Síða 1 af 1

[KOMIÐ] Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fim 02. Ágú 2012 18:06
af AciD_RaiN
Sælir piltar. Ég er að reyna að redda mér fari suður frá Siglufirði eftir verslunarmannahelgina. Gæti alveg reddað mér inn á Akureyri en ef einhver er með pláss fyrir einn feitan rass þá má sá hinn sami alveg láta mig vita. Þarf semsagt að vera kominn suður 7. Ágúst

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fim 02. Ágú 2012 18:11
af intenz

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fim 02. Ágú 2012 18:39
af AciD_RaiN
intenz skrifaði:http://www.samferda.net/

Já ég tékka á því ;) Væri samt betra ef það væri nörd svo maður hefði eitthvað að tala um á leiðinni :catgotmyballs

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fim 02. Ágú 2012 19:38
af Garri
Einhver sem þekkir þetta samferða.net ?

Er oft á ferðinni á milli Rvk - Akey með tómann bíl, en nenni engu veseni.

Til dæmis:

Hvernig er þetta, er ætlast til að maður droppi fólkinu "heim" í Rvk?

Hvað eru farþegar að borga fyrir farið þarna á milli?

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fim 02. Ágú 2012 19:54
af AciD_RaiN
Garri skrifaði:Einhver sem þekkir þetta samferða.net ?

Er oft á ferðinni á milli Rvk - Akey með tómann bíl, en nenni engu veseni.

Til dæmis:

Hvernig er þetta, er ætlast til að maður droppi fólkinu "heim" í Rvk?

Hvað eru farþegar að borga fyrir farið þarna á milli?

Mig grunar að það sé bara eftir samkomulagi :svekktur

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fim 02. Ágú 2012 19:57
af biturk
Garri skrifaði:Einhver sem þekkir þetta samferða.net ?

Er oft á ferðinni á milli Rvk - Akey með tómann bíl, en nenni engu veseni.

Til dæmis:

Hvernig er þetta, er ætlast til að maður droppi fólkinu "heim" í Rvk?

Hvað eru farþegar að borga fyrir farið þarna á milli?

þú átt bílinn, þú setur reglurnar

ég til dæmis rukka 2500 - 3000 fyrir hvert sæti sem er tekið

ég skutla fólki eftir samkomulagi og hversu mikið ég er að flýta mér

borga fyrirfram

ég hef samt reglur í bílnum mínum og ef menn fara ekki eftir þeim þá endurgreiði ég þeim og skil eftir á næsta afleggjara

þær reglur eru einfaldar

1. ég á bílinn, ég ræð tónlistinni
2. þú askar ekki í bílinn minn og þú hendir heldur ekki rusli á gólfið eða sullar niður í hann
3. þú lætur alla takka í friði nema til að stilla sæti, belti og slíkt
4. þú lætur dótið mitt í friði og sleppir allri gagnrýni á mig eða bílinn minn nema það sé augljóst að um húmor sé að ræða

:happy

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fim 02. Ágú 2012 23:29
af jonbk
biturk skrifaði:

þannig að þeir sem eru klókir segjast ætla t.d. til AK en ætla kanski bara á blönduóss og fara eftir reglum allan tímann, en þegar þeir eru komnir þá hætta þeir að fara eftir reglunum og láta henda sér út og fá peninginn sinn ! :happy :money :megasmile

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fös 03. Ágú 2012 02:37
af rapport
jonbk skrifaði:

Nikki breytt í "bitrarik"

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fös 03. Ágú 2012 12:40
af AciD_RaiN
en semsagt enginn á ferðinni??

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fös 03. Ágú 2012 13:01
af Jimmy
Meirihlutinn af þeim Siglfirðingum sem búa hérna í bænum eru á leiðinni norður um versló, þabbara hlýýýýtur einhver að vera með aukapláss fyrir þig. :)

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fös 03. Ágú 2012 13:33
af AciD_RaiN
Jimmy skrifaði:Meirihlutinn af þeim Siglfirðingum sem búa hérna í bænum eru á leiðinni norður um versló, þabbara hlýýýýtur einhver að vera með aukapláss fyrir þig. :)

Ef það eru siglfirðingar sem vita hver ég er þá er ég ekkert viss um að ég fái far hehehe En maður kannski fer út að göngum og húkkar bara :P

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fös 03. Ágú 2012 15:04
af rapport
Ég er að fara en verð með fullan bíl, tékkaði á öðru fólki sem ég veit að er að fara en þau eru með fullan bíl líka ...

Hefði verið sjálfsagt annars...

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fös 03. Ágú 2012 15:24
af AciD_RaiN
rapport skrifaði:Ég er að fara en verð með fullan bíl, tékkaði á öðru fólki sem ég veit að er að fara en þau eru með fullan bíl líka ...

Hefði verið sjálfsagt annars...

Takk fyrir það ;) Ég neyðist kannski til að fara út úr húsi og blanda geði við fólk til að athuga hvort einhver sé með laust sæti.

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fös 03. Ágú 2012 15:30
af Jimmy
Hef augun opin og hendi á þig PM ef ég frétti af einhverju. :)

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Fös 03. Ágú 2012 15:35
af AciD_RaiN
Jimmy skrifaði:Hef augun opin og hendi á þig PM ef ég frétti af einhverju. :)

Takk kærlega fyrir það :D Ég er ekki með læti, lykta ekki neitt svakalega illa og er ekki með mikinn farangur. Bara fartölvu og litla tösku ;)

Re: Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Sun 05. Ágú 2012 16:55
af AciD_RaiN
Er ennþá að leitast eftir fari. Búinn að skrá mig á samferða.is og svona og er að bíða eftir að fá að vita hvort einn vinur minn fari á þriðjudag eða miðvikudag... Einhver með eitthvað á hreinu núna??

Re: [KOMIÐ] Einhver á ferðinni að norðan til rvk eftir versló?

Sent: Mið 08. Ágú 2012 16:57
af Páll
sá ég þig labba í hjarðarhaganum um daginn? :-k