það góður :D
Fyrir karamellu er eiginlega nauðsýn að eiga sykurhitamælir uppá stífleikann :D
Ætla prufa búa til Toffee fyrir helgina http://allrecipes.com/recipe/best-toffe ... uper-easy/

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 21:19
af GuðjónR
OMG! ég er bara ekki að trúa þessum þræði!!!
Ég ákvað í gærkvöldi (áður en þessi þráður var gerður) að hella mér út í sælgætisgerð og gera þráð um það!!!
En varð ekki mundivalur sælgætismeistari á unda mér!! Ótrúlegt!!!

Uppskriftin sem ég fór eftir:

  • 2,5 dl rjómi
  • 2,5 dl síróp
  • 2,5 dl sykur
  • 5 matskeiðar smjör
  • 3/4 teskeið salt

Þegar ég var búinn að láta þetta malla á spanhellunni í c.a. 45 mín fór ég að verða óþolinmóður, ákvað að taka smá smakk í skál og setja í hraðkælingu í frystihólfið.
Hélt síðan áfram að sjóða nammið, ég sauð karamelluna í 15 mín til viðbótar og á meiri hita en þá breyttist liturinn og dökknaði.
Ég ákvað að hella þessu yfir smjörpappír og setja í kaldan ofn til kælingar.

Í millitíðinni smakkaði ég það sem fór í frystinn og það var perfect! ... hin karamellan varð hinsvegar hörð og stökk og bragðið öðruvísi.
Greinilega hitnað of mikið en bragðið minnir á toffy eða Dime ...
Ætla að endurtaka þetta fljótlega.

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 21:44
af mundivalur
haha góður :happy
Hér eru hitadæmi fyrir karamellu og flr. !
hitastig.jpg
hitastig.jpg (27.42 KiB) Skoðað 1780 sinnum

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 21:51
af GuðjónR
Þannig að áferðinni (þ.e. hvort karamellan er hörð eða mjúk) er stjórnað með hitastigi?
Leiðbeiningarnar sem ég hafði voru þannig að þegar sleifin skildi eftir sig "far" þá væri karamellan tilbúin...en hún skildi aldrei eftir sig fara hahaha...
Ætla að stilla hita í hóf næst...kannski borgar sig að kaupa hitamæli.

Annars er mest spennandi að prófa lakkrís :)

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 22:12
af vesley
chaplin skrifaði:
vesley skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Pff.

1. Kaupa 10 mismunandi tegundir af súkkulaði
2. Bræða í pott
3. Borða með skeið og bestu lyst.



Nota bara rör :happy



Ég sem get varla smakkað á súkkulaði..


Ég er sjálfur ekkert mikið fyrir súkkulaði, fæ fljótt ógeð.

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 22:14
af chaplin
Mig langar að skíra þennan þráð "Diabetes incoming".

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 22:19
af worghal
chaplin skrifaði:Mig langar að skíra þennan þráð "Diabetes incoming".


Mynd

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 22:19
af mundivalur
Lakkrísinn tókst vel núna :megasmile notaði Dóminó uppskriftina fyrir ofan að vísu skifti ég henni í tvennt og bara 10gr salmíak + ca. 4ml anís olía
OG alls ekki kaupa 22% lakkrísduft nema þú sért fyrir beiskju eða svipað og apótekara lakkrís, minnir hann heita það, hinn 12-14% lakkrísinn er góður eins og utan á drakúla molum :D

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 22:23
af GuðjónR
mundivalur skrifaði:Lakkrísinn tókst vel núna :megasmile notaði Dóminó uppskriftina fyrir ofan að vísu skifti ég henni í tvennt og bara 10gr salmíak + ca. 4ml anís olía
OG alls ekki kaupa 22% lakkrísduft nema þú sért fyrir beiskju eða svipað og apótekara lakkrís, minnir hann heita það, hinn 12-14% lakkrísinn er góður eins og utan á drakúla molum :D

mmmm....er allt stöffið keypt í slikkeri.is?

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Mið 10. Okt 2012 23:10
af mundivalur
já slikkeri.is en keypti stóra dollu af gelatín hjá alltíköku og mæli ekki með því :thumbsd vond lykt og leystist ekki 100% upp

Re: NammiGerðarÞráðurinn !

Sent: Fim 11. Okt 2012 13:41
af GuðjónR
Gelatin, er það ekki unnið úr beljubeinum?


Sent from my iPhone using Tapatalk