Síða 1 af 1

Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:06
af GuðjónR
Var að horfa á trailerinn sem lofar góðu.
Þið sem hafið séð hana, hvernig smakkast?
Prime Bbcode Spoiler Show Prime Bbcode Spoiler: Trailer

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:09
af worghal
Vorum vid ekki med svaka umraedu um myndina thegar hun kom ut?

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:15
af axyne
Mér fannst hún góð, mæli alveg með henni.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:17
af Yawnk
Fór á hana í bíó, fannst hún mjög fín, horfðu á hana :)

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:20
af Squinchy
Ég færi á framhaldið í bío, mæli með henni

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:25
af AciD_RaiN
Hún kom mjög á óvart... Mjög góð imo

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:30
af Zorky
Mæli með að bíða ef þið eruð ekki búinn að sjá hana og fá hana á blu ray það var bætt við myndina eftir bíó annars fannst mér hún mjög góð er mikið fyrir sci fi.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:31
af ManiO
Skiptist í tvo helminga. Fyrri helmingurinn var góður. Seinni var arfa slappur.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:32
af oskar9
ég var ekki nógu sáttur, helti mér nóg yfir hana í hinum þræðinum, sótti hana samt sem áður í Blu ray í gær, þar sem þetta er mjög flott og vel gerð mynd ( landslag, tónlist og grafík)

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 16:43
af Talmir
Fín mynd. Leave your brain at the door.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 17:49
af Varasalvi
ManiO skrifaði:Skiptist í tvo helminga. Fyrri helmingurinn var góður. Seinni var arfa slappur.


x2 á þetta, alveg sammála.

Minnir mig á Full metal Jacket, ég fílaði bara fyrri helminginn :p

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 18:38
af GuðjónR
Zorky skrifaði:Mæli með að bíða ef þið eruð ekki búinn að sjá hana og fá hana á blu ray það var bætt við myndina eftir bíó annars fannst mér hún mjög góð er mikið fyrir sci fi.

Er einmitt með hana í 1080 gæðum og ætla að horfa í kvöld :)

worghal skrifaði:Vorum vid ekki med svaka umraedu um myndina thegar hun kom ut?

Rétt ég var búinn að gleyma þræðinum.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 19:08
af svanur08
GuðjónR skrifaði:
Zorky skrifaði:Mæli með að bíða ef þið eruð ekki búinn að sjá hana og fá hana á blu ray það var bætt við myndina eftir bíó annars fannst mér hún mjög góð er mikið fyrir sci fi.

Er einmitt með hana í 1080 gæðum og ætla að horfa í kvöld :)

worghal skrifaði:Vorum vid ekki med svaka umraedu um myndina thegar hun kom ut?

Rétt ég var búinn að gleyma þræðinum.


möst að hlusta á hana líka í 5.1 kerfi svaka sound í myndinni ;)

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 19:30
af Benzmann
Squinchy skrifaði:Ég færi á framhaldið í bío, mæli með henni


þú gerir þér grein fyrir að að þessi mynd á að ske á undan öllum Alien myndunum (s.s byrjunin) ??????

ef þú hefur ekki séð gömlu myndirnar eða framhaldið, sæktu þér þá Alien Quadrilogy

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 19:36
af hfwf
Benzmann skrifaði:
Squinchy skrifaði:Ég færi á framhaldið í bío, mæli með henni


þú gerir þér grein fyrir að að þessi mynd á að ske á undan öllum Alien myndunum (s.s byrjunin) ??????

ef þú hefur ekki séð gömlu myndirnar eða framhaldið, sæktu þér þá Alien Quadrilogy


Best að vera með; Gerir þér grein fyrir því að þessi mynd á að ske í sama 'verse' en er ekki prequel alien myndana.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Fös 28. Sep 2012 20:54
af Sphinx
mér fannst hún góð i cam gæðum :megasmile

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Lau 29. Sep 2012 00:45
af Svansson
Ég og bróðir minn horfðum á allar Alien myndirnar og fórum svo á Promethesu í bío og fannst mér það geðveikt. Skillst að hún sé kominn í almennileg 1080p gæði núna.
Kannski maður lýti á það :P

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Lau 29. Sep 2012 11:27
af elv
ManiO skrifaði:Skiptist í tvo helminga. Fyrri helmingurinn var góður. Seinni var arfa slappur.



Amm :(
Þegar maður fer að hugsa hana þá er hún arfaslæm, það meikar lítið séns í henni.Og hún er hundleiðileg í annari horfun

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Lau 29. Sep 2012 13:10
af Falk65
myndin er ágæt þó svo að í upphafi komi fram að ateriðin sem tekin eru hér eiga að ské í skotlandi :( ekki minnst á Ísland í eftirorðum eða neinu sambandi við myndina skil ekki hvað við erum að hleypa þessu kvikmyndaliði sem heftir för okkar um vegi sem er bannað samkvæmt lögum og fáum svo og svo mikla landkynningu út á það en svo er ekki minnst á það hvar mikið af myndini er tekið upp og hvaða land býður upp á þetta oiðjafnanlega landslag

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Lau 29. Sep 2012 17:53
af AntiTrust
Fannst hún fín, ekkert meira en það. Eina sem var vit í var myndatakan, mjög flott scene sum, fannst hinsvegar Charlize Theron passa illa í þetta hlutverk.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Lau 29. Sep 2012 18:30
af Varasalvi
AntiTrust skrifaði:Fannst hún fín, ekkert meira en það. Eina sem var vit í var myndatakan, mjög flott scene sum, fannst hinsvegar Charlize Theron passa illa í þetta hlutverk.


Undarlegt, fannst hún leika þetta hlutverk vel, einnig fannst mér Noomi Rapace vera frábær.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Lau 29. Sep 2012 20:55
af DabbiGj
Falk65 skrifaði:myndin er ágæt þó svo að í upphafi komi fram að ateriðin sem tekin eru hér eiga að ské í skotlandi :( ekki minnst á Ísland í eftirorðum eða neinu sambandi við myndina skil ekki hvað við erum að hleypa þessu kvikmyndaliði sem heftir för okkar um vegi sem er bannað samkvæmt lögum og fáum svo og svo mikla landkynningu út á það en svo er ekki minnst á það hvar mikið af myndini er tekið upp og hvaða land býður upp á þetta oiðjafnanlega landslag




Atriðin sem þú ert að tala um eru ekki skotin hér.... atriðin sem eru skotin hér er þegar að flogið er yfir landið, jöklar, stórbrotið landslag og fossinn í upphafi, svo eru útisenurnar á geimveruplánetunni teknar hér.

Þær vegalokanir sem að áttu sér stað voru í Dómadal í landi sem að er í einkaeign og var leigt undir þetta og búin var til hjáleið á meðan og svo var Dettifoss lokað í nokkra daga, þessi mynd skilaði milljörðum í þjóðarbúið og 200 manns unnu í nokkra mánuði við hana. Gaman að lífsviðurværi fólks skuli valda þér svona miklum óþægindum.

Re: Einhver búinn að sjá Prometheus ?

Sent: Lau 06. Okt 2012 13:28
af Falk65
Já kallinn minn þegar það kemur niður á lífsviðurværi mínu að fara með erlenda veiðímenn um landið

Til að mynd var mér meinaður aðgangur að á á suðausturlandui í 7 tíma fyersta morgunin núna á dögubnum meðan Ben Stiller var að taka upp senu þar og þetta er í annað sinn sem þetta hendir í hitt skifti'ð var það upp á hálendinu og tengdist töku Promotheus og hafði ekkert með einkaland að gera helædur afrétt á sprengisandi og það á vegi en í landslögum segir ekki má hefta för manna eftir vegi eða á vegi þósvo að um einkavegi sé að ræða þá er menn þurfa að nota til að komast á annað land

Mér er skítsama þó þetta skapi einhverjar millur í þjóðarbúið þetta skapar minna en það sem ég starfa við og þetta skapar örfá störf miðað við framlegðina og er ekkert nema einkavinavæddur rassasleikjuskapur þeirra sem fást við að keyra og stjana við þetta lið

Þetta hefur kostað mig slatta af peningum og óánægðum viðskiftavinum og það má ekki tala um það en þetta verður blaðamála ef þeir Íslensku aðilar sem þjóna þessu hyski sem gengur yfir allt og alla með frekjuni greiðir ekki skaðabætur