Síða 1 af 1

Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 13:39
af playman
https://www.box.com/s/3eaf2f662006639bcfb2
Eða til hvers þetta er notað?

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 14:00
af Tbot
Tengin ofan á eru fyrir 9V dc rafhlöður
Miðað við fjölda tengja, getur þetta verið frá 9 V upp í 56 V eftir því hvernig þetta er tengt.

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 19:48
af playman
Tjah ég að vísu vissi það, en ég hef samt eingan grun hvað þetta er eða fyrir hvað þetta er.

Það má kanski bæta við að það er svo on/off takki á þessu og svo inngangur/útgangur líka.

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 20:02
af arons4
Rífðu græjuna í sundur og tékkaðu hvað þú finnur :D

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 20:21
af playman
Er búin að því ;) það var ekkert annað en tengingar á milli pólana og viðnám

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fös 24. Ágú 2012 20:22
af semper
Djöfull er ég orðinn forvitinn maður

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fim 30. Ágú 2012 15:02
af playman
Enginn sem hefur hugmynd um hvað þetta gæti verið?

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fim 30. Ágú 2012 15:12
af Gúrú
Er þetta ekki bara einhvað skítamixað dót sem var gert í einhverjum einum tilgangi sem er ómögulegt fyrir okkur að vita nákvæmlega hver var eða er útfrá þessari mynd? :-k

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fim 30. Ágú 2012 15:22
af playman
Gúrú skrifaði:Er þetta ekki bara einhvað skítamixað dót sem var gert í einhverjum einum tilgangi sem er ómögulegt fyrir okkur að vita nákvæmlega hver var eða er útfrá þessari mynd? :-k

Ég hélt það fyrst, fékk eitt svona fyrir ári síðan eða svo, svo fékk ég tvo aðra svona núna bara fyrir 2 vikum.
Og nú er maður orðin forvitin, var búin að reyna að leita á google en fann ekkert.
Með fyrra tækinnu fylgdi straumbreitir með, sem gefur 9v 300mA.
Hvort að þetta sé hleðslutæki eða hvað, veit ég ekki, hefði haldið að það þyrfti að vera allaveganna
eithvað power borð til að stjórna hleðsluni, sem er ekki inní tækinu.

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fim 30. Ágú 2012 15:23
af Gúrú
Kemur auðvitað til greina að einhver hafi síðan fært innviðin úr þessu skítamixi í betra skítamix.

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fim 30. Ágú 2012 15:28
af Talmir
Ef ég ætti að giska blint þá mundi ég halda að þetta væri kennslugræja fyrir einhvern sem er að læra alger grunnatriði í rafmagnsfræði. Tengja þetta bara við fjölsviðsmæli eða einhverskonar mótor apparat og þá geturðu sýnt einhverjum hvernig hægt er að tengja batterý á mismunandi hátt... t gæti staðið fyrir tækniskólann :P

Annars hef ég ekki hugmynd um þetta.

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fim 30. Ágú 2012 15:35
af playman
Gúrú skrifaði:Kemur auðvitað til greina að einhver hafi síðan fært innviðin úr þessu skítamixi í betra skítamix.

Ekki er svo að sjá :-k
https://www.box.com/s/266b31307dd86a979326

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fim 30. Ágú 2012 15:44
af Talmir
Ó hey, ég held ég viti hvað þetta er.

Ég held þetta sé power dæmi fyrir pedal-board fyrir hljóðfæraleikara. Það eru margir klassískir pedalar sem einungis keyra á 9V batterýum, það er ekki hægt að tengja power supply beint við þá. (t.d. gamli fuzz face sem hendrix er frægur fyrir að nota). Power supply er tengt í endann á þessum kassa, svo er rafmagnið leitt með svona 9V terminal drasli yfir í 9V plöggið inn í pedalnum. Þegar þú villt svo hætta að spila og slökkva á græjunum þá notarðu takkann þarna.
http://4.bp.blogspot.com/-KPUspXNKpl8/T ... attery.jpg

Mér finnst það allavega mjög líklegt.

Re: Veit einhver hvað þetta er?

Sent: Fim 30. Ágú 2012 19:09
af playman
Talmir skrifaði:Ó hey, ég held ég viti hvað þetta er.

Ég held þetta sé power dæmi fyrir pedal-board fyrir hljóðfæraleikara. Það eru margir klassískir pedalar sem einungis keyra á 9V batterýum, það er ekki hægt að tengja power supply beint við þá. (t.d. gamli fuzz face sem hendrix er frægur fyrir að nota). Power supply er tengt í endann á þessum kassa, svo er rafmagnið leitt með svona 9V terminal drasli yfir í 9V plöggið inn í pedalnum. Þegar þú villt svo hætta að spila og slökkva á græjunum þá notarðu takkann þarna.
http://4.bp.blogspot.com/-KPUspXNKpl8/T ... attery.jpg

Mér finnst það allavega mjög líklegt.

OK þetta er besta giskið só far.

Er eithvað hægt að pinpointa þetta betur?
300mA er svo rosalega lítið er eithvað hægt að keyra á því, þar sem að boxið hefur 6x útganga?