Síða 1 af 1

Tölvubúðir í London

Sent: Lau 18. Ágú 2012 15:24
af IkeMike
Einhver sem veit af einhverjum tölvu-verslunum sem maður getur farið í í London ? Verð þar í einn dag í næstu viku og væri til í að kíkja í eina slíka meðan ég er þar.

Re: Tölvubúðir í London

Sent: Lau 18. Ágú 2012 15:28
af Yawnk
PCWorld og Currys

Re: Tölvubúðir í London

Sent: Lau 18. Ágú 2012 16:01
af Televisionary
Ef þú hefur tök á því að kíkja á Tottenham Court Road þá er töluvert af búðum þar. Magn er ekki sama sem merki og gæði. Ef þú ferð í hliðargötu sem heitir Windmill Street númer 30 þá ættirðu að finna Yoyotech sem reyndust mér nokkuð vel. En verðið oft á tíðum er svipað ef ekki betra í Rvík.

Flettu þessu bara upp á google maps:
30 Windmill Street, London, Greater London W1T 2JL, United Kingdom

Micro Anvika eiga nokkuð gott úrval af vélbúnaði þeas fartölvum og aukahlutum og þess háttar. Ég keypti 17" MBP vélina mína þar fyrir tveimur árum. Hún var á betra verði heldur en hjá Apple sem er í 15 mínútna göngufæri þarna frá Tottenham Court Road lestarstöðinni.

Re: Tölvubúðir í London

Sent: Lau 18. Ágú 2012 18:20
af g0tlife
Er með spurningu þar sem ég er að fara líka. Er þetta eitthvað mikið ódýrara en hérna heima ?

Re: Tölvubúðir í London

Sent: Lau 18. Ágú 2012 23:42
af braudrist
Ég mundi segja að það væri a.m.k. 20-30% ódýrara í London.