Síða 1 af 3
Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 20:50
af Nördaklessa
Hver eru ykkar fyrsta heims vandamál?
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 20:56
af blitz
Hvaða úr ég nota við dress dagsins.
Mótorhjól eða bíll í vinnuna
o.s.frv.
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 21:03
af AntiTrust
Stofan hjá mér er svo stór að ég þarf mikið stærra sjónvarp.
Er með of mörg herbergi, veit ekki hvað ég á að gera við eitt þeirra.
Er ekki með nóg pláss á servernum til að sækja allar þáttaraðirnar mínar í HD.
iRobotinn sem sér um að ryksuga heimilið festist of oft við sófaborðið.
Ég á svo fínan bíl að ég þarf ítrekað að vera líta útum gluggann til að athuga hvort það séu nokkuð krakkar á línuskautum í kringum hann.
Nuddbaðkarið mitt virkar bara af og til
... Djöfull er þetta fínt cover-topic til að monta sig.
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 21:06
af tveirmetrar
Lol þetta ætti að heita "show off" þráður
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 21:08
af CurlyWurly
Kemst ekki út til spánar í húsið sem fjölskyldan á hvert einasta sumar vegna tímaskorts á hverju sumri.
...mjög sammála síðustu línunni hjá AntiTrust
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:01
af Kosmor
Get ekki ákveðið mig hvort ég fari í 100þ króna linsu eða smá uppfærslu.
djöfull er erfitt að vera til
Bætt við:
Góður þráður samt
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:03
af Nördaklessa
Kosmor skrifaði:Get ekki ákveðið mig hvort ég fari í 100þ króna linsu eða smá uppfærslu.
djöfull er erfitt að vera til
haha
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:07
af hagur
Hvort ég eigi að nota fjörmjólk eða d-vítamínbætta léttmjólk út á hafragrautinn á morgnana. Erfitt líf
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:17
af AciD_RaiN
Isss... Ef einhver á við vandmál að stríða þá er það ég... Þarf að minnka mánaðarlegu pöntunina mína frá highflow um alveg 50 þús kall og get ekki fengið mér aflgafann sem ég ætlaði að fá mér fyrr en um þarnæstu mánaðarmót í fyrsta lagi OG ég get ekki keypt revo drifið af
Tiger þannig ég þarf örugglega að bíða fram í desember með að fá mér þannig ef ekki janúar
Svo er vandamálið með næsta modd. Ég get ekki byrjað almennilega á því fyrr en ég er búinn að klára skattamálin og ekkert víst að G-vans muni sponsa mig um viftustýringu...
Og þegar ég fæ frítt stuff frá tölvufyrirtækjum þá þarf ég samt að borga einhver gjöld hjá tollinum !!! What's up with that??
FML !!!
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:20
af CurlyWurly
AciD_RaiN skrifaði:Isss... Ef einhver á við vandmál að stríða þá er það ég... Þarf að minnka mánaðarlegu pöntunina mína frá highflow um alveg 50 þús kall og get ekki fengið mér aflgafann sem ég ætlaði að fá mér fyrr en um þarnæstu mánaðarmót í fyrsta lagi OG ég get ekki keypt revo drifið af
Tiger þannig ég þarf örugglega að bíða fram í desember með að fá mér þannig ef ekki janúar
Svo er vandamálið með næsta modd. Ég get ekki byrjað almennilega á því fyrr en ég er búinn að klára skattamálin og ekkert víst að G-vans muni sponsa mig um viftustýringu...
Og þegar ég fæ frítt stuff frá tölvufyrirtækjum þá þarf ég samt að borga einhver gjöld hjá tollinum !!! What's up with that??
FML !!!
Wait... WHAT
færðu gefins stöff frá tölvufyrirtækjum?
Mátt alveg gefa mér eitthvað líka
Edit: Er með nýtt vandamál... Acid_Rain vill ekki gefa mér neitt!
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:23
af jonbk
þarf að bíða í 36 daga til að geta keypt mér SIII
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:24
af tdog
Að það séu rúmlega 30 dagar í launatímabilinu.
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:25
af AciD_RaiN
CurlyWurly skrifaði:Wait... WHAT
færðu gefins stöff frá tölvufyrirtækjum?
Mátt alveg gefa mér eitthvað líka
Edit: Er með nýtt vandamál... Acid_Rain vill ekki gefa mér neitt!
Annað vandamál. Það eru ekki nema 2 fyrirtæki að gefa mér stuff... Og ekki einu sinni það mikið... Búinn að fá einhvern smá lit frá mayhems í síðasta modd og svo í mína persónulegu kælingu og svo bara einhverja smáhluti frá highflow
Svo er ég ekki nógu góður moddari til að Intel, Corsair, Coolermaster, Asus og þessi fyrirtæki séu að sponsa mig neitt !!! déskotans ömulegt líf sko....
Edit: Ég gleymdi líka að minnast á hvað ég er með lélegan afslátt hjá highflow
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:32
af worghal
þarf að bíða til 10 ágúst eftir nýrri net tengingu
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:44
af Hjaltiatla
Fer í Laser augna aðgerð fyrir 300.000 kr og þarf að fara að spara aftur eftir það
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 22:47
af Gislinn
Fór uppí sumarbústað en gleymdi að taka með mér bjór til að drekka meðan ég grillaði nautalundina.
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 23:26
af Doror
Veit ekki hvort ég að fara tvisvar til útlanda á næsta ári eða bara einu sinni og kaupa betri dekk undir Jeppann.
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 23:32
af kubbur
Þarf að biða i hálfan mánuð eftir hinum símanum mínum úr viðgerð og er því bara með nova númer og get ekki hangið a netinu a meðan eg er i símanum þegar eg er ekki heima
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 23:33
af CurlyWurly
Doror skrifaði:Veit ekki hvort ég að fara tvisvar til útlanda á næsta ári eða bara einu sinni og kaupa betri dekk undir Jeppann.
Mæli með jeppadekkunum... nema þér takist á einhvern galdramáta að láta þau endast styttra en útlandaferð, ef svo er mæli ég með útlandaferðinni.
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 23:33
af astro
Veit ekki hvort ég eigi að láta heilsprauta bílinn minn annan lit eða láta vinyl wrappa hann möttum lit til mátunar til að byrja með
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 23:36
af appel
Þoli ekki snúrur.
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 23:45
af svanur08
appel skrifaði:Þoli ekki snúrur.
Og DLNA
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fim 26. Júl 2012 23:57
af appel
svanur08 skrifaði:appel skrifaði:Þoli ekki snúrur.
Og DLNA
Er búinn að senda formlega kvörtun til ráðsins sem býr til DLNA staðalinn og vottar DLNA tæki. Lýsti fyrir þeim reynslu minni og erfiðleikum. Er líka búinn að fá svar frá þeim. Þeir taka kvörtun mína alvarlega, og líklegast munu þeir eitthvað íhuga sitt ráð... vonandi
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fös 27. Júl 2012 00:03
af Garri
Þoli ekki langfelstar heimasíður. Eru næstum allar með fixed frame-size og þegar ég stækka letrið, þá hoppar textinn út og suður og ekkert hægt að lesa á langflestum þessum síðum, ath. nota Firefox og með 1920 punkta á víddina.
Andskotinn hafi það, það eru til köll í php og html sem einmitt gefa upp pixlana í client svæði browser. Hvers vegna er það ekki notað ásamt hlutfalli og það að "menn" séu enn þann dag í dag að nota "f-r-o-s-n-a-r" stærðir er eitt af sjö undrun veraldar..
Loks, hata Bill Gates og M$
M$ hefur verið alveg frá upphafi stærsti og útbreyddasti vírus sem hefur verið búinn til, enda næstum alveg free-ware!
Annað svona vandamál er að finna í þessu innleggi. Hvers vegna breytist orðið "f-r-o-s-n-a-r" í frýs?
Re: Fyrsta heims vandamál...
Sent: Fös 27. Júl 2012 00:11
af bulldog
get ekki ákveðið hvað verður næsta uppfærsla hjá mér