Síða 1 af 2
Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 03:57
af Krissinn
Mig langaði svona að forvitnast hvort einhver veit afhverju vörumerkið Pizza 67 hvarf nánast af Íslenskum markaði? Er ekki eini staðurinn sem hefur vörumerkið Pizza 67 enn þann dag í dag í Vestmannaeyjum? Hvað varð um alla hina staðina sem notuðu þetta nafn? Og er staðurinn í Dk,CPH ennþá starfandi undir sama nafni? Man eftir að það þótti mjög ,,cool" að fá pantaða pizzu af Pizza 67 í æsku, allavegana hjá okkur systkynunum... Held að ég hafi fengið seinast Pizzu þaðan árið 1995 eða 96 á Akureyri.... :p
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 05:45
af Danni V8
Vá, hvað ég væri til í að vita þetta líka! Maður fær hálfgerða nostalgíu við tilhugsunina að fá Pizza 67 pizzu. Í Keflavík er kominn asískur staður sem heitir Panda þar sem Pizza 67 var.
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 05:59
af Krissinn
Danni V8 skrifaði:Vá, hvað ég væri til í að vita þetta líka! Maður fær hálfgerða nostalgíu við tilhugsunina að fá Pizza 67 pizzu. Í Keflavík er kominn asískur staður sem heitir Panda þar sem Pizza 67 var.
Nú okey, Ég hélt að Pizza 67 var þar sem Manhattan er hehe, greinilega misskilningur.... :p
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 07:34
af Bragi Hólm
Er ekki Pizza 67 ennþá á Selfossi?
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 08:23
af svanur08
Jón Bakan voru líka góðar pizzur.
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 08:37
af Talmir
Ég vann sem pizzasendill þegar þeir voru upp á höfða. Virkilega góðar pizzur og fínn staður til að vinna á en maður fann að hlutirnir voru á niðurleið því það var minni sala í hverri viku. Minnir að megaviku tilboðin hjá Dominoz hafi klárað dæmið.
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 08:57
af Steini B
Bragi Hólm skrifaði:Er ekki Pizza 67 ennþá á Selfossi?
Nei, langt síðan það hvarf, það er bakarí þar núna og var eitt annað í millitíðinni
Mér fannst þetta með betri pizzum sem maður gat fengið á þeim tíma.
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 09:28
af Frost
Fékk seinast Pizza 67 árið 2006 í Færeyjum, ætli þeir séu ekki ennþá þar
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 09:31
af emmi
Þetta voru langbestu pizzurnar, sakna þeirra mikið.
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 10:47
af Halli25
Það er ennþá Pizza 67 í Hveragerði, staðurinn heitir samt ekki Pizza 67 lengur heldur Hofland Setrið... sami pizza matseðill og var á 67 samt
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 10:59
af beatmaster
Pizzurnar á Hofland setrinu eru bestu pizzur á íslandi, það er staðreynd.
Ég hélt reyndar að það væri Pizza67 staður lifandi á Siglufirði en það er kanski löngu búið að loka honum líka
http://www.pizza67.fo/ er greinilega lifandi í færeyjum
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 11:00
af Magneto
Pizza 67 er ennþá í eyjum
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 11:03
af Akumo
Frost skrifaði:Fékk seinast Pizza 67 árið 2006 í Færeyjum, ætli þeir séu ekki ennþá þar
Get staðfest þetta xD fæ mér reglulega Pizza 67 þegar ég er í Færeyjum
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 12:26
af urban
Þær eru engan vegin eins góðar núna og þær voru hérna í eyjum.
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 12:27
af AciD_RaiN
Það er Pizza 67 á Siglufirði
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 13:02
af Frost
AciD_RaiN skrifaði:Það er Pizza 67 á Siglufirði
Hvernig gat ég gleymt honum
Fór og fékk mér nokkrar pizzur í sumar hjá Guðna og bróðir hans
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 13:19
af valdij
+1 á Hoflandssetrið.
Þetta er gamla P67. Borðaði þarna fyrst fyrir 2 árum og ég trúði ekki þessu bragði, endaði með að spyrja afgreiðslustúlkuna þarna hvort þetta gæti staðist að þetta væri í alvöru sami matseðill og alveg eins á P67 og það var svo.
Frááabærar pizzur, sakna þess mikið að hafa ekki lengur P67 hérna í miðbænum (Tryggvagötunni) þar sem American Style er núna. Risastór staður, alltaf tómur og þvílikar yfirburða pizzur
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 13:39
af Krissinn
AciD_RaiN skrifaði:Það er Pizza 67 á Siglufirði
Já Okey.... !! Kannski að maður geri sér ferð til Siglufjarðar næst þegar ég fer norður til Akureyrar í Október. Segja bara systir minni að koma með og þá getum við bæði bragðað á Pizza 67 pizzu aftur eftir 16 - 17 ára hlé.... hehehe
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 14:12
af bixer
pizza 67 á siglufirði er samt ekki eins gott og það var. Er alveg hættur að panta þar, sérstaklega þar sem ég fékk óæta pizzu í sumar. Ostabrauðstangirnar eru reyndar furðulega góðar þar
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 18:07
af peturthorra
Ég fæ mér vikulega pizzu á Pizza 67 á Siglufirði og þær eru mjög góðar, Bixer hefur verið óheppinn með þessa óætu í sumar. En Hvítlauksbrauðstangirnar þeirra eru með þeim betri á Íslandi.
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 20:44
af natti
"mér" fannst vandamálið með Pizza67 var að þetta var ekki ein keðja, heldur bara nafn á leigu.
Þannig að það gat verið himinn og haf á milli þess að fá sér pizzu á tveim pizza67 stöðum.
Á sumum 67 stöðum mætti jafnvel halda að þeir hefðu notað tómatssósu í staðinn fyrir pizzasósu, þetta var svo mikil hörmung, en annarsstaðar var pizzan mjög fín.
Annars sakna ég p67 svosem ekkert, það er ennþá nóg af pizza stöðum...
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 21:00
af pattzi
Í vestmannaeyjum og siglufirði
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 21:56
af vesley
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 22:03
af GuðjónR
UM OKKUM
Pizza 67 hevur matstovu í Tórshavn, har eisini er møguleiki at bíleggja útkoyring og takeaway.
Matskráin er fyri tað mesta pizza, burgarar og meksikanskur matur.
Tó er eisini møguligt at keypa sær sandwich, smárættir og dessert.
Og til at sløkkja tostan fæst sodavatn, øl og vín.
Fyndið tungumál, eins og grautur af íslensku/dönsu/ensku.
Er bjór í boði á einhverjum íslenskum pizzastöðum?
Re: Hvað varð um Pizza 67?
Sent: Þri 25. Sep 2012 22:04
af urban
GuðjónR skrifaði:UM OKKUM
Pizza 67 hevur matstovu í Tórshavn, har eisini er møguleiki at bíleggja útkoyring og takeaway.
Matskráin er fyri tað mesta pizza, burgarar og meksikanskur matur.
Tó er eisini møguligt at keypa sær sandwich, smárættir og dessert.
Og til at sløkkja tostan fæst sodavatn, øl og vín.
Fyndið tungumál, eins og grautur af íslensku/dönsu/ensku.
Er bjór í boði á einhverjum íslenskum pizzastöðum?
öllum stöðum hérna í eyjum allaveganna