Síða 1 af 1
Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 22:59
af Krissinn
Ég sé ekki orlofsreikninginn minn inná heimabankanum mínum, Landsbankinn er minn viðskiptabanki og því ætti ég að geta séð orlofsreikninginn minn. Landsbankinn er einnig viðskiptabanki systur minnar og líka unnustunnar minnar og þær geta séð stöðuna á sínum orlofsreikning. Veit einhver hvernig maður stillir þetta inná heimabankanum svo maður sjái stöðuna á þessum reikning?
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:01
af gugglan
fyrirtækið sem þú vinnur fyrir gerir orlofsreikninginn þinn í þeim banka sem þeim hentar þannig hann gæti verið í Íslandsbanka, arion eða sparisjóð
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:02
af siggik
tannhjól hægrameginn uppi...
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:02
af urban
Ertu alveg viss um að þú eigir orlofsreikning hjá landsbankanum ?
fullt af fyrirtækjum sem að leggja inná orlofsreikninga hjá sínum viðskiptabanka.
t.d. þegar að ég var hjá íslandsbanka þá átti ég alltaf orlofsreikning hjá landsbankanum.
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:03
af Krissinn
Ég hef verið að vinna hjá Akureyrarbæ, líka þær báðar þannig að......
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:05
af Krissinn
siggik skrifaði:tannhjól hægrameginn uppi...
Ekkert þar inní
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:09
af J1nX
talaðu við launadeildina hjá þér
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:09
af GuðjónR
Hringja í fyrramálið og fá skýringu á þessu...don't panic þetta leysist
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:14
af Krissinn
J1nX skrifaði:talaðu við launadeildina hjá þér
Ég skoðaði seinasta rafræna launaseðil og á honum hefur orlofsreikningurinn sama bankanúmer og launareikningurinn eða debetkortareikningurinn minn, þannig að orlofsreikningurinn hlítur að vera þá líka í Landsbankanum.... :p
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:16
af Krissinn
GuðjónR skrifaði:Hringja í fyrramálið og fá skýringu á þessu...don't panic þetta leysist
Já, ég panic-a ekkert hehe
Hringi í fyrramálið í bankann :p
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:22
af tdog
Orlofsreikningurinn er hjá Seðlabankanum. Átt ekki að sjá hann í heimabanka síðast þegar ég tékkaði.
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:23
af Klaufi
Sérðu ekki innistæðu Orlofsreiknings á síðasta launaseðli?
Þ.e.a.s. ef það er það sem þú leitast eftir..
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:26
af Krissinn
tdog skrifaði:Orlofsreikningurinn er hjá Seðlabankanum. Átt ekki að sjá hann í heimabanka síðast þegar ég tékkaði.
Ég gat fyrst þegar ég fékk mér heimabanka hjá Landsbankanum en svo einhvern tímann þá datt hann út....
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Þri 21. Ágú 2012 23:50
af J1nX
ertu í vinnu bara yfir sumarið? veit allaveganna að nokkrir starfsmenn sem voru bara í vinnu yfir sumarið þar sem ég vinn fengu orlofið greitt jafnóðum þar sem þeir voru svona stutt í vinnu
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:02
af Krissinn
J1nX skrifaði:ertu í vinnu bara yfir sumarið? veit allaveganna að nokkrir starfsmenn sem voru bara í vinnu yfir sumarið þar sem ég vinn fengu orlofið greitt jafnóðum þar sem þeir voru svona stutt í vinnu
Ég var að vinna í hálft ár, skilst að Akureyrarbær greiði inná svona reikning.
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Mið 22. Ágú 2012 00:42
af pattzi
Ég hringdi bara í bankann og þeir settu hann inn fyrir mig var ekki í þessu tannhjóli
Hjá landsbankanum vinnuveitandi líka.
Re: Sé ekki orlofsreikninginn minn í heimabankanum
Sent: Mið 22. Ágú 2012 01:48
af Krissinn
pattzi skrifaði:Ég hringdi bara í bankann og þeir settu hann inn fyrir mig var ekki í þessu tannhjóli
Hjá landsbankanum vinnuveitandi líka.
Já okey :p Ég heyri þá í þeim á morgun