Síða 1 af 1

Vantar hjálp vegna loftviftu

Sent: Þri 09. Okt 2012 19:38
af mikkidan97
Sælir vaktarar, móðir mín var að finna eina gamla og fallega loft/spaða-viftu, og ljósin virka, en mótorinn vill ekki snúast. :mad :mad :mad
Veit einhver ykkar hvað gæti verið að?(Allar hugmyndir vel þegnar) :happy :happy

Hér er mynd af öllu heila klabbinu:

Mynd

Hér er mynd af svarta kubbnum:

Mynd

Re: Mig vantar smá hjálp

Sent: Þri 09. Okt 2012 21:13
af Xberg
Þú áttar þig á þvi að það eru oftast "2" fasar í svona viftum 1.fyrir ljós og 1.fyrir mótor

Svarti kubburinn er startþéttir sem á að vera tengdur í Núll(N) og Fasa(L) fyrir mótor

Sýnist á myndinni að Rauður sé (L) fyrir ljós og svartur sé (L) fyrir motor

Vonandi reddast þetta hjá þér :)

Re: Mig vantar smá hjálp

Sent: Mið 10. Okt 2012 16:44
af mikkidan97
Xberg skrifaði:Þú áttar þig á þvi að það eru oftast "2" fasar í svona viftum 1.fyrir ljós og 1.fyrir mótor

Svarti kubburinn er startþéttir sem á að vera tengdur í Núll(N) og Fasa(L) fyrir mótor

Sýnist á myndinni að Rauður sé (L) fyrir ljós og svartur sé (L) fyrir motor

Vonandi reddast þetta hjá þér :)


Þú þarft að útskýra þetta eins og fyrir 2 ára barni :baby , því ég veit ekkert um hvað þú ert að tala, t.d. útskýrðu hvað í andskotanum eru fasar?

Re: Mig vantar smá hjálp

Sent: Mið 10. Okt 2012 17:07
af mind
Ahh fólk sem hefur ekki vit á rafmagni að fikta í því, þetta gæti orðið spennandi - bókstaflega.

Re: Mig vantar smá hjálp

Sent: Mið 10. Okt 2012 17:11
af mikkidan97
mind skrifaði:Ahh fólk sem hefur ekki vit á rafmagni að fikta í því, þetta gæti orðið spennandi - bókstaflega.

Ég er vanalega að vinna með DC og Á ENSKU, svo þú getur stungið þessu off-topic svari þangað sem sólin aldrei skín

Re: Mig vantar smá hjálp

Sent: Mið 10. Okt 2012 18:19
af Klemmi
mikkidan97 skrifaði:
mind skrifaði:Ahh fólk sem hefur ekki vit á rafmagni að fikta í því, þetta gæti orðið spennandi - bókstaflega.

Ég er vanalega að vinna með DC og Á ENSKU, svo þú getur stungið þessu off-topic svari þangað sem sólin aldrei skín


Rólegan æsing vinur.

Haldið þessum þræði on-topic og passið munnsöfnuðinn.

Re: Mig vantar smá hjálp

Sent: Mið 17. Okt 2012 08:45
af ManiO
Og lýsandi titil...

Sem komið er, flott :)