Síða 1 af 1
Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 19:38
af GuðjónR
Ég er sem betur fer bara með TV hjá Símanum og þarf því ekki að hringja oft í þjónustuverið en ég þurfti þess áðan þar sem þeir læstu fréttunum á Stöð2 annað kvöldið í röð. Og ég var númer 37 í röðinni!!! hálftíma síðar þegar röðin kom að mér (og fréttirnar löngu búnar) þá var bilun kennt um, bilun sem ekki hafði tekist að laga síðan í gær, óútskýrð bilun sem læsir "bara" rás samkeppnisaðilans hehehehe.
Það er nú bara vika síðan VODið virkaði ekki vegna bilunar, HD rásinni sagði ég upp í ágúst með tölvupósti á Símann en það tók þjónustuverið fimm daga að svara mér með þeim skilaboðum að ég ætti að hafa samband við Skjáinn, þjónustuver Símans gat selt mér áskriftina en þeir gátu ekki breytt henni eða fellt hana niður.
Eftir samtal við Skjáinn þá var það auðfengið að fella niður HD rásirnar, þær duttu út samdægurs en reikningurinn gerði það ekki!
Ég hef engan áhuga á því að borga 1390 kr. á mán aukalega fyrir rásir sem ég er þegar að borga fyrir bara til að fá aðeins meiri myndgæði, hvílíkt peningaplokk! 8.510 kr á mán gera yfir 100k á ári...spurning um að hætta þessari vitleysu og fá sér disk utan á húsið.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 19:50
af Klemmi
Usss, rosalega er þetta misjafnt, ég hringdi inn í gær þar sem Ring-tilboð voru ekki að sendast í símann hjá mér og hafði ekki gert í nokkra daga, var númer 18 í röðinni svo ég setti bara símann á loudspeaker og hélt áfram í tölvuleik.
Loksins komin röðin að mér, ég útskýrði fyrir henni vandamálið og hún gat ekki fundið út í einum grænum hvað væri að en sagðist ætla að senda þetta áfram á tæknideildina en bauð mér strax, án þess að ég minntist nokkuð á það, 1000kr.- inneign fyrir óþægindin. Ég þakkaði fyrir mig, svo 5 mín eftir þetta samtal, þá fékk ég MMS með tilboðinu
En varðandi þína sögu, þá finnst mér alltaf voðalega skrítið hvað er erfitt að klára reikningamál og loka á þjónustu og þess háttar....
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 19:51
af tdog
Stöð 2 stjórna læsingunni. Ekki Síminn. Þér yrði sagt þetta þegar þú yrðir loks númer 1 röðinni.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 19:51
af Zorky
Penninga plokk er að borga 20k sirca í skatt fyrir sjónvarp sem er ekki einu sinni tengt í loftnet einungis notað í blu ray og dvd.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 19:54
af GuðjónR
tdog skrifaði:Stöð 2 stjórna læsingunni. Ekki Síminn. Þér yrði sagt þetta þegar þú yrðir loks númer 1 röðinni.
Nei, ég hringdi á þjónustuborð Stöðvar 2 áður en ég hringdi á þjónusuborð Símans og þar var mér sagt að Síminn stjórnaði þessum læsingum.
Enda viðurkenndi strákurinn hjá Símanum að þetta væri þeirra "bilun".
Klemmi skrifaði:En varðandi þína sögu, þá finnst mér alltaf voðalega skrítið hvað er erfitt að klára reikningamál og loka á þjónustu og þess háttar....
Alveg óskiljanlegt...
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 20:14
af Moldvarpan
Stöð 2 og SkjárEinn stjórna því sjálfir hvenar þeir læsa og opna dagskrá. En þær fara báðar í gegnum kerfi símans þar sem að þú ert með myndlykil, þeirra flutningsþjónusta á myndefni getur klikkað líka, en það er ólíklegra.
Það er hinsvegar búið að vera bilun í kerfi vodafone síðustu daga, hef ekki heyrt um neina bilun hjá símanum.
Ég hló upphátt þegar ég las titillinn á þræðinum.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 20:23
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Stöð 2 og SkjárEinn stjórna því sjálfir hvenar þeir læsa og opna dagskrá. En þær fara báðar í gegnum kerfi símans þar sem að þú ert með myndlykil, þeirra flutningsþjónusta á myndefni getur klikkað líka, en það er ólíklegra.
Það er hinsvegar búið að vera bilun í kerfi vodafone síðustu daga, hef ekki heyrt um neina bilun hjá símanum.
Ég hló upphátt þegar ég las titillinn á þræðinum.
hahaha titillinn er góður!
Þó st2 og skjárinn ráði því þá er einhver "bilun" sem veldur því að opin dagskrá er læst.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 20:31
af Arnzi
Horfir fólk enn á sjónvarp
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 20:42
af Moldvarpan
GuðjónR skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Stöð 2 og SkjárEinn stjórna því sjálfir hvenar þeir læsa og opna dagskrá. En þær fara báðar í gegnum kerfi símans þar sem að þú ert með myndlykil, þeirra flutningsþjónusta á myndefni getur klikkað líka, en það er ólíklegra.
Það er hinsvegar búið að vera bilun í kerfi vodafone síðustu daga, hef ekki heyrt um neina bilun hjá símanum.
Ég hló upphátt þegar ég las titillinn á þræðinum.
hahaha titillinn er góður!
Þó st2 og skjárinn ráði því þá er einhver "bilun" sem veldur því að opin dagskrá er læst.
Reyndar væri það frekar einhver "bilun" sem veldur að læst dagskrá er ekki ólæst á réttum tíma. Ef þetta væri skjáreinn, þá hefði ég byrjað á að kanna útsendingarstjórann hvort hann væri ekki að gera rétt. Því næst þá þjónustuaðilann.
Eins og þú gerðir, en mér finnst samt kjánalegt hjá stöð2 að benda strax á símann án þess að kíkja á þetta þeirra meginn. En mögulega voru þau búin að fá fleirri símtöl eins og frá þér.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 20:56
af ZiRiuS
Ég vel alltaf ensku ef ég hringi á einhver þjónustuborð og þar er röðin oftast engin. Veit samt ekki hvort það virkar ennþá, hef ekki hringt lengi í þjónustuborð.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 20:59
af GuðjónR
Moldvarpan skrifaði:Eins og þú gerðir, en mér finnst samt kjánalegt hjá stöð2 að benda strax á símann án þess að kíkja á þetta þeirra meginn. En mögulega voru þau búin að fá fleirri símtöl eins og frá þér.
Ég ætla rétt að vona Símans vegna að það sé ekki normið að kúnnarnir séu númer 37 í röðinni og þurfi að bíða hátt í klukkustund eftir þjónustufulltrúa.
Eitthvað segir mér að ég hafi ekki verið sá eini
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 21:26
af andribolla
Vertu feginn að þurfa ekki að hringja í Vodafone. þá veistu bara EKKERT númer hvað þú ert í röðinni,
eithverntiman þegar ég hringdi í þá og benti þeim á að mér fyndist fáránlegt að símfyrirtæki væri ekki með þetta, þá gæti maður allavegana metið það sjálfur hvort maður nenni að bíða ef það séu 40 mans í röð á undan manni.
þau svöruðu því til að simkerfið þeirra myndi einfaldlega ekki bjóða upp á þennan fídus.
man ekki hvern eg var að hringja í um daginn og lenti á bið, Nyherja eða Ömí. og þeir voru með svona teljara.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Lau 15. Sep 2012 23:28
af halldorjonz
Allar stöðvar búnar að fara úti núna hjá okkur í allan dag líka, nema RÚV og ÍNN...
En þarf maður í alvöru að borga meira fyrir að fá HD rúv / HD Stöð 2? Vá djöfulsins fokking kjaftæði er það!!
Var einmitt að velta fyrir mér afhverju ég fékk það ekki inn þegar ég fékk Ljósnet (hélt ég myndi bara fá það auto og það frítt..)
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 03:10
af urban
Moldvarpan skrifaði:Eins og þú gerðir, en mér finnst samt kjánalegt hjá stöð2 að benda strax á símann án þess að kíkja á þetta þeirra meginn. En mögulega voru þau búin að fá fleirri símtöl eins og frá þér.
Ef að fyrirtæki getur bent á einhvern annan, þá gerir það það...
bilunin er alltaf hjá "hinum" aðilanum, bara til að kaupa sér tíma (þess vegna er alveg hrikalegt að vera með línu hjá einu fyrirtæki en tengingu hjá öðru, þau benda alltaf bæði á hitt fyrirtækið)
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 03:42
af GrimurD
andribolla skrifaði:Vertu feginn að þurfa ekki að hringja í Vodafone. þá veistu bara EKKERT númer hvað þú ert í röðinni,
eithverntiman þegar ég hringdi í þá og benti þeim á að mér fyndist fáránlegt að símfyrirtæki væri ekki með þetta,
þá gæti maður allavegana metið það sjálfur hvort maður nenni að bíða ef það séu 40 mans í röð á undan manni.
þau svöruðu því til að simkerfið þeirra myndi einfaldlega ekki bjóða upp á þennan fídus.
man ekki hvern eg var að hringja í um daginn og lenti á bið, Nyherja eða Ömí. og þeir voru með svona teljara.
Þetta er alveg hægt, ég held að þeir vilji bara ekki gera þetta nákvæmlega útaf því sem þú sagðir. Þjónustustigið(tölfræðin) lækkar þegar fólk skellir á. Það hafa þó aldrei verið 40 á bið síðan ég byrjaði þarna, mest 30 sem ég man eftir og það gerist bara þegar það er alvarleg bilun. Mest svona 15-20 á annatímann á meðaldegi og biðin sjaldan meiri en 10 mín.
Margir búnir að kvarta yfir þessu og þar á meðal þjónustufulltrúar, löngu búnir að segjast ætla að koma með einhverja aðra lausn(segja þá t.d. meðal biðtíma seinustu 30 mín eða e-ð álíka) en hafa aldrei deliverað á því.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 04:07
af urban
GrimurD skrifaði:andribolla skrifaði:Vertu feginn að þurfa ekki að hringja í Vodafone. þá veistu bara EKKERT númer hvað þú ert í röðinni,
eithverntiman þegar ég hringdi í þá og benti þeim á að mér fyndist fáránlegt að símfyrirtæki væri ekki með þetta,
þá gæti maður allavegana metið það sjálfur hvort maður nenni að bíða ef það séu 40 mans í röð á undan manni.
þau svöruðu því til að simkerfið þeirra myndi einfaldlega ekki bjóða upp á þennan fídus.
man ekki hvern eg var að hringja í um daginn og lenti á bið, Nyherja eða Ömí. og þeir voru með svona teljara.
Þetta er alveg hægt, ég held að þeir vilji bara ekki gera þetta nákvæmlega útaf því sem þú sagðir. Þjónustustigið(tölfræðin) lækkar þegar fólk skellir á. Það hafa þó aldrei verið 40 á bið síðan ég byrjaði þarna, mest 30 sem ég man eftir og það gerist bara þegar það er alvarleg bilun. Mest svona 15-20 á annatímann á meðaldegi og biðin sjaldan meiri en 10 mín.
Margir búnir að kvarta yfir þessu og þar á meðal þjónustufulltrúar, löngu búnir að segjast ætla að koma með einhverja aðra lausn(segja þá t.d. meðal biðtíma seinustu 30 mín eða e-ð álíka) en hafa aldrei deliverað á því.
ok þetta sem að þú talar um, þá væri reyndar alveg stórkostlegt að fá meðalbiðtíma á síðustu 30 mín (helst síðustu 5 -15 mín)
en ég held að það geri sér nú alveg flestir grein fyrir því að það séu ekki allir að bíða
maður hefur semsagt alveg lennt í því að vera númer 12 í röðinni og síðan næst númer 3 í röðinni.
en aftur á móti, ef að fáir eru að svara þá getur alveg komið fyrir að maður (og já, ég hef lennt í því) að maður sé númer 1 eða 2 í röðinni alveg helvíti lengi (ég tók einvhern tíman eftir því að ég var númer 2 í röðinni í 25 mín)
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 11:35
af Tiger
GuðjónR skrifaði:Moldvarpan skrifaði:Eins og þú gerðir, en mér finnst samt kjánalegt hjá stöð2 að benda strax á símann án þess að kíkja á þetta þeirra meginn. En mögulega voru þau búin að fá fleirri símtöl eins og frá þér.
Ég ætla rétt að vona Símans vegna að það sé ekki normið að kúnnarnir séu númer 37 í röðinni og þurfi að bíða hátt í klukkustund eftir þjónustufulltrúa.
Eitthvað segir mér að ég hafi ekki verið sá eini
Samt betra að vera númmer 37 og bíða í klukkutíma en vera númmer 2 og bíða í klukkutíma
En fá sér bara SKY og láta þetta íslenska okurbatterí bara eiga sig með sínar okur stöðvar!
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 12:51
af AntiTrust
Þetta var nú bara bilun, ekki handvirk læsing. Stöð2 kemur upp svört = Það hringja milljón manns inn út af nákvæmlega sama vandamálinu = Löng bið fyrir "Það er verið að vinna í þessu." svar.
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 13:22
af lifeformes
press 5 for english - virkar alltaf
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 18:30
af GuðjónR
Nei hættið nú alveg...þriðja kvöldið í röð sem þeir læsa Stöð 2
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 20:51
af AntiTrust
lifeformes skrifaði:press 5 for english - virkar alltaf
Ekki lengur. Skilst að e-r viðskiptavinur hafi bent á það, og það hafi verið tekið út samstundis
Re: Þú ert númer 37 í röðinni...
Sent: Sun 16. Sep 2012 22:08
af Glazier
GuðjónR skrifaði:Ég er sem betur fer bara með TV hjá Símanum og þarf því ekki að hringja oft í þjónustuverið
Nokkuð viss um að ég hef lesið nákvæmlega þessa setningu áður frá þér hérna á spjallinu