I am job! Vantar fólk tölvutengd störf
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7598
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1193
- Staða: Ótengdur
I am job! Vantar fólk tölvutengd störf
Það má alveg endilega fjölga vökturum hjá okkur ;-)
Update-aði allt annað hér fyrir neðan :-)
Þeir sem hafa látið það stoppa sig að þurfa vinna með mér, þeir sleppa við það núna :-)
Ég hætti um næstu mánaðarmót, vantar rétt um 55 daga upp á að ná 10 árum hjá LSH.
HUT er samt súper vinnustaður sem ég mæli eindregið með, skemmtilegur mórall og frábært samstarfsfólk.
Fyrir utan helling af spennandi verkefnum og mötuneyti sem kemur ætíð á óvart.

Síðast breytt af rapport á Lau 25. Mar 2017 01:24, breytt samtals 1 sinni.
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1068
- Skráði sig: Lau 27. Mar 2010 18:16
- Reputation: 28
- Staðsetning: Terra
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
maður verður að fara ná sér í einhverja pappíra
MSi z270 Tomahawk | i7 7700k | Gigabyte RTX 2080 8Gb | 16GB 3000mhz Corsair vengeance | Samsung 1TB 980 Pro NVMe/M.2 SSD | ASRock CL25FF | HAF 912 Plus | Logitech z625 THX |
-
- Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Reputation: 0
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
Hargo skrifaði:Er spítalinn að borga sæmilega hvað varðar störf í tölvuþjónustunni hjá þeim?
Án þess að fullyrða neitt um það þá hugsa ég ekki. Ríkisstofnanirnar geta því miður ekki keppt við einkageirann þegar kemur að launum.
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7598
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1193
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
coldcut skrifaði:Hargo skrifaði:Er spítalinn að borga sæmilega hvað varðar störf í tölvuþjónustunni hjá þeim?
Án þess að fullyrða neitt um það þá hugsa ég ekki. Ríkisstofnanirnar geta því miður ekki keppt við einkageirann þegar kemur að launum.
Laun eru afstætt hugtak.
Ríkið getur ekki keppt í "krónum", sérstaklega ekki LSH, en starfsöryggi, sveigjanleiki, starfsþróun, möguleikar t.d. á samstarfi við aðrar stofnanir eða ýmis önnur tækifæri innan opinbera geirans. (ef fólk vinnur vinnuna sína)
Það er ákveðin hugsjón að vinna hjá ríkinu og þvert á það sem fólk segir, þá þarf hellings metnað.
Þjónustuborðið á LSH tekur á móti 58.000 erindum á ári í síma, tölvupóst eða í gegnum semi úrelt beiðnakerfið.
Við sjáum um aðgangsumsjón skv. lögum um rafræna sjúkraskrá (45.000 aðgangsbreytingar fyrstu níu mánuði þessa árs (ekki innifalið í þessum 58.000))
Við sinnum vettvangsþjónustu hjá LSH sem er á c.a. 30 lóðum í RVK og um 70 byggingum.
Auglýsingin segir að um 70 séu á deildinni, þar af eru um 15 á þjónustuborðinu sem skiptist svo í nokkra hluta sem reynt er að rótera fólki á milli, s.s. símaþjónusta, bakvinnsla, vettvangsþjónusta og aðgangsstjórnun.
Við erum ISO 27001 vottuð og erum að reyna að tileinka okkur ITIL a.m.k. í nálgun við veitingu þjónustu.
Hjá flestum fyrirtækjum er einhver sem hefur unnið hjá LSH, Advania, Nýherji, OK, HR a.m.k. sem mér dettur strax í hug... bara spyrja viðkomandi hvernig það var og fá þetta beint í æð.
Einnig er sjálfsagt mál að senda póst, hafa samband í síma og jafnvel kíkja í heimsókn ef einhver vafi blundar í ykkur.
-
- Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Reputation: 0
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
@rapport
Ekki misskilja mig sko, það er ekkert að því að vinna hjá ríkinu og það hefur sína kosti og galla eins og allt annað. En eftir að hafa sjálfur unnið hjá ríkisstofnun þá veit ég að þær geta ekki keppt við einkageirann í krónum.
Ég kannski svaraði Hargo vitlaust og hér kemur betra svar: Já þeir borga ágætlega en einkageirinn borgar yfirleitt betur.

- Bara að hanga
- Póstar: 1524
- Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
- Reputation: 132
- Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
rapport skrifaði:Það má alveg endilega fjölga vökturum hjá okkur ;-)
er einnmitt í kerfistjóranum núna og hafði hugsa mér þetta sem fínasta stað til að ná í reynslu eftir skóla. kanski maður sæki bara um
MCTS Nov´12
Asus eeePc
Asus eeePc
-
- Vaktari
- Póstar: 2192
- Skráði sig: Mið 21. Nóv 2007 02:25
- Reputation: 0
- Staðsetning: /dev/random
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
Ég væri persónulega alveg spenntur að vinna þarna strax eftir skóla. Ef ég væri að útskrifast um jól eða næsta sumar og væri á Íslandi þá mundi ég pottþétt sækja um Húgbúnaðarstöðuna.
@rapport: Í hvaða kerfum eruði að vinna? Er forritað í ákveðnum málum? Eruði mikið í M$-lausnum?
...er basically að spyrja: "Eruði Windows-sjoppa?"

- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
Tek einmitt eftir því að það er ekki sóst eftir forriturum með ákveðið "skillset" sem ætti nú að vera jákvætt fyrir menn nýkomna útúr skóla. Ég sótti um þarna þegar ég var að útskrifast á sínum tíma, en bauðst "betra".
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7598
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1193
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
coldcut skrifaði:Ég væri persónulega alveg spenntur að vinna þarna strax eftir skóla. Ef ég væri að útskrifast um jól eða næsta sumar og væri á Íslandi þá mundi ég pottþétt sækja um Húgbúnaðarstöðuna.
@rapport: Í hvaða kerfum eruði að vinna? Er forritað í ákveðnum málum? Eruði mikið í M$-lausnum?
...er basically að spyrja: "Eruði Windows-sjoppa?"
Við erum AD oriented en erum að keyra nokkuð af þjónum á RedHat.
Ég get ekki svarað þessu en mestri forritun er að ég held úthýst.
Þetta er meira spurning um að reka kerfin, skilgreina kröfur, prófa patcha og uppfærslur með þeim kerfum sem viðkomandi hefur usmjón með o.þ.h.
Kerfin á sem mynda eina heild sem "rafræn sjúkraskrá" hlaupa á tugum og eru mis gömul svo bætast ýmis innri kerfi við, skrifstofukerfi, kassakerfi, Business Objects, Webmethods ofl. ofl.
Úrvalið er of mikið held ég, það þarf að fækka á skipulegan og vandaðan hátt.
Ég er samt í tækniþjónustunni, þekki það betur... er a.k.a. þessi Kjartan, þarna undir tækniþjónustustarfinu ;-)
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 678
- Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
- Reputation: 0
- Staðsetning: Keyboard central
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
rapport skrifaði:..snip..
Ríkið getur ekki keppt í "krónum", sérstaklega ekki LSH, en starfsöryggi, sveigjanleiki, starfsþróun, möguleikar t.d. á samstarfi við aðrar stofnanir eða ýmis önnur tækifæri innan opinbera geirans. (ef fólk vinnur vinnuna sína)
Ég hló
-
- Kóngur
- Póstar: 6401
- Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
- Reputation: 472
- Staðsetning: fyrir aftan þig
- Staða: Tengdur
Re: I am job!
corflame skrifaði:rapport skrifaði:..snip..
Ríkið getur ekki keppt í "krónum", sérstaklega ekki LSH, en starfsöryggi, sveigjanleiki, starfsþróun, möguleikar t.d. á samstarfi við aðrar stofnanir eða ýmis önnur tækifæri innan opinbera geirans. (ef fólk vinnur vinnuna sína)
Ég hló
það er ekki verið að tala um hjúkrunarfræðinga.
CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7598
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1193
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
worghal skrifaði:corflame skrifaði:rapport skrifaði:..snip..
Ríkið getur ekki keppt í "krónum", sérstaklega ekki LSH, en starfsöryggi, sveigjanleiki, starfsþróun, möguleikar t.d. á samstarfi við aðrar stofnanir eða ýmis önnur tækifæri innan opinbera geirans. (ef fólk vinnur vinnuna sína)
Ég hló
það er ekki verið að tala um hjúkrunarfræðinga.
Ef að þú ert fastráðinn hjá ríkinu þá þarf að ganga svolítið mikið á áður en hægt er að segja þér upp.
En ef þú ert lausráðinn þá ertu að sjálfsögðu látinn fara ef þú stendur þig ekki, því að vitandi hvað fastráðning þýðir, þá eru ekki miklir sénsar teknir í ráðningum.
En spítalinn er ekki að hætta að nota tölvur, þvert á móti.
Mikill þrýstingur er á að það verði höfð ein rafræn sjúkraskrá á landsvísu og m.v. 4 milljarða sem Orri kostaði, þá held ég að verðmiðinn sé áætlaður um 14 milljarðar fyrir sjúkraskránna.
Enda gilda miklu strangari lög um sjúkráskrá en bókhald og umsýslan meiri. T.d. röntgen og CT myndir sem taka óhemju pláss. Minnir að CT tækin dæli frá sér einhverjum 2-4 Gb/sek af gögnum á meðan myndatöku stendur.
Þá er það líka nýji spítalinn sem MUN rísa á næstunni (krossa fingur).
En það eru líka tölvur inn á skurðstofum og það kemur fyrir að vettvangsþjónustan þurfi að fara þar inn, jafnvel í aðgerð, annars eftir aðgerð á meðan stofan er "skítug". Við fáum ekki að fara inn í þær hreinar (enda yrðu þær um leið"skítugar".
Við tökum trúnað mjög alvarlega og ræðum ekki það sem við verðum vitni að úti á spítala við einn eða neinn, jafnvel ekki vinnufélaga.
Þjónustuborðið sér þó einnig um vöktun ákveðinna samninga og hefur eftirlit með þjónustu þriðju aðila að einhverju leiti, t.d. http://prezi.com/krdsm_qkw2ym/kynning-aljonusta-vi-prentumhverfi-lsh/
Hjá okkur er líka "rekstrarvakt" sem hefur auga með vinnslu kerfa og skráir frávik ef einhver eru.
ahhh... er að muna...
Við erum að fara taka við rekstri/þjónustu við fjarfundabúnaði LSH og 15-20 helstu fundar- og kennslusölunum. Það er því pottþétt + að kunna réttu handtökin í þeim efnum.
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 678
- Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
- Reputation: 0
- Staðsetning: Keyboard central
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
rapport skrifaði:worghal skrifaði:corflame skrifaði:rapport skrifaði:..snip..

Gjörsamlega rangt.
Sem fyrrverandi ríkisstarfsmaður hjá umræddri stofnun, á umræddu sviði, þá get ég fullvissað þig um að það þarf ekkert að "ganga á" áður en sagt er upp.
Það hafa heilu deildirnar þarna fengið uppsagnarbréf þar sem allar stöður eru "lagðar niður".
Jafnvel þó á sviðsfundi nokkrum vikum áður hafi öllum verið sagt að ekki yrði skorið niður þarna.
Það er allt "starfsöryggið" hjá ríkinu í dag.
Að mörgu leyti er LSH ágætis vinnustaður, en starfsöryggi og laun eru ekki sölupunktar.
-
- Gúrú
- Póstar: 565
- Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
- Reputation: 45

Er e-ð verið að vinna í nýju kerfi fyrir sjúkraskrána eða er það bara "áætlað"?
Er búinn að fikta aðeins í þessu kerfi, og ofboðslega fannst mér það leiðinlegt og hægvinnandi. Maður þarf að skrá sig inn í sér forrit t.d. til að sjá hjartalínurit og læknirinn sem var að kenna mér var í stökustu vandræðum að muna mismunandi lykilorð og svona :/
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7598
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1193
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
corflame skrifaði:Gjörsamlega rangt.
Sem fyrrverandi ríkisstarfsmaður hjá umræddri stofnun, á umræddu sviði, þá get ég fullvissað þig um að það þarf ekkert að "ganga á" áður en sagt er upp.
Það hafa heilu deildirnar þarna fengið uppsagnarbréf þar sem allar stöður eru "lagðar niður".
Jafnvel þó á sviðsfundi nokkrum vikum áður hafi öllum verið sagt að ekki yrði skorið niður þarna.
Það er allt "starfsöryggið" hjá ríkinu í dag.
Að mörgu leyti er LSH ágætis vinnustaður, en starfsöryggi og laun eru ekki sölupunktar.
Það kom fyrir 2006, ef ég man rétt.
En fyrir 2006 veit ég ekki til þess að það hafi komið fyrir og ekki eftir 2006 heldur.
Af öllum sem hafa unnið þarna í gegnum tíðina þá eru þetta sárafáir einstaklingar og örlítil prósenta.
Ég er nokkuð viss um að hlutfallið er betra hjá LSH en flestum ef ekki öllum í einkageiranum.
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
corflame skrifaði:Gjörsamlega rangt.
Sem fyrrverandi ríkisstarfsmaður hjá umræddri stofnun, á umræddu sviði, þá get ég fullvissað þig um að það þarf ekkert að "ganga á" áður en sagt er upp.
Það hafa heilu deildirnar þarna fengið uppsagnarbréf þar sem allar stöður eru "lagðar niður".
Jafnvel þó á sviðsfundi nokkrum vikum áður hafi öllum verið sagt að ekki yrði skorið niður þarna.
Það er allt "starfsöryggið" hjá ríkinu í dag.
Að mörgu leyti er LSH ágætis vinnustaður, en starfsöryggi og laun eru ekki sölupunktar.
Og fengu ekki allir fastráðnir starfsmenn biðlaun?
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 678
- Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
- Reputation: 0
- Staðsetning: Keyboard central
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
rapport skrifaði:corflame skrifaði:Gjörsamlega rangt.
Sem fyrrverandi ríkisstarfsmaður hjá umræddri stofnun, á umræddu sviði, þá get ég fullvissað þig um að það þarf ekkert að "ganga á" áður en sagt er upp.
Það hafa heilu deildirnar þarna fengið uppsagnarbréf þar sem allar stöður eru "lagðar niður".
Jafnvel þó á sviðsfundi nokkrum vikum áður hafi öllum verið sagt að ekki yrði skorið niður þarna.
Það er allt "starfsöryggið" hjá ríkinu í dag.
Að mörgu leyti er LSH ágætis vinnustaður, en starfsöryggi og laun eru ekki sölupunktar.
Það kom fyrir 2006, ef ég man rétt.
En fyrir 2006 veit ég ekki til þess að það hafi komið fyrir og ekki eftir 2006 heldur.
Af öllum sem hafa unnið þarna í gegnum tíðina þá eru þetta sárafáir einstaklingar og örlítil prósenta.
Ég er nokkuð viss um að hlutfallið er betra hjá LSH en flestum ef ekki öllum í einkageiranum.
2001 auk 2006, hef ekki heyrt um fleiri (sem útilokar samt ekki fleiri slík).
Heildarprósentan skiptir ekki máli, ef þú ert einn af þeim sem lendir í þessu, þá er það 100% vont.
En ekki misskilja mig, ég hef ekkert á móti LSH sem slíkum, fannst bara skjóta skökku við að tala um starfsöryggi sem sölupunkt.
Það er liðin tíð að starfsöryggi sé meira hjá ríkinu heldur en einkageiranum, fundu leið framhjá bókstaf laganna með því að nota "leggja niður starfið" aðferðina.
-
- Tölvutryllir
- Póstar: 678
- Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
- Reputation: 0
- Staðsetning: Keyboard central
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
Daz skrifaði:corflame skrifaði:Gjörsamlega rangt.
Sem fyrrverandi ríkisstarfsmaður hjá umræddri stofnun, á umræddu sviði, þá get ég fullvissað þig um að það þarf ekkert að "ganga á" áður en sagt er upp.
Það hafa heilu deildirnar þarna fengið uppsagnarbréf þar sem allar stöður eru "lagðar niður".
Jafnvel þó á sviðsfundi nokkrum vikum áður hafi öllum verið sagt að ekki yrði skorið niður þarna.
Það er allt "starfsöryggið" hjá ríkinu í dag.
Að mörgu leyti er LSH ágætis vinnustaður, en starfsöryggi og laun eru ekki sölupunktar.
Og fengu ekki allir fastráðnir starfsmenn biðlaun?
Þú ert væntanlega að meina lögbundin laun á uppsagnartíma? (3 mánuðir fyrir flesta).
Jú, fengum það. En ekkert meir heldur en í einkageiranum.
Re: I am job!
Ekki hjá Ríkinu eða LSH reyndar en ég kannast við tilfelli (hjá bæjarfélagi) þar sem það var ráðinn inn "yfirmaður" yfir eins manns "deild" og svo var undirmannsstaðan lögð niður. Man ekki alveg söguna en þetta var sirka plottið.corflame skrifaði:Það er liðin tíð að starfsöryggi sé meira hjá ríkinu heldur en einkageiranum, fundu leið framhjá bókstaf laganna með því að nota "leggja niður starfið" aðferðina.
Annars hljómar þetta rosa spennandi vinna, krefjandi verkefni...
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
corflame skrifaði:
Þú ert væntanlega að meina lögbundin laun á uppsagnartíma? (3 mánuðir fyrir flesta).
Jú, fengum það. En ekkert meir heldur en í einkageiranum.
Nei ég meinti nú biðlaun, þegar starf er lagt niður hjá ríkinu og ekki annað álíka starf í boði þá borgaði ríkið biðlaun í auka 3-12 mánuði. Kannski er búið að leggja það af eða einhver fleiri skilyrði sem þarf að uppfylla.
Starfsöryggið er samt gott, það að störf séu lögð niður er líklega mun sjaldgæfara en að fyrirtæki fer á hausinn (svona hlutfallslega miðað við heildarstörf osfrv.) sem og að ef þú ert með starf sem er ekki verið að leggja niður þá þarf ýmislegt að ganga á til að þu missir vinnuna. Skilst mér, ég hef svosem ekkert fyrir mér í þessu og nenni ekki að leita það betur uppi.
Auðvitað er sárt fyrir fólk að missa vinnuna, en mig grunar að það sé sjaldgæfara hjá ríkinu en í einkageiranum. Væri nú gaman að finna einhverjar tölur yfir það.
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7598
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1193
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
Samt valid punktar hjá corflame, starfsöryggi er ekki 100%, annað væri vægast sagt óeðlilegt.
Svo er bara spurning hvort fólk túlki þetta sem slæmt eða gott að gengið sé hart í að endurnýja mannskap öðru hvoru.
Svo er bara spurning hvort fólk túlki þetta sem slæmt eða gott að gengið sé hart í að endurnýja mannskap öðru hvoru.
-
- Bara að hanga
- Póstar: 1524
- Skráði sig: Sun 07. Des 2008 10:19
- Reputation: 132
- Staðsetning: Hér og þar..........Aðalega þar...
- Staða: Ótengdur
Re: I am job!
það er allavegana næg vinna frammundan hjá þeim...
http://ruv.is/frett/mikill-kostnadur-vid-tolvukerfi-lsh
http://ruv.is/frett/mikill-kostnadur-vid-tolvukerfi-lsh
MCTS Nov´12
Asus eeePc
Asus eeePc
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 7598
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1193
- Staða: Ótengdur
Re: I am job! Vantar fólk tölvutengd störf
Datt í hug að lífga up á þennan þráð okkur vantar tvo þjónustulundaða starfsmenn í Tölvuþjónustuna...
Síminn hjá mér er reyndar ekki lengur 543-5269, er með 543-1680 og kjartan@lsh.is
Númer eitt er þjónustulund og að geta unnið með fólki.
Endilega hafa samband og kíkja á okkur ef þið hafið áhuga...