Síða 1 af 1

Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 23:50
af agust1337
Sæl öll hér... Er að vinna í remixi af laginu Scary Monsters and Nice Sprites
Og þetta er það sem ég hef....
Skrillex - Scary Monsters And Nice Sprites (Agust1337's Remix)

Segið mér endilega hvað ykkur finnst, fyrir þá sem eru hrifnir af dupstepish lögum..

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Þri 14. Ágú 2012 23:51
af Gúrú
01:16-01:37 er allavegana það leiðinlegt fyrir mín eyru að ég slökkti á þessu. Líkar annars mjög vel við originalið.

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 00:30
af tdog
Það lélegasta og tilgangslausasta drullumall sem ég hef heyrt ... Þú verður að hafa einhverja hugmynd um hvað þú vilt gera, ekki bara gera eitthvað. Síðan þarftu að læra að halda hljóðinu jöfnu, þarft að kynna þér compression og hljómjöfnun. Þú átt margt ólært.

Og þetta er engan vegin dubstepish...

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 00:31
af FuriousJoe
Maður reynir oft að segja "Flott, haltu áfrám" og svoleiðis, koma hvatningunni af stað.


En þetta er bara of hræðilegt.....

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 00:36
af agust1337
tdog skrifaði:Það lélegasta og tilgangslausasta drullumall sem ég hef heyrt ... Þú verður að hafa einhverja hugmynd um hvað þú vilt gera, ekki bara gera eitthvað. Síðan þarftu að læra að halda hljóðinu jöfnu, þarft að kynna þér compression og hljómjöfnun. Þú átt margt ólært.

Og þetta er engan vegin dubstepish...


fyrsta tilraun, og ég veit að hljóðið er í fokki, ég renderaði það í sony vegas og það fokkaði því. Takk samt fyrir þau skilaboð..

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 00:47
af halldorjonz
FuriousJoe skrifaði:Maður reynir oft að segja "Flott, haltu áfrám" og svoleiðis, koma hvatningunni af stað.


En þetta er bara of hræðilegt.....


hahahah

ég fýla orginal lagið.
Þetta er eins og lélegt version af orginal laginu með öfgakendum bassa og meira af óþarfa rugli.

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 00:47
af Kveldúlfur
Um að gera að prófa sig áfram. Er sjálfur að hlusta mikið á liquid dubsteb en er ekki sérstaklega hrifinn af þessu þunga dubstepi, það eru jú einstaka lög þar sem takturinn er ágætlega grípandi en stundum líður mér bara eins og ég sé kominn aftur inní blikksmiðju og þarf að ná í peltorinn minn.

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 00:57
af capteinninn
Kannski er ég of mikill house-hundur eða eitthvað en ég fíla ekki svona techno. Hef aldrei fílað hana, finnst vanta allt "groove" í lögin en annars finnst mér vel gert að þú ert að reyna að búa til remix sjálfur, þetta er ekkert alltof gott eins og er en þú verður örugglega betri með tímanum. Passaðu líka að nota betri forrit eða allavega reyna að rendera það almennilega og svo spyrja hvað fólki finnst því hljóðið er alveg hræðilegt í þessu.

Gangi þér samt vel við hljóðvinnsluna !

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 01:01
af Tiger
Held að Bose heyrnatólin mín bíði þess aldrei bætur að hafa þurft að hlusta á þetta stutta brot sem ég spilaði..... :wtf

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 01:14
af agust1337
Eru þið að segja að það er bara hljóðið, eða eitthvað annað/meira, endilega segið mér það svo ég get endurunnið það án þess að fá endalaus komment um að það sé lélegt en með enga útskýringu hvað það er.

Takk fyrir..

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 01:19
af capteinninn
agust1337 skrifaði:Eru þið að segja að það er bara hljóðið, eða eitthvað annað/meira, endilega segið mér það svo ég get endurunnið það án þess að fá endalaus komment um að það sé lélegt en með enga útskýringu hvað það er.

Takk fyrir..


Ég fílaði þetta ekki, alltof mikið af hlutum að gerast en eins og ég segi þá fíla ég ekki Skrillex og techno í þeim dúr.
Reyndu að upload-a betri útgáfu og láttu okkur svo vita

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 01:39
af CurlyWurly
Nú veit ég ekki hvernig svona hlutir ganga fyrir sig en mig grunar að það væri MUN sniðugra fyrir þig að byrja bara á því að remixa lag sem er ekki jafn bass heavy og þetta þar sem mér fannst þú í rauninni bara vera að bæta við óþarfa takti í þetta lag. Kannski er það bara mín skoðun en ég held þú sért ekki alveg nógu reyndur til þess að vera að remixa eitthvað sem að er eiginlega bara remix.

Gætir prufað að taka lag sem að er ekki með jafn heavy bassa og kannski bæta örlitlum bassa við það og electrify'a það örlítið, þá er ég btw að tala um eitthvað sem er ekki dubstep/tekno/eitthvað annað tölvu"tónlistar" dóterí

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 02:34
af Viktor
Þetta er fín byrjun, hvaða forrit ertu að nota? Peakar mjög mikið, það hljómar aldrei vel.

Myndi byrja á því að semja þína eigin takta, læra á hljóð, fá mér HD-25 heyrnatól og fara all-in í þetta ef þú hefur áhgua ;)

Hér er e-ð dútl eftir mig ef fólk hefur áhuga

www.soundcloud.com/the-arty-party

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 03:17
af rapport
Svona á þetta að hljóma...

http://soundcloud.com/unnarf

Re: Er að vinna í remixi, segið mér hvað ykkur finnst?

Sent: Mið 15. Ágú 2012 04:10
af FuriousJoe
Lélegt hljóð, tókst allt dubstep úr laginu td.... bara mun lélegri útgáfa.

Sent from my GT-I9100 using Tapatalk 2