Síða 1 af 1
útsending af RÚV á ruv.is
Sent: Þri 11. Sep 2012 14:30
af binnist
sælir
veit einhver url-ið á rúv streamið er? ég er að verða geðveikur á að straumurinn sé alltaf bara í 4:3 og ætlaði bara að spila þetta í VLC og boosta þessu upp í 16:9
og ein önnur spurning, vitið þið hvort að Kýpur - Ísland verði streymt utan íslands? er staddur í danmörku og væri fínt ef maður gæti séð leikinn.
Re: útsending af RÚV á ruv.is
Sent: Þri 11. Sep 2012 15:06
af Dagur
Sæktu rtmpdump og gerðu
rtmpdump -r
rtmp://178.19.48.171/ruv?key=1234 -y beint-2 | "C:\Program Files\VideoLAN\VLC\vlc.exe" -
edit: Svo efast ég um að þú getir horft á leikinn út af réttindamálum. Það var allavega ekki hægt með Noregsleikinn.
Re: útsending af RÚV á ruv.is
Sent: Þri 11. Sep 2012 15:30
af binnist
já ég er búinn að reyna allann andskotann, meiraðsegja fann einhvern íslenskan proxy en það virtist ekkert virka. sýnist mér ég hafa fundið straum á netinu.
en já eru þessi réttindamál ekki bara þannig að ef að einhver er með einkaleyfi í hverju landi fyrir sig að þá er ekki hægt að sýna það þar? Veit til þess að það var hægt að horfa á einhvern landsleik í körfubolta á netinu hérna úti.
Re: útsending af RÚV á ruv.is
Sent: Þri 11. Sep 2012 19:51
af JReykdal
binnist skrifaði:já ég er búinn að reyna allann andskotann, meiraðsegja fann einhvern íslenskan proxy en það virtist ekkert virka. sýnist mér ég hafa fundið straum á netinu.
en já eru þessi réttindamál ekki bara þannig að ef að einhver er með einkaleyfi í hverju landi fyrir sig að þá er ekki hægt að sýna það þar? Veit til þess að það var hægt að horfa á einhvern landsleik í körfubolta á netinu hérna úti.
RÚV má oftast bara sýna leikina á Íslandi. Má ekki dreifa á netinu út fyrir landið.
Re: útsending af RÚV á ruv.is
Sent: Þri 11. Sep 2012 19:57
af Viktor
Ég horfði alltaf á handboltaleikina í BNA í gegnum ruv.is, ekki mjög öflugur IP filter þar á ferð grunar mig.
Re: útsending af RÚV á ruv.is
Sent: Mið 12. Sep 2012 00:53
af JReykdal
Sallarólegur skrifaði:Ég horfði alltaf á handboltaleikina í BNA í gegnum ruv.is, ekki mjög öflugur IP filter þar á ferð grunar mig.
Fer eftir því hvaða leiki. Suma leiki má sýna en aðra ekki. Fer eftir þvi hver á réttinn og hvar.