Síða 1 af 2

Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 20:04
af Don Vito
Sælir félagar,

Nú er ég að byrja í áfanga í skólanum sem nefnist hreint og beint "Fótbolti".

Það eru nokkuð mörg ár síðan ég spilaði síðast fótbolta af miklu kappi og er því hvorki vel skóaður né á einhvern almennilegan íþróttafatnað.

Þetta er úti 2svar í viku og inni einu sinni í viku. Úti er ýmist spilað á grasi eða gervigrasi og inni er spilað á íþróttagólfi, samanber handboltagólfi. Þarf nú varla að útskýra það eitthvað frekar.

En mig semsagt vantar fatnað í þetta allt saman.

Spurning mín er þessi, er ekki eina vitið að fá sér takkaskó og svo aðra sem ég nota inni?

Hvar fæ ég svona skó ódýrt en samt ekki eitthverjar crap vörur?

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 20:17
af Eiiki
Intersport. Kaupir Adidas eða Nike skó, bara spruning um hvort hentar þér betur

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 20:17
af Victordp
Takkaskór eru möst til að spila á grasi/gervigrasi, en þú getur notað hvaða innanhús skó sem er fyrir fótbolta bara svo lengi sem að þeir eru með góðu gripi. Myndi kíkja í Útherja, Intersport og Jóaútherja, flestar þessar búðir eru með heimasíður og selja allar einhverjar carp týpur af "góðu" skónum.

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 20:20
af Don Vito
Eiiki skrifaði:Intersport. Kaupir Adidas eða Nike skó, bara spruning um hvort hentar þér betur

Bara hvort mér þykir þæginlegra?

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 20:21
af Bidman
hvar er þessi áfangi kenndur?

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 20:29
af hagur
Hægt að fá sérstaka gervigrasskó líka sem eru með mjög smáum tökkum. Oft eru venjulegir takkaskór bannaðir á gervigrasi.

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 20:57
af vargurinn
Segðu mér eitt , don Vito minn, í hvaða skóla ertu, og hvar sækir maður um ;)

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 22:40
af Don Vito
Fjölbrautarskólanum í Garðabæ, http://fg.is/namid/innritun/

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 22:48
af Rúnar
hagur skrifaði:Hægt að fá sérstaka gervigrasskó líka sem eru með mjög smáum tökkum. Oft eru venjulegir takkaskór bannaðir á gervigrasi.

Þeir eru aðalega fyrir gömlu gervigrösin.
Getur fengið skó með venjulegum tökkum eða gervi gras tökkum, þá eru þeir örlítið minni og fleiri. Mæli ekki með þessum með haug af litlum því það eru ekki margir staðir með það gras og eflaust verður þeim öllum skipt út.
Svo var verið auglýsa hér á vaktini fína predador innanhús skó.
Ég sjálfur myndi mæla með F50 frá adidas en myndi bara fara og máta hvort þér finnist adidas eða eitthvað annað merki þæginlegast.
Íþróttabuxur sem ná rétt fyrir neðan hné og fóboltasokka. Þá ertu gylltur :)

Re: Fótbolti

Sent: Fim 23. Ágú 2012 23:18
af SDM
Sports Direct :happy

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 00:35
af capteinninn
hagur skrifaði:Hægt að fá sérstaka gervigrasskó líka sem eru með mjög smáum tökkum. Oft eru venjulegir takkaskór bannaðir á gervigrasi.

Keypti mér svoleiðis um daginn í Útilíf á einhverjum afslætti eftir að hafa notað nánast takkalausa innanhússkó úti á gervigrasi í mörg ár. Þvílíkur munur.

Athugaðu samt hvort þú getir ekki bara pantað á netinu einhverja skó, örugglega miklu ódýrara en að kaupa hérna á Íslandi

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 00:42
af Magneto
hagur skrifaði:Hægt að fá sérstaka gervigrasskó líka sem eru með mjög smáum tökkum. Oft eru venjulegir takkaskór bannaðir á gervigrasi.

..... uuuuuu, nei

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 00:43
af Pandemic
Annað Vote fyrir Sports Direct í Smáratorgi.

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 01:02
af Orri
x3 á Sports Direct..
Þeir takkaskór sem ég skoðaði þar voru mun ódýrari en t.d. í Intersport, og bara svipuð verð og ProDirectSoccer (ekki á útsölu þeas.) :)

Ég myndi alls ekki taka svokallaða gervigraskó sem eru með skrilljón pínkulitlum tökkum, um leið og gervigrasið blotnar þá finnst mér þeir allt of sleipir..
Það eru til gervigrasskór með tökkum sem eru ekki mikið minni en á venjulegum, en þá geturðu notað bæði á gervigrasi sem og venjulegu.
Venjulegir takkaskór eru fljótir að skemmast á gervigrasi að því leiti að sólinn rifnar oftast á endanum. Einnig geta þeir verið óþæginlegir á gervigrasi þar sem þú ert með of mikið grip..

Ég hef æft heilann vetur á gervigrasi á venjulegum takkaskóm (Nike Mercurial Vapor) og það var bara mjög fínt, en þeir rifnuðu þó hjá sólanum eftir alla þessa notkun (erum að tala um 4-5 æfingar í viku + leiki).
Svo fékk ég mér svona gervigras takkaskó með alvöru tökkum (ekki þessir litlu) fyrir seinasta vetur og þvílíkur munur! Þeir eru mikið þæginlegri að því leiti að þeir eru mýkri og rífa ekki jafn mikið í þegar þú tekur stefnubreytingar :) Svo eru þeir líka ágætir á venjulega grasinu..

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 08:06
af Don Vito
Jáaaa,

Þetta er bara einn áfangi og ég tími því varla að kaupa mér innanhússkó, gervigrasskó og alvöru grasskó...

En ég kíki klárlega í Sports Direct á eftir!

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 10:33
af hagur
Magneto skrifaði:
hagur skrifaði:Hægt að fá sérstaka gervigrasskó líka sem eru með mjög smáum tökkum. Oft eru venjulegir takkaskór bannaðir á gervigrasi.

..... uuuuuu, nei

Ég er svosem enginn sérfræðingur í þessu en t.d var skilti uppá vegg í gamla salnum í Sporthúsinu þar sem stóð beinlínis að bannað væri að nota "alvöru" takkaskó á gervigrasinu. Getur vel verið að það hafi bara verið svoleiðis þar. Ef þetta er alveg í lagi annarsstaðar, þá bara gott mál.

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 11:43
af Halli25
hagur skrifaði:Hægt að fá sérstaka gervigrasskó líka sem eru með mjög smáum tökkum. Oft eru venjulegir takkaskór bannaðir á gervigrasi.

Hef líka séð menn slíta krossbönd með því að vera á takkaskóm á gervigrasi!

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 12:21
af Don Vito
Takk fyrir hjálpina drengir. Er búinn að kaupa allt nema innanhússkó. Það verður að bíða aðeins.

Fékk eftirfarandi hluti á aðeins 30 þúsund krónur:

Mjög fína takkaskó.
Fótboltasokka 2 pör.
Innanundir síðerma bolur sem loftar vel og er hlýr.
Innanundir "stutt" buxur sem lofta vel og eru hlýjar.
Stuttbuxur
Og Treyju.

Sports Direct staffið var líka fáránlega hjálpsamt og stóð sig vel. Mjög sáttur!

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 12:28
af jagermeister
Orri skrifaði:x3 á Sports Direct..
Þeir takkaskór sem ég skoðaði þar voru mun ódýrari en t.d. í Intersport, og bara svipuð verð og ProDirectSoccer (ekki á útsölu þeas.) :)

Það er ALLTAF ódýrara að kaupa fótboltaskó í Intersport nema um útsölur hjá hinum fyrirtækjunum sé að ræða. Ef þú finnur sömu týpu af fótboltaskóm á betra verði en í Intersport lækkar Intersport verðið hjá sér. Verðvernd

Kv. Starfsmaður í skódeild í Intersport.

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 15:10
af Orri
jagermeister skrifaði:Það er ALLTAF ódýrara að kaupa fótboltaskó í Intersport nema um útsölur hjá hinum fyrirtækjunum sé að ræða. Ef þú finnur sömu týpu af fótboltaskóm á betra verði en í Intersport lækkar Intersport verðið hjá sér. Verðvernd

Kv. Starfsmaður í skódeild í Intersport.

Jahá.. þetta hefur maður nú bara aldrei nokkurntímann séð auglýst...
En samkvæmt síðunni sem þú linkar í þá endurgreiðir Intersport bara mismuninn, ekkert 10% af mismuninum í viðbót eins og er hjá t.d. Elko og því ekki ALLTAF ódýrara að kaupa fótboltaskó í Intersport, bara jafn dýrt.. ;)

Svo getur maður oft sparað sér slatta með því að panta sjálfur af ProDirectSoccer.com :)

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:09
af jagermeister
Orri skrifaði:

Verðið er sett lægra en samkeppnisaðilans og svo held ég að það séu afskaplega fáar verslanir sem geta keppt við verð hjá "búðum" á netinu.

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:20
af Gúrú
jagermeister skrifaði:Verðið er sett lægra en samkeppnisaðilans

Af hverju stendur það þá hvergi?

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:34
af jagermeister
Gúrú skrifaði:
jagermeister skrifaði:Verðið er sett lægra en samkeppnisaðilans

Af hverju stendur það þá hvergi?

Eina sem ég veit er að þegar SportsDirect opnaði lækkaði verð á nokkrum týpum af fótboltaskónum hjá okkur og fór þá undir þeirra verð.

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 17:42
af Gúrú
jagermeister skrifaði:
Gúrú skrifaði:
jagermeister skrifaði:Verðið er sett lægra en samkeppnisaðilans

Af hverju stendur það þá hvergi?

Eina sem ég veit er að þegar SportsDirect opnaði lækkaði verð á nokkrum týpum af fótboltaskónum hjá okkur og fór þá undir þeirra verð.

Við, allavegana ég og að mér sýnist Orri, erum að tala um verðvernd. Ekki verðlagningu og ákvarðanir tengda því hjá verslunarstjórum.

Ef að þetta er það eina sem að þú veist þá mæli ég a.m.k. ekki með því að staðhæfa út frá því að "þið" munið alltaf vera ódýrari þegar að kemur að verðvernd,
vegna þess að það stendur klárlega ekki á síðunni "ykkar" né neinsstaðar þar sem að "þið" auglýsið verðvernd.

Re: Fótbolti

Sent: Fös 24. Ágú 2012 18:11
af arons4

Er þetta ekki verðvernd?
http://www.intersport.is/component/cont ... -verdvernd