Síða 1 af 1

Diskur fastur í bílaútvarpinu

Sent: Fös 10. Ágú 2012 14:50
af Dagur
Vitið þið hvert ég get snúið mér til að láta kíkja á geislaspilarann í bílnum mínum? Hann var farinn að láta furðulega þegar ég var að setja diska í tækið eða fjarlægja þá en núna er diskur fastur í tækinu og ekkert á leiðinni út.

Re: Diskur fastur í bílaútvarpinu

Sent: Fös 10. Ágú 2012 17:08
af littli-Jake
Hvernig spilara ertu með? Annars hugsa ég að Nesradio gætu reddað þér. Reyndu bara að sleppa við að tala við kerlinguna sem vinnur þanra. Hún væri vís með að ásaka þig um að hafa skemt tækið með að hafa snúið disknum vitlaust.

Re: Diskur fastur í bílaútvarpinu

Sent: Fös 10. Ágú 2012 17:30
af Dagur
Þetta er standard tæki í Renault Laguna '98 :P

Ég var búinn að þurrka þessa búð og þessa kellingu úr minni þangað til að þú minntist á þetta. Ég man eftir að hafa lent í henni fyrir nokkrum árum :dontpressthatbutton

Re: Diskur fastur í bílaútvarpinu

Sent: Fös 10. Ágú 2012 22:05
af littli-Jake
Dagur skrifaði:Þetta er standard tæki í Renault Laguna '98 :P

Ég var búinn að þurrka þessa búð og þessa kellingu úr minni þangað til að þú minntist á þetta. Ég man eftir að hafa lent í henni fyrir nokkrum árum :dontpressthatbutton


aaaaaaa svo þetta er Renault. Það útskírir eitt og annað.