Síða 1 af 6

já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:25
af worghal
ég var að lesa gegnum Fréttablaðið í dag og sá að plebbarnir frá smáís væru með heilsíðu auglýsingu þar og ég varð ekkert nema reiður.

Mynd

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:30
af bAZik
Mynd

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:31
af ZiRiuS
Þetta pirraði mig meira...

Mynd

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:31
af GuðjónR
Hvernig væri þá að gera íslenskun notendum kleyft að kaupa þessar þjónustur "löglega" og hætta þessu væli?

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:33
af worghal
GuðjónR skrifaði:Hvernig væri þá að gera íslenskun notendum kleyft að kaupa þessar þjónustur "löglega" og hætta þessu væli?

nákvæmlega!
ef að netflix eða hulu væri til staðar á þessu ömurlega skeri, þá væri ég borgandi áskrifandi!
en nei, þeir vilja þetta ekki af því að þá dofnar þessi súper okraða dvd markaður sem þeir eru búnir að berjast fyrir hérna.

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:35
af capteinninn
Vá hvað það gæti bara verið gott ef það yrði opnað fyrir þetta og íslensku stöðvarnar yrðu duglegri að búa til íslenskt efni í staðinn fyrir að kaupa það frá útlöndum.

Er þá ekki bara verið að styrkja við innlenda dagskrárgerð með því að opna fyrir Hulu, Netflix o.s.frv.?

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:37
af GuðjónR
Fólk er að borga í kringum $7 fyrir netflix á mánuði og fá þar aðgang að öllu heimsins efni.
Getiði ímyndað ykkur verðmiðann á svona þjónustu ef hún yrði íslensk :face

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:40
af worghal
GuðjónR skrifaði:Fólk er að borga í kringum $7 fyrir netflix á mánuði og fá þar aðgang að öllu heimsins efni.
Getiði ímyndað ykkur verðmiðann á svona þjónustu ef hún yrði íslensk :face

5þús+

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:43
af Daz
Ég get borgað 3500 kr á mánuði til að vera áskrifandi að NBA leikjum. Öllum leikjum. Alltaf. Endursýndir stanslaust, allskonar fítusar. Fullkomlega lögleg þjónusta, beint frá bónda. Eða ég get keypt áskrift að Stöð 2 Sport 2, rúv 0. Það kostar minnir mig 6000. Þeir sýna 1-2 leiki í viku, af ca 30.


Hinsvegar, hvaða lagabókstafur er til fyrir því að það sé ólöglegt að kaupa áskrift að t.d. Sky? Það eru allskonar hömlur, IP blokk, heimilsfanga á kreditkorti osfrv, en er það ólöglegt?

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 01:55
af Skari
Færð þér stöð 2 sport 2 á um 6000 kr minnir mig að það hafi verið og því færðu eingöngu ensku úrvalsdeildina, svo til að sjá meistaradeildina þá þarftu að bæta við öðrum 6000kr, orðið frekar mikið.

Mættu reyndar gera eins og skjár einn gerði hér áður, voru ekki með neina lýsendur, höfðu bara þessa ensku þuli og þeir voru miklu betri en höddi magg og þessir vitleysingar (Gummi Ben er sá eini sem eitthvað er varið í ).

Svo er smáís fávitar, það er löngu vitað.

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 12:34
af urban

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 12:42
af Gúrú
urban skrifaði:ZiRius
er þessi mynd eftir þig ??


Af hverju ætti hann að gera og dreifa mynd sem að pirrar hann. :)


ZirIUSZZZSZxXx skrifaði:Þetta pirraði mig meira...

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 12:53
af Revenant
Boðskapur auglýsingarinnar: Ef þú kaupir þjónustu erlendis þá eru "réttir" milliliðir (þ.e. Smáís) ekki að fá tekjur.

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 13:20
af emmi
Er það ólöglegt skv. Íslenskum lögum að kaupa áskrift að þjónustu á borð við Netflix og SKY? Hvað er eiginlega í gangi með þessa vitleysinga, halda þeir að þeir eigi einkarétt á neyslu landans?

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 13:22
af blitz
emmi skrifaði:Er það ólöglegt skv. Íslenskum lögum að kaupa áskrift að þjónustu á borð við Netflix og SKY? Hvað er eiginlega í gangi með þessa vitleysinga, halda þeir að þeir eigi einkarétt á neyslu landans?


Þeir sem skipta máli (listamenn o.fl.) eru að fá allt sitt, þeir sem fá ekki sitt eru parasites á borð við smáís sem fá ekki sinn hluta. Einnig spurning um dreifingarrétt - Stöð2 o.fl.

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 14:06
af AndriKarl
Gaman að þessu ](*,)
http://smais.is/hugverk/

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 14:20
af Hargo
Eru Smáís eitthvað tengdir Norður-Kóreu? Mér finnst þeir vera farnir að líkjast svolítið þeim í hugmyndafræði sinni...

Þeir þurfa að hætta að reyna að synda á móti straumnum, koma sér inn í 21. öldina og vinna með tækninni sem er nú til boða.

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 14:26
af sfannar
Ein spurning, eru Smáís að beyta sér gegn því að það sé hægt að fá myndlykla með upptöku hér á Íslandi?

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 16:29
af DJOli
sfannar skrifaði:Ein spurning, eru Smáís að beyta sér gegn því að það sé hægt að fá myndlykla með upptöku hér á Íslandi?

Alveg pottþétt.

Smáís og Stef eru ekkert annað en parasites.
Þó svo að stef sé starfandi "án gróða" þá segja ársreikningar upp á hundruði milljóna gróða ár eftir ár aðra sögu.

Þeir sem styðja við bakið á þessum kommúnismakerfum eru að láta taka sig ósmurt í endaþarmsopið.

Sú staða sem hér ríkir til dæmis í tónlistarstefnu er sambærileg stefnu þýskalands þar sem ein samtök sjá um innheimtu svokallaðra "royalties" fyrir alla notkun tónlistar.
Þetta veldur því meðal annars að síður eins og gogoyoko myndu ekki standa lengi í hnén ef eins og kannski 1000 manns tækju sig saman, fylltu playlistana sína og spiluðu tónlist af streymi síðunnar stanslaust í mánuð.

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 16:36
af worghal
DJOli skrifaði:
sfannar skrifaði:Ein spurning, eru Smáís að beyta sér gegn því að það sé hægt að fá myndlykla með upptöku hér á Íslandi?

Alveg pottþétt.

Smáís og Stef eru ekkert annað en parasites.
Þó svo að stef sé starfandi "án gróða" þá segja ársreikningar upp á hundruði milljóna gróða ár eftir ár aðra sögu.

Þeir sem styðja við bakið á þessum kommúnismakerfum eru að láta taka sig ósmurt í endaþarmsopið.

Sú staða sem hér ríkir til dæmis í tónlistarstefnu er sambærileg stefnu þýskalands þar sem ein samtök sjá um innheimtu svokallaðra "royalties" fyrir alla notkun tónlistar.
Þetta veldur því meðal annars að síður eins og gogoyoko myndu ekki standa lengi í hnén ef eins og kannski 1000 manns tækju sig saman, fylltu playlistana sína og spiluðu tónlist af streymi síðunnar stanslaust í mánuð.

hreinar tekjur STEF í fyrra voru 413.436.263 kr.
http://www.stef.is/media/vefmyndir/stef ... ningur.pdf

mig langar að skoða ársreikninga smáís, en þeir eru hvergi sjáanlegir.

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 16:58
af Farcry
"edit" googlaði aðeins meira http://217.28.186.169/Ithrottir/lesaith ... leggjumst-
Smá input í umræðuna , veit ekki hvað smáis er að rifa sig.
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett ... daemid-her

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 17:11
af flottur
Hvernig er þetta, ég er ekkert voðalega mikið inn í þessu hulu og netflix tækni, hvað er það sem er að aftra þeim að koma til Íslands?
Er það aukning á gagnamagni til ísland eða?

Hvað er að stoppa almennan borgara í það að fara út í að reyna koma á fót netflix, hulu þjónustu hérna á skerinu?

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 17:14
af Gúrú
flottur skrifaði:Hvernig er þetta, ég er ekkert voðalega mikið inn í þessu hulu og netflix tækni, hvað er það sem er að aftra þeim að koma til Íslands?
Er það aukning á gagnamagni til ísland eða?
Hvað er að stoppa almennan borgara í það að fara út í að reyna koma á fót netflix, hulu þjónustu hérna á skerinu?


Það þarf ekkert gagnaserver hingað á land. Það er nú þegar hægt að nota Hulu og Netflix með krókaleiðum héðan eftir því sem ég best veit.

Ef að Hulu og Netflix vilja þjóna Íslandi þá gera þeir það bara og það er ekkert sem að SMÁÍS geta gert til að stöðva það.
(Nema þá að nýta sér fordæmið um DNS poisoning sem að fékkst í ringulreidar málinu sem að bara ég og gardar kvörtuðum einu sinni yfir. :evil: )

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 17:20
af flottur
Ok skilðig.

Ég var bara svona að pæla, það kemur fyrir að ég nenni ekki að fara krókaleiðir til að horfa á efni og stundum væri bara næs að geta reitt fram kreditkortinu og borgað fyrir áskrift af þessu dæmi.

Þarf maður ekki bara að senda Hulu og netflix póst og biðja þá um að byrja þjóna okkar svæði?

Re: já nú er ég reiður!

Sent: Sun 12. Ágú 2012 17:27
af ZiRiuS
Gúrú skrifaði:
urban skrifaði:ZiRius
er þessi mynd eftir þig ??


Af hverju ætti hann að gera og dreifa mynd sem að pirrar hann. :)


ZirIUSZZZSZxXx skrifaði:Þetta pirraði mig meira...


Nei þessi mynd er ekki eftir mig :)

Gúrú nú ert þú að misskilja mig, upprunalega myndin pirrar mig útaf heimskulega rasismanum sem myndin sem ég birti bendir á :)