Síða 1 af 1
ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 18:21
af appel
OK, ég fór í ELKO í dag, ætlaði að tjékka á þessum soundbörum, vildi heyra hljóminn úr þeim helstu sem ég sá á vefnum hjá þeim. Varð fyrir miklum vonbrigðum með þessa ferð.
Mæti í ELKO, og ekkert svakalega mikið að gera, svona miðlungs myndi ég segja. Fór í hljóðherbergið og þar voru nokkrir soundbarar. Bara einn var tengdur, sá dýrasti, hinir voru ekkert tengdir, ekki einu sinni við rafmagn. Ég vildi fá að heyra hljóminn úr þeim svona til að vita hversu öflugt þetta er, þannig að ég reyndi að leita uppi starfsmann til að tengja þá, en enginn starfsmaður gaf færi á sér, enginn kom og spyrja mig hvort hann gæti aðstoðað þótt ég hafi gónað um allt einsog hálfviti. Fór á þessa "þjónustustöð" og enginn starfsmaður þar heldur. Stóð á skiltum að það ætti að taka "númer", en hvergi var hægt að taka númer. Beið þar en augljóst að enginn starfsmaður nennti að sinna mér.
Þannig að eftir að hafa verið þarna í nærri 20 mínútur þá fór ég bara og lofaði mér að fara aldrei aftur þangað.
Til hvers í fjandanum geta þeir ekki verið með allar þessar græjur sem þeir eru að selja tengdar þannig að maður geti prófað þær sjálfur án þess að tala við starfsmann? Það er fáránlegt að neyða hugsanlega kaupendur að tala við sölumann í hvert einasta skipti sem einhver vill prófa soundbar. Öll sjónvörpin eru tengd, því jú fólk vill sjá myndgæðin, hví eru ekki allar hljómgræjur tengdar svo fólk geti prófað þær?
Doldið svona einsog að fara í IKEA og það er ekki búið að setja helminginn af húsgögnunum saman svo maður geti séð og prófað, heldur maður þurfi að tala við starfsmann sem setji húsgögnin saman í hvert skipti sem einhver vill skoða. AUÐVITAÐ ER ÞAÐ FÁRÁNLEGT.
En það sem pirrar mig mest í þessu er... jú jú auðvitað er mikið að gera og svona hjá starfsmönum og hafa ekki tíma í að sinna öllu, það er það að þegar ég kom þá var einn starfsmaður að blaðra við einhverja unglinga um hvað hin og þessi tæki væru flott, unglingar sem voru augljóslega engir kaupendur að neinu, en voru bara að chatta um hitt og þetta, var ekkert að selja þeim neitt. Hefði þessi starfsmaður ekki betur eytt tímanum sínum í að tryggja að öll tækin væru tengd? Á maður bara að kaupa þetta blint? Myndi einhver kaupa sjónvarp án þess að actually sjá myndina í því? Nei, enginn myndi heldur kaupa hljómgræjur án þess að heyra hljóminn úr þeim!
Og ég var kominn actually til að kaupa, með pening fyrir þessu öllu saman.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 18:23
af Gúrú
Þessi sem að voru tengd voru ekkert BOSE er það?
BOSE er mjög þekkt fyrir það að neyða verslanir í að gera fáránlega hluti eins og þessa.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 18:31
af appel
Gúrú skrifaði:Þessi sem að voru tengd voru ekkert BOSE er það?
BOSE er mjög þekkt fyrir það að neyða verslanir í að gera fáránlega hluti eins og þessa.
Ekkert svakalega margir soundbarar í boði:
http://www.elko.is/hljod_og_mynd/hljomt ... _soundbar/Málið með soundbara er að þeir eru mjög nettir, fer lítið fyrir þeim og það þarf ekki að hafa satellite-speakera út um allt. Þannig að ég skil ekki afhverju það er svona flókið mál að hafa örfáa (6) tengda! Þeir eru með sjálfsagt um 60 sjónvörp öll tengd, en ekki 6 soundbara?
Sá sem var tengdur var þessi: LG heimabíó soundbar (430W)- með Blu-ray spilara
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 18:48
af astro
Fór þangað um daginn til að heyra í Jamó gólfhátölurum þarna og ekkert tengt rétt þarna hvorki magnarar né hátalarar, það var ekki fyrr en ég var búinn að smala 5 starfsmönnum sem hafa sennilega alldrei komið við hátalaravíra þangað inn
allir klórandi sér í pungnum.. Þeir kölluðu á verslunarstjórann og hann kom og tengdi þetta fyrir mig (okkur öll), en það tók svona 1klst þar sem það eru svona 10 týpur af hátölurum og 5-6 týpur af mögnurum og allt tengt sitt og hvað þarna.
Og enginn vissi neitt !!
En þetta hófst á endanum, var sennilega þarna inní hljóðherberginu í 2klst bara til að heyra í 2 hátölurum
hehe En þetta gekk á endanum
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 18:53
af capteinninn
Þetta fer mjög mikið í taugarnar á mér þegar ég lendi í þessu, er sjálfur að vinna í búð og passa mig mikið að vera sýnilegur og býð aðstoð þegar ég er ekki að afgreiða einhvern annan eða aðstoða. Ég samt þoli ekki þegar sölumenn eru að hanga utan í manni eftir að maður afþakkar aðstoð þannig að ég passa mig líka að gera það ALDREI, frekar að bjóða aðstoð einu sinni og segja þeim að láta bara vita ef það vantar aðstoð og svo hef ég mig sýnilegan og fylgist með þeim sem ég bauð aðstoð ef þau líta til mín eftir aðstoð.
Það er samt erfitt að segja að þessir unglingar sem þú talar um séu ekki að fara að kaupa neitt því kannski eru þau að skoða sig um og finna græjur og koma svo seinna að kaupa þær.
Var ekkert að gera í búðinni?
Hvað voru margir starfsmenn?
Annars mæli ég með því fyrir alla að reyna að halda ró sinni gagnvart starfsfólki því þau finna enga þörf hjá sér til að hjálpa til ef viðskiptavinur er æstur í samskiptum, frekar að finna einhvern annan til að aðstoða eða reyna að róa sig niður, jafnvel þótt manni finnst maður vera í rétti.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 18:55
af appel
astro skrifaði:Fór þangað um daginn til að heyra í Jamó gólfhátölurum þarna og ekkert tengt rétt þarna hvorki magnarar né hátalarar, það var ekki fyrr en ég var búinn að smala 5 starfsmönnum sem hafa sennilega alldrei komið við hátalaravíra þangað inn
allir klórandi sér í pungnum.. Þeir kölluðu á verslunarstjórann og hann kom og tengdi þetta fyrir mig (okkur öll), en það tók svona 1klst þar sem það eru svona 10 týpur af hátölurum og 5-6 týpur af mögnurum og allt tengt sitt og hvað þarna.
Og enginn vissi neitt !!
En þetta hófst á endanum, var sennilega þarna inní hljóðherberginu í 2klst bara til að heyra í 2 hátölurum
hehe En þetta gekk á endanum
Vá.
Hvert er eiginlega markmið þessarar verslunar? Að fæla viðskiptvini frá? Að selja þeim drasl án þess að þeir prófi? Enginn metnaður þarna í að gera hlutina aðgengilega og þægilega fyrir viðskiptavini svo fyrirhöfnin sé engin. Er þetta bara leti eða er þetta hluti af einhverjum sölutrikkum? A.m.k. seldu þeir mér ekki neitt, þannig að ég geri ráð fyrir leti.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 19:05
af Rocky36
Það er númerakerfi hjá þeim sem þýðir að ef strákarnir tóku númer á undann þeim þá ganga þeir fyrir.
Þýðir ekkert að hunsa fólk eða börn sem taka númer
Er að vinna í verslun og ef við neitum fólki eða börnum um aðstoð þá ættum við ekki að vinna í verslun
En jú auðvitað ætti tækið að vera teingt
Elkó er samt besta raftækjaverslun á landinnu og 90% með bestu þjónustu sem ég hef fengið.
En það getur alltaf komið svona upp á í verslunum.
Satt að segja hef ég lent í því að fara og ætla að kaupa mér kommóðu í Ikea og fokk hvað ég fékk lélega aðstoð.
Fékk bara þessi leiðinlegu svör, ekki til, ekki hægt, og að þurfa að leita að aðstoð og ekki einu sinni heilsað manni.
Lífið er ekki fullkomið
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 19:11
af appel
Rocky36 skrifaði:Það er númerakerfi hjá þeim sem þýðir að ef strákarnir tóku númer á undann þeim þá ganga þeir fyrir.
Þýðir ekkert að hunsa fólk eða börn sem taka númer
Ekkert númerakerfi. Hvorki sá maður á svona skjá hvaða númer væri í gangi né gat maður fengið númer. Fór á næsta þjónustuborð og nada. Maður er fljótur að gefast upp á svona rugli.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 19:14
af worghal
fórstu ekki á kassann heldur ?
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 19:19
af appel
worghal skrifaði:fórstu ekki á kassann heldur ?
Veistu hvað, næst þegar ég fer þarna og gengur illa að fá aðstoð... þá ætla ég bókstaflega að öskra eftir aðstoð og vera ýkt pirrandi og ágengur.
bara skipa þeim fyrir, "tengdu þetta, ég ætla að prófa og heyra!" og gera það við svona 20 tæki, og svo labba út án þess að kaupa.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 19:27
af Karl
Hahahaha
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 20:04
af Minuz1
prófa að hringa bara og biðja símadömuna um að redda þjónustu í versluninni?
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 20:19
af SolidFeather
Vertu bara feginn, nú geturðu fengið þér alvöru hátalara í staðinn fyrir svona soundbar.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 20:25
af AciD_RaiN
Ég gerði einu sinni smá tilraun og dressaði mig upp í föt og skartgripi í hátt í hálfa milljón og tók allt glingur úr andlitinu á mér og greiddi mér vel og fór í nokkrar verslanir og þá voru allir æstir í að fá að aðstoða mig... Aftur á móti þá hefur mér alltaf fundist vera alveg afburða léleg þjónustu hjá elkó sama hvað ár ég hef farið þangað.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 21:08
af natti
appel skrifaði:það er það að þegar ég kom þá var einn starfsmaður að blaðra við einhverja unglinga um hvað hin og þessi tæki væru flott, unglingar sem voru augljóslega engir kaupendur að neinu
Shit hvað þú ert orðinn gamall, farinn að tala svona um "unglingana".
Ég man þá tíð þegar þú blótaðir starfsfólki verslana fyrir að veita þér ekki næga athygli sökum aldurs, og þó þú værir ungur þá væriru samt mögulegur kaupandi.
Það má svo ekki gleyma því að "unglingar", eins og margir fullorðnir, koma oft fyrst og skoða, velta hlutunum fyrir sér, og koma svo kannski seinna og kaupa. (Eftir að hafa gert verðsamanburð, já eða þjónustusamanburð.)
En "on topic", þá er ég samt sammála þér að þjónustan í Elkó (sem ég hef fengið/reynt að fá), almennt séð, er arfaslök.
Gúrú skrifaði:Þessi sem að voru tengd voru ekkert BOSE er það?
BOSE er mjög þekkt fyrir það að neyða verslanir í að gera fáránlega hluti eins og þessa.
Sense, sem var með umboðið fyrir Bose á íslandi, starfrækti á tímabili verslun í Hlíðarsmára.
Þar var nú allt dótið sem þeir voru með í boði, og það var lítið mál að fá að heyra í öllum græjum sem manni datt í hug að vilja hlusta á.
Þetta var að vísu svona "2007" verslun, (og hætti/fór inn í Nýherja í byrjun hruns) en með frábærri þjónustu
Ég á erfitt með að kaupa það að framleiðandi sé að velta sér upp úr því hvernig útstilling hjá litlum endursöluaðilum er.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 21:20
af Minuz1
natti skrifaði:Ég á erfitt með að kaupa það að framleiðandi sé að velta sér upp úr því hvernig útstilling hjá litlum endursöluaðilum er.
Þeir gera það...
Coke o.fl raða upp gosi í stórmörkuðum td.
Þeir kaupa sér útstillingar í sjoppum með því að gefa gos/kæla/föt á starfsfólk/vinnutæki.
Image is everything.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 21:28
af Gúrú
natti skrifaði:Ég á erfitt með að kaupa það að framleiðandi sé að velta sér upp úr því hvernig útstilling hjá litlum endursöluaðilum er.
Litlum endursöluaðilum er þeim greinilega sama um en ég get lofað þér því að ég er ekki að bulla með þetta
þegar að kemur að miðlungs og stóru verslununum.
Það eru heilu greinarnar um þetta og trixin þeirra allstaðar á netinu.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 21:29
af Hauksi
Mínar uppáhaldsverslanir hvað varðar hljóð og mynd
voru Taktur og Japis..þar var þjónusta að mínu skapi.
Melabúðin, kjötborðið í Nóatún..þar fær maður þjónustu
og greiðir eðlilega fyrir hana.
Fara í Bónus eða Krónuna..jamm ódýrara þar..enda verslar maður mest þar.
Elko sem stórmarkaður er með fín verð á stundum...og miðað við hvernig verslun þetta er
þá er þjónustan að mínu mati fín.
Margar vörur í Elko eru með skilarétt..Og besti staðurinn til að
prufa hljóðkerfi er jú þar sem það er notað..heima!
Prufuherbergið í Elko....breyta því í leiksvæði fyrir börn..
svo að börnin hafi eitthvað að gera..
á meðan fullorðna fólkið skoðar ryksugur og annað skemmtilegt..
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 21:31
af appel
natti skrifaði:Shit hvað þú ert orðinn gamall, farinn að tala svona um "unglingana".
Ég man þá tíð þegar þú blótaðir starfsfólki verslana fyrir að veita þér ekki næga athygli sökum aldurs, og þó þú værir ungur þá væriru samt mögulegur kaupandi.
Það má svo ekki gleyma því að "unglingar", eins og margir fullorðnir, koma oft fyrst og skoða, velta hlutunum fyrir sér, og koma svo kannski seinna og kaupa. (Eftir að hafa gert verðsamanburð, já eða þjónustusamanburð.)
Hey, ef liðið er ekki orðið fjárráða þá á það að hunskast til þess að víkja fyrir "eldri herramanni" með peninga (lesist visa-rað).
Jæja, reyni bara að þroskast
og vera ekki að væla endalaust.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 21:54
af inservible
Farið í Nýherja strákar, ekki ódýrt en þeir leyfa þér að hlusta og skoða eins og þú villt. Einnig aðstoða þeir þig með að velja rétt eftir hentugleika. Maður borgar fyrir gæði og þjónustu.
Re: ELKO ... omg
Sent: Sun 22. Júl 2012 23:06
af Bioeight
Trikkið er að fara í dýru verslanirnar, fá að skoða og fá þjónustu og síðan, ef þú vilt spara pening, ferðu í Elko og kaupir tækið þar(ef það er yfir höfuð ódýrara).
Þau taka sig á þarna í Elko af og til og koma öllu í lag og tengja allt. Síðan hættir Elko að selja einhverjar vörur og nýjar vörur koma inn og þá endar þetta oft í þessu, allt ótengt og allt í rugli.
Þetta er allt sama deildin þarna, sjónvarps-, síma-, GPS-, tölvu-, myndavéla- og hljóðkerfadeild, erfitt að hafa vit á þessu öllu.
Svo eru númerin við fyrsta borðið eftir að þú kemur inn, fyrir sjónvarps-, síma-, GPS-, tölvu-, myndavéla- og hljóðkerfadeild.
-Fyrrverandi starfsmaður Elko
Re: ELKO ... omg
Sent: Mán 23. Júl 2012 01:11
af chaplin
Bioeight skrifaði:Trikkið er að fara í dýru verslanirnar, fá að skoða og fá þjónustu og síðan, ef þú vilt spara pening, ferðu í Elko og kaupir tækið þar(ef það er yfir höfuð ódýrara).
Trikk? Þetta er ekkert "trikk", það er mv. þína lýsingu ástæða afhverju Nýherji er dýrari, þeir ráða almennilega starfsmenn sem þjónusta fólkið og þurfa því að greiða þeim laun. Það sem þú ert basically að segja, nýtið þjónustuna þeirra og verslið hjá okkur til að spara á kostnað Nýherja.
Ekkert trikk.
Re: ELKO ... omg
Sent: Mán 23. Júl 2012 09:37
af Bioeight
Þetta er það sem fólk gerir, þessar dýrari verslanir þurfa því að bjóða upp á eitthvað annað. Persónulegri þjónusta, betri eftirá þjónustu, þægilegri meðhöndlun á ábyrgðarmálum t.d. (allt eitthvað sem Tölvutækni gerir) Sumar verslanir nota aggressívari sölumennsku til að brúa bilið.
Það er bara jákvætt fyrir fyrir verslanirnar að fólk komi til þeirra að skoða frekar en að það fari bara beint í Elko.